Leikhúsmál - 01.03.1963, Blaðsíða 56
í DIMMALIMM:
íslenzkir og erlendir listmunir
Gjafavörur
Kinverskt postulin (Antik)
Eftirprentanir mólverka
AÐALSTRÆTI 9, II HÆÐ
Útvegum
allar
fóanlegar
erlendar
bœkur
fljótt
Snffbj ömU ónss on& Co.h.f
Símar 11936 — 10103
Hafnarstrœti 9
FÉLAGSMÖNNUM AB FJÖLGAR
STÖÐUGT VEGNA þESS AÐ
AB BÝÐUR BEZTU BÆKURNAR
OG VEITIR BEZTU KJÖRIN
ALMENNA
BÓKAFÉLAGIÐ
TJARNARGÖTU 16
REYKJAVÍK
Hlé
Einu sinni var það, að kvikmyndaFiús bœjar-
ins ákváðu að vera lýðrœðisleg og spyrja kvik-
myndahúsgesti um það, hvort þeir samþykktú
að hafa hlé á sýningum til þess að geta keypt
sér poppkorn eða ekki. Stór meirihluti kvik-
myndarúsgesta kaus að sjá kvikmynd án þess
að hafa hlé og mylja poppkorn. Samt höfðu
kvikmyndahúseigendur einhverja ótrúlega lýð-
rœðislega meðaumkun með minnihluta at-
kvœðagreiðenda og samþykktu þeim til handa,
þrátt fyrir öll úrslit skoðanakönnunarinnar, að
samt skyldi selja gotterí í hléum á laugardög-
um og sunnudögum, þegar langmesti fjöldinn
sœkir kvikmyndastaðina, en aðeins hvunndags
farið að óskum meirihluta hinna aðspurðu um
að hafa engin hlé en leyfa þeim að sjá kvik-
mynd óbrenglaða. Þar við sat, og engum fannst
neitt athugavert við þessa furðulegu niður-
stöðu atkvœðagreiðslunnar. Síðan hafa nýjar
sœlgœtisgerðir komið fram með nýjar gerðir
sœlgœtis, sem enn má grœða á. Við þessi ný-
mœli virtust rök meirihlutans smámsaman
hverfa algjörlega og voru virt að vettugi, en
minnihlutasjónarmið hljóta blessunarnáð hjá
hinum lýðrœðishyggjandi kvikmyndahúseigend-
um. Verstu sem beztu kvikmyndaverk eru klippt
sundur í miðjunni á hvaða tíma (nema 7-sýn-
ingum) og hvaða degi sem er til þess að geta
selt vissum hópi kvikmyndahúsgesta poppkorn,
súkkulaði og kók. Og fyrri hluti seinni helmings
kvikmyndarinnar samanstendur þannig af rjáli
fólks að leita sœta sinni, gnístandi pappírs-
skrjáfi, ropum og smjatti, þannig að viss hlutí
verksins hlýtur að fara fyrir ofan garð og neð-
an hjá kvikmyndahúsgestum. Þetta er leiðin-
legt smekkleysi. Mœlum vér eindregið gegn
öllum þessum skrjáfandi, smjattandi, gnauð-
andi fjörutíu mínútum, sem hverju hléi fylgja.
élm
52