Leikhúsmál - 01.03.1963, Síða 22
Kviksandur: Steindór Hjörleifsson og
Helga Backmann
Steindór
Hjörleifsson
Leiklistargagnrýnendur blaðanna í Reykjavík kusu ó
síðastliðnu hausti Steindór Hjörleifsson sem bezta leikara
undanfarandi leikórs fyrir leik hans í hlutverki Jonna í
Kviksandi eftir Michael Gasso. Var Steindóri því veittur
„silfurlampinn", sem er tókn þessa heiðurs. Áður hafði
honum einnig hlotnast „Skólholtssveinninn", fyrir sama
hlutverk.
Steindór er fœddur í Hnífsdal við ísafjarðardjúp hinn
22. júlí 1926. Hann tók ungur að bjóstra við leiklist í
skóla („eins og allir"), lék í skólaleikjum ó ísafirði og
víðar og fann fljótt hjó sér löngun til að glima bœði oft
og mikið við Þalíu. Kom hann gagngert til höfuðstaðarins
til þess að leggja stund ó leiklistarnóm og var þrjú ár
í leikskóla Lárusar Pálssonar. Síðan hefur hann ávallt
verið einn af innstu koppum í búri Leikfélags Reykjavíkur
og leikið í fjöldamörgum hlutverkum þar og í Þjóðleik-
húsinu. Við spurðum hann, hvaða hlutverk honum vœru
minnisstœðust, en hann gaf litið útá það og sagðist
„hafa gaman af öllu". Þó man hann sérstaklega, að hann
átti oft í brösum við hlutverk eldri manna, „karlahlut-
verk", er hann var sjálfur mun yngri að árum, t. d.
Candy gamla í „Mýs og menn" eftir Steinbeck, sem hafði
verið honum einkar hjartfólginn. Jafnframt hefur Steindór
jafnvel leikið í óperu, án þess þó að upphefja einn tón,
því að hann lék mállausan sígaunadreng, Toby, í óper-
unni „Miðillinn" eftir Menotti (1952).
Óskahlutverk? Engin einstök, sem hann langar sérstak-
lega til að fást við, — en „hvern langar svo sem ekki
alltaf að leika Faust, Galdra-Loft og öll þau.........; en
ég er orðinn of gamall fyrir óskahlutverk", segir 36 ára
gamall maðurinn, sem lék „karlahlutverk" þegar hann
var enn yngri.
Við óskum Steindóri hjartanlega til hamingju með
tampaveitinguna og Skálholtssveininn og vonumst til að
eiga eftir að sjá marga stóra leiksigra af hans hálfu enn-
þá, — jafnvel í óskahlutverkum! ólm
18