Morgunblaðið - 04.08.2022, Qupperneq 54
54 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 2022
www.danco.is
Heildsöludreifing
Ný sending af gjafavöru
Vefverslun fyrir fyrirtæki og verslanir á www.danco.is
Glerbox Dagmar
svart 23x13 cm
Viðarbakki m/járnhöldum
50x24 cm
Metal skál svört Cora
50x18 cm
Mangó Viðarkubbur Party
10 cm
Járnklukka Moon
svört 38 cm
Járnklukka Merkúr
grá 56 cm
Tic tac toe
21x21 cm
Teljósastjaki-Gler
Strá 10x13 cm
Viðarkertastjaki
Tycho
10x15 cm
Borðlampi
Monkey gold
18x28 cm
Karfa-Tobi
Natur/Svart
30x25 cm
Glervasi Svartur
18x80 cm
Skurðarbretti Toast
43x18 cm
Skurðabretti Bread
46x17 cm
Teljósastjaki-Gler
Strá 8x8 cm
Karfa-Tobi
Natur/Svart
33x28 cm
50 ÁRA Ásta Hlín er Reykvíkingur,
ólst upp í Árbænum og býr þar. Hún
er ljósmóðir og starfar í Björkinni.
„Ég er í kvennakórnum Léttsveit
Reykjavíkur og áhugamálin fyrir ut-
an kórsöng eru allskonar útivist, m.a.
göngur, gönguskíði og utanvega-
hlaup. Ég er einnig mikil áhuga-
manneskja um íslenska náttúru og
fjallaferðir.“
FJÖLSKYLDA Eiginmaður Ástu
Hlínar er Daði Már Kristófersson, f.
1971, prófessor við HÍ. Börn þeirra
eru Sólveig, f. 1997, Margrét Björk, f.
2000, Kolbeinn Atlas, f. 2006, og
Gunnhildur, f. 2009. Sonur Sólveigar
er Vindar Orri, f. 2021. Foreldrar
Ástu Hlínar eru hjónin Elísabet
Björk Snorradóttir, f. 1945, og Kol-
beinn Ólafur Indriðason, f. 1943. Þau
eru búsett í Árbænum.
Ásta Hlín Ólafsdóttir
Lilja Dís Sigurðardóttir og Regína
Diljá Rögnvaldsdóttir héldu tombólu
við Nettó á Akureyri til styrktar flótta-
fólki og afhentu Rauða krossinum við
Eyjafjörð afraksturinn, 17.854 krónur.
Rauði krossinn þakkar þeim kærlega
fyrir framlag þeirra í þágu mannúðar.
Hlutavelta
Til hamingju með daginn
sem var leiðinlegt því ég hafði orðið
Evrópumeistari 2018 með fisk sem
var öruggur til að fá verðlaun og ég
ætlaði með hann á heimsmeistaramót
í Bandaríkjunum, en ég seldi hann þá
til safnsins í Perlunni.“
Nú vinnur Haraldur hjá Akur-
aður meistaraflokkur og til að hljóta
heimsmeistaratitilinn þurfti að vinna
þann flokk. „Ég vann því alla titla
nema heimsmeistaratitilinn, en svo
fékk ég bráðaofnæmi fyrir lökkun og
þeim efnum sem ég notaði í fiskana.
Ég þurfti því snögglega að hætta,
H
araldur Óskar Ólafs-
son er fæddur 4. ágúst
1962 á Akureyri og
ólst upp í þorpinu.
„Ég er þess vegna
Þórsari og spilaði fótbolta með Þór
frá því að ég var 9 ára og til 13-14 ára
aldurs en sneri mér þá að ólymp-
ískum lyftingum sem ég æfði og
keppti í í 15-18 ár með sæmilegum
árangri. Nokkur ár þar á undan voru
fimleikar mikið uppáhald hjá mér.“
Haraldur varð fyrsti Akureyring-
urinn til að verða Norðurlandameist-
ari í íþróttum, þegar hann vann í ung-
lingaflokki í ólympískum lyftingum
1980. Hann varð alls þrívegis
Norðurlandameistari í unglinga-
flokkum, síðast árið 1982. Þá átti
hann Norðurlandamet í jafnhend-
ingu í fimm ár auk þess sem hann
jafnaði metið í samanlögðum árangri
á sínum tíma. Hann var valinn
íþróttamaður Akureyrar bæði 1980
og 1981. „Mér bauðst síðan að keppa í
lyftingum fyrir klúbb í Svíþjóð og ég
var þar í ár og við ferðuðumst vítt og
breitt um landið til að keppa.“
Haraldi tókst ekki að verða
Norðurlandameistari í flokki fullorð-
inna, en hann lenti tvisvar í öðru sæti,
m.a. 1989 þegar mótið fór fram á
Akureyri. Það varð hann síðasta lyft-
ingamót. Auk þess setti hann mörg
Íslandsmet á ferlinum. „Þetta var
mjög skemmtilegur tími og lyftingar
voru vinsælar þá. Flóran í íþróttum
var ekki eins stór þá og núna og ég er
þakklátur fyrir að hafa dottið inn í
íþróttina á þessum tíma.“
Þegar Haraldur kom heim frá Sví-
þjóð fór hann í Iðnskólann á Akur-
eyri, lærði þar tækniteiknun og starf-
aði sem slíkur hjá Pósti og síma í 10
ár. Hann fékk síðan áhuga á upp-
stoppun upp úr 1998 sem hann starf-
aði síðan við í rúm 20 ár. Hann ein-
beitti sér að því að stoppa upp fiska.
„Ég hafði yfirdrifið nóg að gera við
það og fór því lítið að stoppa upp
fugla.“ Haraldur keppti líka með góð-
um árangri í uppstoppun fiska. Hann
varð Norðurlandameistari og Evr-
ópumeistari í tvígang í greininni og
sigraði í atvinnumannaflokki á
heimsmeistaramóti í Bandaríkj-
unum, en efsti flokkurinn er svokall-
eyrarbæ í þjónustukjarnanum Þrast-
arlundi. „Svo er ég með annan fótinn
í uppstoppun fugla og fleiri dýra, en
þá nota ég ekki þessi leysiefni sem ég
notaði í fiskana. Ég er allur að koma
til, enda komin þrjú ár síðan ég fékk
bráðaofnæmið.“
Áhugamál Haraldar hafa verið
margvísleg í gegnum tíðina. „Ég hef
alltaf þurft að passa mig á að fá ekki
áhuga á neinu því ég fer alltaf alla
leið með það. Ég stundaði skotveiðar
í rúm 20 ár en allt í einu fékk ég nóg
og hætti og hef ekki skotið úr byssu í
12-13 ár. Ég ætla að reyna að fara á
gæs í haust en veit ekki hvort það
tekst.
Árið 2006 stækkaði fjölskyldan
mín um einn þegar við fengum okkur
husky-hvolp sem var nefndur Hektor
og síðar soninn sem hét Nanook
ásamt nokkrum öðrum husky-
hundum, Aski, Þoku og Tjakki og
Láka sem var pointer-hundur. Fór-
um við margar ógleymanlegar
hundasleðaferðir um öll fjöll sem um-
kringja Eyjafjörðinn og áttum góðar
stundir saman í þriggja manna tjald-
inu mínu upp til fjalla í öllum veðrum.
Haraldur Ólafsson uppstoppari – 60 ára
Ljósmynd/Heiða.is
Skemmtilegasta sportið Haraldur ásamt móður sinni, 75 ára, og 20 husky-hundar settir fyrir sleða í Hlíðarfjalli.
Fer alla leið með áhugamálin
Hjónin Haraldur og Erna. Börnin Örn og Sonja.
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Ástríða þín er vakin og því mun
annað fólk eiga óvenju auðvelt með að hrífa
þig með sér næstu vikurnar. Taktu hlut-
unum samt með ró og kláraðu það sem
skiptir máli.
20. apríl - 20. maí +
Naut Félagslegir hæfileikar þínir gefa orð-
inu „heillandi“ nýja merkingu. Leitaðu
hjálpar eða hafðu samband við sérfræðing
svo hlutirnir séu rétt gerðir strax.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Láttu liðið vera liðið í sam-
skiptum við aðra og hafðu stjórn á skapi
þínu. Sinntu þínum nánustu af alúð.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Það er óvitlaust að hafa aðra áætl-
un í bakhöndinni ef sú fyrri skyldi bregðast.
Gefstu ekki upp því þér verður þakkað þótt
síðar verði.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þú þarft að beita hugkvæmni þinni til
þess að hlutirnir fari að ganga á nýjan leik.
Aðrir búa yfir hæfileikum sem fullkomna
þína.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Planaðu ævintýrið þitt nú á eins
ástríðufullan máta og þér er unnt. Bæði
viðhorfin eru þroskandi, það er undir þér
komið hvað þú telur þig ráða við.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Það er einhver ruglingur í loftinu í dag
og því ættirðu ekki að standa of fast á þínu
í samskiptum við aðra. Mundu að flas er
ekki til fagnaðar.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Það getur reynt á taugarnar
að ná samkomulagi við aðra jafnvel þótt
um einföldustu smáatriði sé að ræða.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Hvað er betra en stund í góðra
vina hópi? Leystu úr ágreiningi á rökréttan
hátt með uppbyggilegum samræðum.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Vertu ekki of einþykkur en
hlustaðu á ráðleggingar annarra. Margt
smátt gerir eitt stórt. Tilfinningagreindin
leiðir þig ofar öllu augljósu og í átt að
snilldarlausn.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Líkamleg útrás styrkir þig.
Fylgstu með athöfnum þínum af sömu
gaumgæfni og þú myndir gera ef um mik-
ilvæg viðskipti væri að ræða.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Það eru ýms tækifæri sem bíða þín.
En maður getur farið mun lengra en tak-
markanir og aldur segja fyrir um.