Fréttablaðið - 12.11.2022, Page 84
Nóvember er af mörgum
talinn erfiðasti mánuðurinn.
Hér eru hugmyndir til að
stytta sér stundir í nóvember.
birna@frettabladid.is
Nóvember er ellefti mánuður
ársins og er nefndur eftir latneska
töluorðinu „novem“, sem þýðir
níu á íslensku. Ástæðu nafnsins
má rekja til þess að í latneska
dagatalinu var nóvember níundi
mánuðurinn í árinu en janúar og
febrúar voru þeir elleftu og tólftu.
Samkvæmt latneska dagatalinu
hófst árið þann 1. mars.
Nóvember er ekki bara nafn ell-
efta mánaðar ársins heldur er Nóv-
ember einnig íslenskt karlmanns-
nafn. Engin núlifandi manneskja
ber nafnið en sex karlmenn eru
með nafnið Nóvember skráð sem
millinafn í Íslendingabók, þess má
geta að allir eru þeir fæddir í nóv-
ember.
Sumir segja nóvember erfiðasta
mánuð ársins. Vissulega er farið að
dimma og kólna, haustið að líða
hjá og bið eftir vetrinum hafin og
það sama má segja um biðina eftir
jólunum. Ekki er mikið um dýrðir
í mánuðinum og mest spennandi
mánuður ársins að margra mati,
sjálfur desember, tekur við að nóv-
ember greyinu loknum.
Margt má þó finna sér til dund-
urs og skemmtunar í nóvember og
tók Fréttablaðið saman nokkrar
hugmyndir. n
Nóg að gera
í nóvember
Pikklaðu grænmeti
Haustið er rétti tíminn til að pikkla grænmeti til
að eiga fyrir veturinn og er því ekki að ástæðu-
lausu að Bandaríkjamenn halda upp á árlegan
pikkl-dag (National Pickle Day) þann 14. nóvem-
ber. Grænmetið sem pikklað er í nóvember er
svo tilvalið að nota á jólaborðið og því ekki að
taka upp þennan bandaríska sið? Pikklaður
rauðlaukur fer til dæmis sérstaklega
vel með síld og svínakjöti.
Pikklaður rauðlaukur:
4 rauðlaukar
1 dl edik
2 dl sykur
3 dl vatn
Setjið edik, vatn og sykur í pott og látið sjóða
þar til sykurinn er bráðnaður. Skerið rauðlaukinn
í tvennt og svo í sneiðar og komið honum fyrir í
passlega stóru íláti sem hægt er að loka og þolir
hita. Hellið svo edikblöndunni yfir laukinn og
setjið til hliðar.
Leyfið lauknum að standa í að minnsta kosti
fimmtán mínútur, því lengur sem hann fær að
liggja í edikvökvanum því sætari verður hann.
Fagnaðu þakkargjörðardeginum
Íslendingar eru ekki óvanir því að taka upp hinar ýmsu há-
tíðir sem fagnað er í Bandaríkjunum og er þekktasta dæmið
líklega hrekkjavakan. Bandaríkjamenn halda þakkargjörðar-
hátíðina fjórða fimmtudag í nóvember ár hvert.
Þakkargjörðarhátíðin einkennist af sam-
veru og góðum mat og er hin hefð-
bundna þakkargjörðarmáltíð kal-
kúnn með öllu tilheyrandi. Hver
fjölskylda hefur sínar hefðir
með matinn en hin hefð-
bundna máltíð samanstendur
af kalkúni með fyllingu, trönu-
berjasósu, sætkartöflumús og
brúnni sósu. Í eftirrétt er svo
klassískt að hafa einhvers konar
böku (e. pie). Vinsælar eru bæði gras-
kersbaka og eplabaka.
Kalkúnafylling:
40 g smjör
200 g sveppir
2 meðalstórir skalottlaukar
1 sellerístilkur
1 epli
100 g beikon
3 msk. rjómaostur
Timían
Steinselja
Kalkúnakrydd
4 döðlur
Salt og pipar
Hitið smjör á pönnu og steikið sveppi, lauk, sellerí, epli og
beikon í örfáar mínútur. Setjið öll hráefnin í matvinnsluvél
og maukið vel saman.
Hreinsaðu til í fataskápnum
Það er alltaf góð hugmynd að hreinsa til í fata-
skápnum en hún er sérstaklega góð í nóvember.
Sama hvort hreinsunin snúi að því að færa sumar-
fötin til að gera pláss fyrir vetrarfötin eða hreinlega
losa sig við það sem ekki er í notkun er alltaf gott að
fara í gegnum það sem er í fataskápnum.
Við mælum að sjálfsögðu með að koma fötunum
sem þið eruð hætt að
nota í áframhaldandi
notkun annars
staðar. Víðs vegar
er hægt að endur-
selja fötin, svo sem
í Hringekjunni,
Verslanahöllinni
og Extraloppunni,
svo má alltaf koma
fötum í söfnunar-
gáma Rauða kross-
ins.
Farðu í göngutúr
Miklar sveiflur geta verið í veðri í nóvember. Ef
svo heppilega vill til að veðrið er með okkur i liði
getur verið yndislegt að fara í göngutúr, jafnvel
þó að kalt sé úti, rigning eða snjór, er göngutúr-
inn hressandi bæði fyrir líkama og sál. Lykilatriði
er að klæða sig vel og eftir veðri og huga sérstak-
lega að skóbúnaði.
Göngutúr getur verið allt frá einum hring í
kringum húsið til fjallgöngu. Fyrir borgarbúa
er alltaf notalegt að labba niður Laugaveginn
eða ganga hringinn í
kringum Tjörnina en
einnig er gaman að
ganga Esjuna eða um
Nesjavelli.
Skannaðu kóðann og
sjáðu gönguleiðir um
allt land:
Nóvember-nestisátak
Eins og það getur verið gott og gaman að fara út
að borða í hádeginu er yfirleitt betri hugmynd
að taka með sér nesti í skólann eða vinnuna.
Það getur verið afar kostnaðarsamt að kaupa
sér mat á hverjum degi og því getur verið mikill
sparnaður í því að taka með sér nesti. Afgangar
síðan kvöldið áður, smurð samloka með eggjum
og grænmeti eða núðlur geta verið herramanns-
matur í hádeginu.
Þegar fólk tekur með sér nesti getur líka
reynst auðveldara að halda sig við ákveðið
matarplan, borða hollara, ná fleiri eða færri
hitaeiningum, meira prótíni eða hverju því
sem hentar. Ef þú ert með nesti sem þú hefur
undirbúið daginn áður eða
að morgni er ólíklegra að þú
skellir þér á næsta hamborg-
ara- eða pitsustað.
Gangi vel með nestið
má svo til dæmis verð-
launa sig með pitsu-
eða hamborgarastaðar-
ferð einu sinni í viku,
kannski á föstudögum.
40 Helgin 12. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ