Morgunblaðið - 04.08.2022, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 2022
Eldri borgarar á
Norður- og Austurlandi:
Sérstök aðventuferð til
Kaupmannahafnar
11.- 15. desember 2022
Brottför með Niceair frá Akureyrarflugvelli á sunnudagsmorgni
og flogið til baka síðdegis á fimmtudegi – 4 nætur/5 dagar.
Verð: 199.000 kr. á mann í tvíbýli*
*Aukagjald v/gistingar í einbýli er 38.500 kr.
Innifalið eru flug með Niceair, skattar, gisting,
m/morgunverði á Hotel Skt. Petri 5*, rútuferðir,
kvöldverðir og annað samkvæmt dagskrá.
! ! ! ! !
Niko ehf | Austurvegi 6 | 800 Selfoss | kt. 590110-1750
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Ferðaskrifstofu eldri borgara í
símum 783-9300 og 783-9301, einnig með tölvupósti í
gegnum netfangið hotel@hotelbokanir.is og á
www.ferdaskrifstofaeldriborgara.is
Gist er á hinu glæsilega
Hotel Skt. Petri 5* sem
er staðsett í miðborg
Kaupmannahafnar.
Skemmtileg og fjölbreytt dagskrá
Sunnudagur: Flogið með Niceair snemma morguns og lent í Kaupmannahöfn
á hádegi. Gisting á hinu glæsilega Hotel Skt. Petri í miðborg Kaupmanna-
hafnar. Um kvöldið er snæddur ekta danskur matur á veitingastaðnum Karla
sem er í göngufæri frá hótelinu.
Mánudagur: Skoðunarferð um gamla bæinn með Ástu Stefánsdóttur
leiðsögumanni sem gengur um slóðir Fjölnismanna og fræðir farþega um
sögu Kaupmannahafnar.
Þriðjudagur: Heimsókn í Jónshús, þar sem staðarhaldarinn Halla
Benediktsdóttir tekur á móti hópnum og fræðir um sögu hússins. Um kvöldið
er snæddur „Julefrokost“ í Tivoli á veitingastaðnum Grøften. Eftir kvöld-
verðinn er hægt að skoða sig um í Tivoli sem hefur verið breytt í „Juleland“ á
Aðventunni.
Miðvikudagur: Sigling um síkin og Christianshavn meðan hljómsveit
Michael Bøving og félaga leikur jazztónlist og vanalega ríkir mikil stemning í
þessum ferðum.
Fimmtudagur: Brottför frá hóteli á Kastrup flugvöll fyrir hádegi og beint flug
þaðan til Akureyrar laust eftir hádegi.
Fararstjóri: Sigurður K. Kolbeinsson
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Nýjasta og glæsilegasta skemmti-
ferðaskip heimsflotans, Norwegian
Prima, heldur innan skamms í
jómfrúarferð sína. Ferðinni er
heitið til Íslands þar sem til stend-
ur að gefa skip-
inu nafn við há-
tíðlega athöfn á
Skarfabakka í
Sundahöfn í
Reykjavík 27.
ágúst næstkom-
andi. Guðmóðir
skipsins, hin
heimsþekkta
söngkona Katy
Perry, mun gefa
því nafn og taka lagið við athöfn í
Hörpu sama dag.
Bandaríska poppstjarnan og
leikkonan Katy Perry er 37 ára
gömul og sló í gegn fyrir alvöru ár-
ið 2008 með laginu I Kissed a Girl.
Hún er einnig þekkt fyrir dóm-
arastörf í sjónvarpsþættinum Am-
erican Idol. Maður Katy Perry er
ekki síður þekktur, leikarinn Or-
lando Bloom. Þau eiga dótturina
Daisy Dove Bloom. Reiknað er
með því að öll fjölskyldan komi
hingað til lands í tilefni af nafn-
gjöfinni.
„Uppáhaldsfríin mín með fjöl-
skyldunni eru á sjónum,“ er haft
eftir Katy Perry. „Á hverjum
morgni er útsýnið nýtt og stór-
kostlegt,. Ég er afar ánægð með að
fá að gefa henni nafn, senda henni
góða strauma og ég er himinlifandi
yfir því að þetta nýja, fallega og
hátæknivædda skip hefji siglingar
og gefi mörgum fjölskyldum kost á
besta fríi ævinnar.“
Atlantik ehf. hefur undirbúið
komu Norwegian Prima til Íslands.
Gunnar Rafn Birgisson, eigandi
fyrirtækisins, segir að undir-
búningurinn hafi staðið yfir í á
annað ár, enda þarf að mörgu að
hyggja þegar svona stór atburður
er skipulagður. Reiknað er með því
að um 2.000 gestir útgerðarinnar
Norwegian Cruise Line komi hing-
að til að vera viðstaddir nafngiftina
og samkomuna í Hörpu, sem fyrir-
tækið hefur tekið á leigu af þessu
tilefni. Hljómsveit Katy Perry mun
koma fram með henni í Hörpu en
íslenskir listamenn koma einnig
fram.
Norwegian Prima er hið fyrsta
af sex skipum sem Norwegian
Cruise Line lætur smíða á Ítalíu
og verða afhent á árabilinu 2022-
2027. Útgerðin tók við skipinu sl.
mánudag í Feneyjum. Er það í
hópi stærstu skipa sem hingað eru
væntanleg í sumar, 142.500 brúttó-
tonn og vistarverur eru á 16 hæð-
um. Það tekur 3.300 farþega og í
áhöfn eru 1.500 manns. Því geta
tæplega 5.000 manns verið um
borð í skipinu í einu.
Skipið er 294 metra langt, eða
því sem næst þrír fótboltavellir.
Eins og gefur að skilja verður boð-
ið upp á hágæða þjónustu og af-
þreyingu um borð. Forstjóri
ítölsku skipasmíðastöðvarinnar
sagði við afhendingu skipsins að
farþegum myndi standa til boða af-
þreying sem aldrei fyrr hafi verið í
boði og enginn hafi átt von á að
væri hægt að bjóða upp á um borð
í skemmtiferðaskipi.
Uppgefinn smíðakostnaður er
730 milljónir evra, eða jafnvirði
rúmlega 100 milljarða íslenskra
króna. Norwegian Cruise Line er
bandarískt skipafélag með höf-
uðstöðvar í Miami. Það er þriðja
stærsta félagið á markaði
skemmtiferðaskipa. Skip félagsins
hafa oft komið til Íslands. Til
dæmis hefur Norwegian Star, sem
er tæplega 92 þúsund brúttótonn,
komið til margra hafna á Íslandi í
sumar.
Bókað hingað næsta sumar
Samkvæmt yfirliti á heimasíðu
Faxafóahafna er Norwegian Prima
væntanlegt til Reykjavíkur að
morgni 25. ágúst. Áætlað er að
skipið láti úr höfn klukkan 19 að
kvöldi 27. ágúst og er ferðinni heit-
ið til Amsterdam.
Skipið mun fyrst um sinn sigla
með ferðamenn milli hafna í Evr-
ópu. Í október heldur skipið til
Bermúda og mun sigla í Karíba-
hafinu fram í mars á næsta ári.
Skipið mun sigla milli Evrópu-
hafna fram á haust 2023 og er m.a.
bókuð koma til Reykjavíkur næsta
sumar.
Gefur glæsiskipi nafn í Sundahöfn
- Poppstjarnan Katy Perry væntanleg til landsins - Verður guðmóðir nýjasta og glæsilegasta
skemmtiferðaskips heimsflotans, Norwegian Prima - Syngur fyrir boðsgesti á hátíð í Hörpu
AFP
Norwegian Prima Nýjasta og glæsilegasta farþegaskip heimsflotans er væntanlegt hingað síðar í þessum mánuði.
Katy Perry