Fréttablaðið - 16.12.2022, Side 28
Ég er sérstaklega
glaður yfir að vera
að bæta minni sögu við
sögu hússins sem er
næstelsta hús við Lauga-
veginn og ekki síður yfir
að hafa fært líf inn í það á
ný.
Mér finnst einstak-
lega gaman þegar
fólk kaupir sér ísinn
okkar í fyrsta sinn,
smakkar og kemur svo
aftur nokkrum mínút-
um síðar til að fá sér
meira.
Sæta húsið á Laugavegi 6
hefur þegar fest sig í sessi
sem uppáhaldsísbúð margra
síðan þar var opnað í maí
2021. Auk þess að bjóða upp
á ís er hægt að fá vel úti-
látinn morgunverð og úrval
af kaffi og öðrum heitum
drykkjum.
Mateusz Przemyslaw Niewiara,
eigandi Sæta hússins, segir það
hafa komið sér á óvart hvað
Íslendingar eru æstir í ís, meira að
segja í vetrarhörkum.
Mateusz kom til Íslands frá
Póllandi fyrir sex árum með próf
úr veitingaskóla upp á vasann og
löngun til að búa á Íslandi. Eftir að
hafa gegnt ýmsum störfum í veit-
ingageiranum ákvað hann að prófa
að opna ísbúð þó að hann hefði
aldrei séð fyrir sér að það ætti fyrir
honum að liggja.
„Ég vissi frá unga aldri að það
væru örlög mín að gefa fólki að
borða,“ segir Mateusz en bætir við:
„En mér datt aldrei í hug að ég ætti
eftir að reka ísbúð. Draumur minn
hefur alltaf verið að eiga og reka
minn eigin veitingastað eða kaffi-
hús og ég endaði með ísbúð sem
er líka kaffihús svo draumurinn
hefur ræst.“
Sæta húsið og sögulega
Mateusz opnaði Sæta húsið 13. maí
2021 og segir nafnið koma frá
staðnum sjálfum, gamla húsinu að
Laugavegi 6, sem hann kallaði alltaf
sæta húsið með sjálfum sér.
„Ég elskaði þetta hús frá fyrstu
sýn og stóðst ekki freistinguna að
kalla ísbúðina þessu nafni,“ segir
hann og þau sem hafa séð húsið
hljóta að taka undir enda er það
einstaklega krúttlegt, fyrir utan
hvað staðsetningin er sérstaklega
góð.
„Ég gekk iðulega fram hjá þessu
húsi og það stóð alltaf tómt. Þetta
gamla, fallega hús í miðjum mið-
bænum í Reykjavík. Ég skildi aldrei
hvernig það gat eiginlega verið og
þegar mér datt í hug að opna ísbúð
sá ég strax að þetta væri fullkomið
hús fyrir slíka starfsemi.“
Húsið á sér langa sögu, var
byggt árið 1871 og hefur staðið við
Laugaveginn síðan. Það hefur hýst
margvíslega starfsemi og meðal
annars var lítið kaffihús opnað þar
árið 1920 sem varð meðal annars
griðastaður skálda og listamanna.
Það var ekki hvað síst sagan sem
dró Mateusz að húsinu.
„Ég er sérstaklega glaður yfir að
vera að bæta minni sögu við sögu
hússins sem er næstelsta hús við
Laugaveginn og ekki síður yfir að
hafa fært líf inn í það á ný.“
Sæta húsið brátt í Kópavogi
Mateusz segir reksturinn ekki alltaf
hafa verið auðveldan enda var Sæta
húsið opnað í miðjum heims-
faraldri. „Það var á köflum erfitt,
sérstaklega í byrjun,“ viðurkennir
hann en bætir við að síðan hafi allt
verið upp á við. „Já, það gengur allt
miklu betur núna og var mjög gott
í sumar. Ég ætla að bæta við öðru
Sætu húsi í Kópavogi bráðlega.“
Ísrúllur falla í kramið
Sæta húsið var fyrst til að bjóða
upp á hinn vinsæla ísrétt ísrúllur
hér á landi en hann er upprunninn
í Taílandi og er mjög þéttur ís sem
er búinn til á staðnum á kaldri
málmplötu, síðan er honum rúllað
upp eins og pönnuköku og má svo
setja ávexti, sósur og fleira með.
Ísrúllur njóta mikilla vinsælda um
allan heim.
„Það sem gerir ísrúllurnar ein-
stakar er að ísinn er búinn til frá
grunni í hvert sinn. Þannig að fólk
getur komið með sínar eigin bragð-
hugmyndir og við gerum okkar
besta til að uppfylla þær. Ég er
stoltur af því að hafa kynnt þessa
nýjung fyrir Íslendingum og langar
auk þess að geta þess að allur
ísinn okkar er gerður úr hreinum,
íslenskum 36% feitum rjóma.“
Og þá er hann ekki síður glaður
þegar ísinn fellur í kramið.
„Mér finnst einstaklega gaman
þegar fólk kaupir sér ísinn okkar
í fyrsta sinn, smakkar og kemur
svo aftur nokkrum mínútum síðar
til að fá sér meira. Við seljum líka
gjafakort sem eru mjög skemmti-
leg gjöf fyrir krakka sem finnst
ekki síður gaman að sjá okkur búa
ísinn til eftir kúnstarinnar reglum
en að borða hann svo á eftir.“
Mateusz finnst Íslendingar mjög
duglegir að kaupa og borða ís, jafn-
vel í frosti og snjó.
„Í fyrra var Covid svo ég fékk
ekki nægilega skýra mynd af
neysluvenjum Íslendinga kringum
ís en núna seljum við mikið af ís þó
svo komið sé frost og vetur.“
Hann segir að á kaffihúsinu sé
ekki bara hægt að fá fjölbreytta
ísrétti heldur ýmiss konar aðrar
veitingar.
„Við erum til dæmis með
búbbluvöfflur, bæði sætar og
líka ósætar með ýmsu áleggi. Við
opnum klukkan átta á hverjum
morgni og eru með vel útilátinn
morgunverð, við erum líka með
úrval af heitum drykkjum og
gerum gott kaffi, líka koffein-
laust fyrir þau sem það kjósa. Svo
erum við með gómsætar kökur og
sitthvað fleira og auðvitað vegan
valkosti,“ segir Mateusz sem tekur
á móti gestum í sæta Sæta húsinu
neðst á Laugaveginum milli átta á
morgnana og tíu á kvöldin.
Nánari upplýsingar á saetahusid.is
Fyrst til að bjóða upp á ísrúllur á Íslandi
Sæta húsið bauð fyrst upp á
ísrúllur sem er ísréttur úr ís sem er
búinn til á staðnum og stundinni.Húsið er næstelsta húsið við Laugaveginn og hefur hýst fjölbreytta starfsemi, meðal annars var þar rekið kaffihús árin 1920–1928. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Mateusz óraði aldrei fyrir því að hann myndi opna ísbúð á Íslandi en hann er alsæll með velgengni Sæta hússins.
8 kynningarblað 16. desember 2022 FÖSTUDAGURÍS OG ÍSBÚÐIR