Fréttablaðið - 16.12.2022, Side 8
Allt hefur það
einkennst af fúski
og frændhygli.
Jón Þórisson,
forstjóri Torgs
Gjafakort
í Bæjarbíó
er góð gjöf
Öllum gjafabréfum 15.000 kr
og hærri fylgja 2 frídrykkir
Gerum tilboð í stærri fyrirtækja
pantanir á gjafakort@bbio.is
Allar nánari upplýsingar
í síma 665-0901
Í HJARTA HAFNARFJARÐAR
lovisa@frettabladid.is
SAMFÉLAG Ákveðið var í gær að
neyðarskýlin verði opin í allan dag
en spáð hefur verið miklum kulda. Í
tilkynningu frá borginni kom fram
að neyðaráætlun hefði verið virkjuð
og að samkvæmt henni væru skýlin
opin allan sólarhringinn þegar
veðurskilyrði eru á þann veg að ein-
staklingum sé hætt við ofkælingu
eða alvarlegum slysum.
„Það er mjög mikilvægt að við
séum ekki að auka á vanda fólks með
því að gera ekki neitt,“ segir Heiða og
bendir þó á að ríkið hafi stigið inn
og fjármagnað neyslurýmið Ylju
sem hefur verið starfandi á árinu, en
það er fyrsta opinbera neyslurýmið
sem er tilraunaverkefni í eitt ár. Það
er nú sprungið að sögn deildarstjóra
Rauða krossins sem rekur verkefnið.
„Við erum mjög þakklát fyrir að
þau komu inn í verkefnið og það var
mikilvægt að þau sem bera ábyrgð á
heilbrigðisþjónustu tækju það að sér.
Þetta er eitthvað sem við unnum að
í langan tíma og þarf að halda áfram
að vinna að,“ segir Heiða en samn-
ingurinn rennur út í mars og rýmið
er í raun bara bíll.
„Nú er samtalið um það hvernig
þetta á að vera ef við ætlum að halda
áfram. Þörfin er greinileg og örygg-
ið meira og smitum og veikindum
hefur fækkað.“ n
Neyðarskýlin opin í allan dag
Kuldinn getur
verið hættu-
legur heimilis-
lausu fólki.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Spurningar vakna um jafn-
ræði vegna úthlutunar ríkis-
styrks til fjölmiðlunar eftir
staðsetningu. Forstjóri Torgs
telur úthlutunina ólögmæta.
bth@frettabladid.is
ALÞINGI „Fyrst og fremst er maður
sleginn yfir því hvernig þetta mál
ber að og hvernig haldið hefur verið
á því af hálfu fjárlaganefndar og
Alþingis. Allt hefur það einkennst
af fúski og frændhygli,“ segir Jón
Þórisson, forstjóri fjölmiðlasam-
steypu Torgs.
Vandræðagangur hefur orðið á
framgangi ráðstöfunar 100 millj-
óna króna ríkisstyrks frá Alþingi
eftir umsókn N4 á Akureyri um
fjárstuðning. Fjárlaganefnd hefur
nú falið ráðherra að útfæra greiðsl-
urnar en ef skilyrt verður áfram að
féð fari til fyrirtækja úti á landi spyr
það spurninga um jafnræði.
„Það er áleitið að með þessu
ráðslagi sé brotinn réttur á öðrum
einkareknum miðlum. Við lítum
svo á að þetta fyrirkomulag fari
gegn jafnræðisreglu stjórnarskrár
og gangi að auki í berhögg við fjór-
frelsisákvæði EES-samningsins og
sé þar með ólögmætt. Gangi þetta
eftir munum við því leita réttar
okkar og ég býst við að aðrir miðlar
sem beittir eru þessum órétti íhugi
það sama,“ segir Jón.
Fjórfrelsið vísar til frjáls f læðis
vöru, fólks, þjónustu og fjármagns
og er grundvöllur innri markaðar
ESB og EES. Hafsteinn Dan Krist-
jánsson, sérfræðingur í Evrópu-
rétti, segist ekki hafa skoðað þetta
tiltekna mál en ef upp komi vafamál
sé fyrsta skref að kanna lögmæti
úthlutunarinnar, hvort sérstakar
ríkisstyrkjareglur eigi við, hvaða
skilyrði séu fyrir ríkisstuðningnum.
„Ef upp koma deilur enda svona
mál yfirleitt hjá ESA sem úrskurðar,“
segir Hafsteinn Dan.
Þá hefur vakið athygli að María
Björk Ingvadóttir, framkvæmda-
stjóri N4 sem sótti um styrkinn
til fjárlaganefndar, er mágkona
Stefáns Vagns Stefánssonar í meiri-
hluta fjárlaganefndar sem þó vék
ekki sæti þegar hann studdi styrk-
veitinguna. María Björk sagðist
upptekin í gær þegar Fréttablaðið
falaðist eftir viðbrögðum.
Óli Björn Kárason, þingmaður
Sjálfstæðisf lokksins, segist and-
vígur því að beinir ríkisstyrkir séu
veittir til sjálfstæðra fjölmiðla.
„Ég lít svo á sem meginvandinn
í þessu máli sé Ríkisútvarpið. Á
meðan menn jafna ekki leikinn
milli Ríkisútvarpsins og einka-
rekinna fjölmiðla erum við með
ólíðandi stöðu,“ segir Óli Björn.
Þingmaðurinn segir að fjölmiðill
sem þiggi ríkisstyrk verði þar með
háður fjárveitingarvaldi þingsins.
„RÚV nýtur margvíslegra for-
réttinda er kemur að peningalegu
umhverfi og þetta ástand hefur
leitt til ríkisstyrkja sem ég er á móti.
Ég vil að tekið verði á sjálfu höfuð-
meininu, sem er ójöfn samkeppni
sjálfstæðra einkarekinna fjölmiðla
við ríkisrekinn fjölmiðil.“
Tekið skal fram að Fréttablaðið er
í eigu Torgs. n
Boðar kærumál vegna
landsbyggðarstyrkjamáls
Stefán Vagn Stefánsson vék ekki sæti þegar styrkveitingin var afgreidd þrátt fyrir vensl. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
kristinnhaukur@frettabladid.is
ÚKRAÍNA Brú yfir Molotjna er stór-
skemmd eftir sprengjuárás Úkraínu-
manna. Þetta er ein af fjölmörgum
árásum sem Úkraínumenn hafa gert
við borgina Melítopol, í Saporísja-
héraði, sem Rússar hertóku í mars
síðastliðnum.
Árásirnar eru taldar bera merki
þess að Úkraínumenn opni þriðju
víglínuna. Eftir að Kherson-borg féll
þeim í skaut sækja þeir einnig fram
við borgina Kreminna í Lúhansk-
héraði en Rússar sækja enn að Bak-
mút í Donetsk.
Takist Úkraínumönnum að ná
Melítopol fá þeir aðgang að Asovs-
hafi, austan við Krím. Einnig myndu
þeir ná að loka á mikilvæga birgða-
flutningaleið Rússa til suðurhluta
Kherson-héraðs, sem þeir stjórna
enn, og Krímskaga, sem var hertek-
inn árið 2014. Myndi þetta gera sókn
inn í þessi svæði fýsilegri á komandi
mánuðum.
Hins vegar hefur varnarmála-
ráðherra Úkraínu, Oleksí Resníkov,
varað við því að Rússar hugi á stór-
sókn á komandi ári, í febrúar eða
jafnvel janúar. Ætli Pútín að nota
um helming þeirra 300 þúsund
nýliða sem eru í hernum til þess að
bera hana uppi. Sagði hann ekki hvar
hann byggist við því að þessi stór-
sókn myndi gerast.
Á sama tíma eru Rússar einnig
að reyna að fá f lugskeyti frá Íran,
en þeirra eigið forðabúr er ört að
klárast eftir langvarandi árásir á inn-
viði og almenna borgara í Úkraínu.
Hefur Pútín heitið klerkastjórninni
„ómældri hernaðaraðstoð“ í staðinn
en ekki er vitað hvað í því felst.
Bandaríkjamenn ætla hins vegar
að útvega Úkraínumönnum svo-
kallað Patriot-loftvarnarkerfi, sem
talið er það besta í heiminum. En
Bandaríkjamenn hafa þegar látið
Ísraelsmenn hafa slíkt kerfi til að
verjast skeytum frá Palestínu. Úkra-
ínumenn hafa lengi óskað eftir Pat-
riot-kerfinu. n
Úkraínumenn undirbúa árás á Melítopol
Oleksí Resníkov,
varnarmálaráð-
herra Úkraínu
6 Fréttir 16. desember 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ