Leikhúsmál - 01.03.1963, Side 58
Thor Vilhjálmsson:
Um Albee og fleira
i.
Þegar okkur berast leikhúsfréttir frá Bandaríkjunum er
oftast talað um það sem gerist í stóru leikhúsunum á
Broadway. Til er fólk sem taiar fjálglega um söngglamur-
leiki (musicals), og ég veit meira að segja um einn mann
hér á landi sem heldur að þeir teljist til listaverka: Kiss
me Kate my fair lady Annie get your gun. Þessir vitt lýs-
andi vitaturnar heimsmenningarinnar vaxa klófœttir upp
úr kaldrifjuðustu kaupsýslusamsœrum á Broadway þar
sem heiðarleg listrœn sjónarmið eru slegin niður með upp-
ercut, og enginn mœlikvarði er til á velheppnaða sýningu
nema peningar í kassann.
Oflin sem drottna þar hafa mikið fjármagn og kunna
vel til verks að auglýsa upp glamur sitt, og glaumdreif-
ingarkerfi þeirra nœr langt út fyrir Broadway og út fyrir
Bandarikin og hefur jafnvel angalíur í auðteknum bráðum
í hinum smœstu löndum sem þeim stœrri. Þetta sérstaka
gaman nýtur þó mestrar hylli meðal ómúsikalskra þjóða
eins og engilsaxa. Stöku sinnum kemur reyndar fyrir að
snjallir listamenn rangla inn í fabrikkuna og taka hendi
til í von um að smygla listrœnum sjónarmiðum á mark-
aðinn svo sem Jerome Robbins þegar hann lagði sinn
skerf til Westside Story enda er það verk sér á parti á
þessum vettvangi.
Öðrum sinnum eru tekin frœg bókmenntaverk einsog
Oliver Twist, Pygmalion, og þjarkað niður í svað aum-
asta leirburðar og samin músik sem Ameríkumenn kalla
catchy en það táknar að hún vefst um vitundina
einsog flugnapappír sé vafið um hausinn á manni og
maður œtlar aldrei að geta undið ofan af og er svo dög-
um saman að spýta dauðum flugum og lími og sellófani.
2.
(Þessir söngleikir hafa eignazt náttúrlegan vettvang í
yfirgefnum skautahöllum markaðsskálum og ekki sízt
flennistórum fjölleikahúsum þegar hinir sorglegu rauð-
nefjuðu trúðar hafa flutt sig með sína fíla og alifanta,
tígrís og leó sem stökkva gegnum eldhring, og músíser-
andi smárakka. Kjöltutíkakórinn rís á afturfœtur, það er
komið haust, og geltir: Hin gömlu kynni gleymast ei; og
í náttmyrkri eru tjöldin felld, sirkusinn er farinn nœsta
úrgráa morgun, skálinn stendur auður, risavaxinn einsog
rifjahylki Bronkósársins, trölleðlunnar á forsögusöfnum.
En smáfuglar á flótta undan vetrarkulda hafa varla fund-
ið sér skýli þar og œti í gleymdum scelgœtisposum sem
duttu úr þvölum greipum í spenningi loftfimleikanna og
varla eru þeir farnir að smáhoppa glaðlega um þessi
eyðilegu víðerni fyrri en fúmtíbúmpt söngleiksins frá Am-
eríku er komið á vettvang með glamur og hark sitt handa
múgnum).
3.
Höfum við þá gleymt því að Bandaríkin hafa átt mikil
leikskáld? Höfum við gleymt O'Neill? Eða Tennessee Willi-
ams og Arthur Miller? Nei. En þessa stundina stendur til
að hugleiða nýjungar í amerísku leiklistarlífi. Og hér á
landi er orðið tímabœrt að minnast á þessa voðalegu
söngleiki eftir Meyjarflírið í Þjóðleikhúsinu í fyrra, enda
vofir meira yfir af slíku samkvœmt því sem sœnskt blað
upplýsir um daginn að lítill maður frá íslandi hafi komið
út úr hrímþoku við Myntsláttukastala Stokkhólmsborgar
með stóra innkaupatösku og söngleikinn Stop the world
í henni. Stopp stopp stýrimann ....
Á allra síðustu árum hafa komið fram nokkrir nýir leik-
ritahöfundar í Bandaríkjunum sem fara aðrar leiðir en
hinir miklu fyrirrennarar þeirra. Ungir höfundar sem hafa
kannað vettvanginn í leikhúsum Evrópu og orðið fyrir
áhrifum af miklum endurskoðunarfrömuðum þar. Það er
ekki langt síðan fyrstu leikrit manna einsog Becketts og
og lonesco voru sýnd fyrir auðum bekkjum í litlum leik-
húsum og eingöngu hugrekki og hugsjónaeldmóði gáf-
aðra leikhúsmanna og þrautseigju að þakka að tókst að
rjúfa öryggismúra vanahugsunar sem verndar tómlœtið
og letina í hugarbólinu og knýja allsherjarendurskoðun
fram í leikhúsinu, rífa hofpresta þess upp af sleni og
opna húsin fyrir nýrri list. Nýrri list sem þröngvar fram
spurningum um stöðu mannsins í veröldinni, manninn
sjálfan, samfélagið, heiminn,- líf mannsins í heiminum.
Max Frisch sagði mér að sér vœri sem leikritahöfundi
mest í mun að vekja spurningar en ekki leysa fólk undan
þeim með því að svara. Og hann teldi sig hafa náð full-
komnum árangri sem leikritahöfundur ef sér tœkist ein-
hverntíma að forma spurningu þannig að áhorfendur
54