Fréttablaðið - 16.12.2022, Side 29
19. desember
mánudagur
n Hips Don’t Lie með Nadiu
kl. 18.30
Kramhúsið
Stressið á það til að safnast
saman í mjöðmunum. Komdu í
mýkjandi útrásartíma sem gefur
sól í hjarta.
n Jólagjafainnpökkunar
námskeið kl. 19.00
Samtökunum ’78, Suðurgötu 3
Tilvalið að koma með jóla-
gjafirnar og pakka þeim inn til
að spara sér tíma í jólaösinni.
Komið með eigin skæri. Borðar,
maskínupappír og fleira skraut
í boði.
20. desember
þriðjudagur
n Jólatónleikar Heimilistóna –
aukatónleikar kl. 21.00
Hús Máls og menningar
Þær Elva Ósk, Katla Margrét,
Ólafía Hrönn og Vigdís flytja
frumsamin jólalög af plötunni
Rugl góð jólalög, ásamt fleiri
góðum lögum sveitarinnar.
21. desember
miðvikudagur
n Búbblur og Beyoncé kl. 19.30
Kramhúsið
Freyðivínstími við femínískan
fagurgala. Fátt jólalegra. Kenn-
ari er Sólveig Ásgeirsdóttir.
n JólaHVAÐ! – Grinchmas
kl. 20.00
Gaukurinn
Jóladiss, -fuss og -hnuss.
Skemmtikraftar reyta af sér
spjarirnar og fremja alls kyns
holdkúnstir. Fáðu frið frá jóla-
börnum á öllum aldri eina heita
kvöldstund.
22. desember
fimmtudagur
n Jólabarsvar
kl. 21.00
Lebowskibar
Verðlaun veitt
fyrir þrjú efstu
sætin auk jóla-
peysuverðlauna.
Hvað er um að vera í næstu viku?
Fyrsti jólasveininn af þrettán kom
til byggða aðfaranótt mánudags-
ins síðastliðins og sjá mátti marga
skó í gluggum íslenskra heimila á
sunnudagskvöldið. En hvaðan ætli
þessi siður komi og af hverju eru
jólasveinarnir þrettán?
Íslensku jólasveinarnir eru
upprunalega jólavættir af trölla-
kyni og voru upphaflega notaðir
til að hræða börn síðustu dagana
fyrir jól. Grýla og Leppalúði eru
foreldrar þeirra og jólakötturinn
húsdýrið þeirra. Á 20. öldinni
breyttust sveinarnir úr skítugum
lopalúðum og runnu saman við
hinn alþjóðlega jólasvein og í
dag eru þeir ekki sömu ógurlegu
tröllin eins og þeim er upphaflega
lýst. Ef til vill fengu þeir sturtu og
þvottavél í hellinn.
Hugmyndir um útlit jóla-
sveinanna hafa verið breytilegar
í aldanna rás. Í fyrstu er þeim líkt
við tröll. Lýsingin á þeim var sú að
þeir væru klofnir upp í háls, með
klær fyrir fingur, kringlótta fætur
og engar tær. Þeir voru sagðir illir
að eðlisfari og líkir púkum og
lifðu mest á blótsyrðum manna og
óvönduðum munnsöfnuði. Talað
var um að þeir væru rógsamir og
þjófóttir, sérstaklega á börn. Síðar
Snyrtilegri sveinar í tímans rás
urðu þeir líkari mannsmynd en
stórir, ljótir og luralegir.
Smátt og smátt tóku þeir þó
á sig eðlilegri mannsmynd og
líklegt er að myndir Tryggva
Magnússonar við jólasveinakvæði
Jóhannesar úr Kötlum endur-
spegli svo til hugmyndir manna
um þá á þessu síðasta skeiði. Í því
kvæði eru þeir þrettán taldir upp
sem heimsækja börn og gefa í
skóinn. Þeir verða vinir barnanna,
færa þeim gjafir, syngja fyrir þau
og segja sögur sem þeir hefðu
aldrei gert hér áður fyrr. Kaup-
mannsstéttin hefur væntanlega
beint og óbeint stuðlað mjög
að þessu með því að nota þá í
jólaauglýsingum að erlendri fyrir-
mynd. Þessi þróun hófst fyrst í
bæjum, en miklu seinna í sveitum.
Að gefa gott í skóinn er það sem
hefur gert jólasveinana vinsæla
hjá yngri kynslóðinni en dæmi
eru þó um að hinir fullorðnu
reyni líka að fá gott í skóinn. n
Late Night Fiesta Eldhúsið okkar er opið til
miðnættis föstudaga og laugardaga
treslocos.is
Þessir láta sjá sig í Árbæjarsafni fyrir jólin. MYND/AÐSEND
Gamla góða Grýla
Nafn Grýlu kemur fyrst fram í
Snorra-Eddu þar sem taldar eru
upp tröllkonur:
Skal ek trollkvenna
telja heiti:
Gríðr ok Gnissa,
Grýla, Brýja,
Glumra, Geitla,
Gríma ok Bakrauf,
Guma Gestilja,
Grottintanna.
Einnig er til hellingur af Grýlu-
kvæðum og þau elstu eru talin
vera frá 13. öld. Þá má einnig nefna
Grýluvísu sem sem varðveitt er í
Íslendingasögu Sturlu Þórðarsonar
sem Loftur Pálsson kvað rétt fyrir
Breiðabólsstaðabardaga í Fljótshlíð
árið 1221. Vísa Lofts hljóðar svo:
Hér fer Grýla í garð ofan
og hefr á sér
hala fimmtán.
n Skrítin staðreynd vikunnar
ALLT kynningarblað 5FÖSTUDAGUR 16. desember 2022