Fréttablaðið - 12.11.2022, Síða 84

Fréttablaðið - 12.11.2022, Síða 84
Nóvember er af mörgum talinn erfiðasti mánuðurinn. Hér eru hugmyndir til að stytta sér stundir í nóvember. birna@frettabladid.is Nóvember er ellefti mánuður ársins og er nefndur eftir latneska töluorðinu „novem“, sem þýðir níu á íslensku. Ástæðu nafnsins má rekja til þess að í latneska dagatalinu var nóvember níundi mánuðurinn í árinu en janúar og febrúar voru þeir elleftu og tólftu. Samkvæmt latneska dagatalinu hófst árið þann 1. mars. Nóvember er ekki bara nafn ell- efta mánaðar ársins heldur er Nóv- ember einnig íslenskt karlmanns- nafn. Engin núlifandi manneskja ber nafnið en sex karlmenn eru með nafnið Nóvember skráð sem millinafn í Íslendingabók, þess má geta að allir eru þeir fæddir í nóv- ember. Sumir segja nóvember erfiðasta mánuð ársins. Vissulega er farið að dimma og kólna, haustið að líða hjá og bið eftir vetrinum hafin og það sama má segja um biðina eftir jólunum. Ekki er mikið um dýrðir í mánuðinum og mest spennandi mánuður ársins að margra mati, sjálfur desember, tekur við að nóv- ember greyinu loknum. Margt má þó finna sér til dund- urs og skemmtunar í nóvember og tók Fréttablaðið saman nokkrar hugmyndir. n Nóg að gera í nóvember Pikklaðu grænmeti Haustið er rétti tíminn til að pikkla grænmeti til að eiga fyrir veturinn og er því ekki að ástæðu- lausu að Bandaríkjamenn halda upp á árlegan pikkl-dag (National Pickle Day) þann 14. nóvem- ber. Grænmetið sem pikklað er í nóvember er svo tilvalið að nota á jólaborðið og því ekki að taka upp þennan bandaríska sið? Pikklaður rauðlaukur fer til dæmis sérstaklega vel með síld og svínakjöti. Pikklaður rauðlaukur: 4 rauðlaukar 1 dl edik 2 dl sykur 3 dl vatn Setjið edik, vatn og sykur í pott og látið sjóða þar til sykurinn er bráðnaður. Skerið rauðlaukinn í tvennt og svo í sneiðar og komið honum fyrir í passlega stóru íláti sem hægt er að loka og þolir hita. Hellið svo edikblöndunni yfir laukinn og setjið til hliðar. Leyfið lauknum að standa í að minnsta kosti fimmtán mínútur, því lengur sem hann fær að liggja í edikvökvanum því sætari verður hann. Fagnaðu þakkargjörðardeginum Íslendingar eru ekki óvanir því að taka upp hinar ýmsu há- tíðir sem fagnað er í Bandaríkjunum og er þekktasta dæmið líklega hrekkjavakan. Bandaríkjamenn halda þakkargjörðar- hátíðina fjórða fimmtudag í nóvember ár hvert. Þakkargjörðarhátíðin einkennist af sam- veru og góðum mat og er hin hefð- bundna þakkargjörðarmáltíð kal- kúnn með öllu tilheyrandi. Hver fjölskylda hefur sínar hefðir með matinn en hin hefð- bundna máltíð samanstendur af kalkúni með fyllingu, trönu- berjasósu, sætkartöflumús og brúnni sósu. Í eftirrétt er svo klassískt að hafa einhvers konar böku (e. pie). Vinsælar eru bæði gras- kersbaka og eplabaka. Kalkúnafylling: 40 g smjör 200 g sveppir 2 meðalstórir skalottlaukar 1 sellerístilkur 1 epli 100 g beikon 3 msk. rjómaostur Timían Steinselja Kalkúnakrydd 4 döðlur Salt og pipar Hitið smjör á pönnu og steikið sveppi, lauk, sellerí, epli og beikon í örfáar mínútur. Setjið öll hráefnin í matvinnsluvél og maukið vel saman. Hreinsaðu til í fataskápnum Það er alltaf góð hugmynd að hreinsa til í fata- skápnum en hún er sérstaklega góð í nóvember. Sama hvort hreinsunin snúi að því að færa sumar- fötin til að gera pláss fyrir vetrarfötin eða hreinlega losa sig við það sem ekki er í notkun er alltaf gott að fara í gegnum það sem er í fataskápnum. Við mælum að sjálfsögðu með að koma fötunum sem þið eruð hætt að nota í áframhaldandi notkun annars staðar. Víðs vegar er hægt að endur- selja fötin, svo sem í Hringekjunni, Verslanahöllinni og Extraloppunni, svo má alltaf koma fötum í söfnunar- gáma Rauða kross- ins. Farðu í göngutúr Miklar sveiflur geta verið í veðri í nóvember. Ef svo heppilega vill til að veðrið er með okkur i liði getur verið yndislegt að fara í göngutúr, jafnvel þó að kalt sé úti, rigning eða snjór, er göngutúr- inn hressandi bæði fyrir líkama og sál. Lykilatriði er að klæða sig vel og eftir veðri og huga sérstak- lega að skóbúnaði. Göngutúr getur verið allt frá einum hring í kringum húsið til fjallgöngu. Fyrir borgarbúa er alltaf notalegt að labba niður Laugaveginn eða ganga hringinn í kringum Tjörnina en einnig er gaman að ganga Esjuna eða um Nesjavelli. Skannaðu kóðann og sjáðu gönguleiðir um allt land: Nóvember-nestisátak Eins og það getur verið gott og gaman að fara út að borða í hádeginu er yfirleitt betri hugmynd að taka með sér nesti í skólann eða vinnuna. Það getur verið afar kostnaðarsamt að kaupa sér mat á hverjum degi og því getur verið mikill sparnaður í því að taka með sér nesti. Afgangar síðan kvöldið áður, smurð samloka með eggjum og grænmeti eða núðlur geta verið herramanns- matur í hádeginu. Þegar fólk tekur með sér nesti getur líka reynst auðveldara að halda sig við ákveðið matarplan, borða hollara, ná fleiri eða færri hitaeiningum, meira prótíni eða hverju því sem hentar. Ef þú ert með nesti sem þú hefur undirbúið daginn áður eða að morgni er ólíklegra að þú skellir þér á næsta hamborg- ara- eða pitsustað. Gangi vel með nestið má svo til dæmis verð- launa sig með pitsu- eða hamborgarastaðar- ferð einu sinni í viku, kannski á föstudögum. 40 Helgin 12. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.