Morgunblaðið - 04.08.2022, Blaðsíða 14
Síðsumar og haust eru að margra dómi besti tíminn til Þórs-
merkurferða. Á þeim tíma viðrar oft mjög þægilega á svæðinu
og senn fer skógurinn þar að taka á sig nýjan svip. Aðstæður til
Merkurferða eru líka oft góðar um þetta leyti, enda jökulárnar
sem aka þarf yfir þá gjarnan vatnslitlar. Eigi að síður þarf alltaf
að sýna aðgæslu, enda eru fljótin straumþung og rennsli þeirra
getur breyst skyndilega.
Í Þórsmörk er góð aðstaða fyrir ferðafólk bæði í Húsadal og
Langadal, en á síðarnefnda staðnum er stórt sæluhús í eigu
Ferðafélags Íslands. Handan Krossár eru Básar á Goðalandi,
þangað sem fólk kemur eftir að hafa arkað um heljarbrúna
Fimmvörðuháls.
Ljósmynd/Kolbrún Vaka Helgadóttir
Síðsumar í Þórsmörk
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 2022
www.gilbert.is
J S
W
AT
CH CO .REYK JAV
IK
Sumarið er enn í algleymingi þótt komið sé fram í ágústmánuð. Víða liggja leiðir og ljúft er að vera til. Hér segir frá nokkrum stöðum sem
gaman gæti verið að kanna nánar á næstunni, eða þá bara koma þangað til að njóta tilverunnar. Sleikja sól og skapa góðar minningar.
Frá Skarfabakka við Sundahöfn er fimm mínútna sigling í Við-
ey sem er ein af perlum Reykjavíkur. Út ágústmánuð eru ferðir
með ferju í eyjuna á klukkustundar fresti frá kl. 10:15 fram yfir
miðjan dag. Ferðir í land eru á hálfa tímanum.
Frá bryggju er stígur að Viðeyjarstofu og -kirkju, húsum
sem voru reist á 18. öld. Um aldir var Viðey einn af helstu
mektarstöðum landsins. Örnefnin Prentsmiðjuhóll, Kúmen-
brekka, Tóbakslaut, Ábótasæti og Líkaflöt segja mikið.
Viðey, sem er 1,6 km á stærð, sem skiptist í Heimaey og
Vesturey. Mörg listaverk eru í eyjunni, svo sem Friðarsúla
Yoko Ono og Áfangar, steinsúlur Richards Serra. Veitingasala
er í Viðey og margt merkilegt þar hægt að gera og sjá.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Fimm mínútur í Viðey
Elliðaárdalurinn í Reykjavík er sem heill heimur út af fyrir sig.
Þjóðgarður í borg. Frá ósum og inn til heiða er skógi vaxinn
dalur sem ár með spriklandi laxi falla um. Við bakka ánna og á
hólmum þeirra eru gönguleiðir í fallegu umhverfi. Trébrýr eru
yfir árkvíslar. Á síðustu áratugum hefur mikið verið gróðursett
í dalnum og af því sprottið skógur sem er orðinn stæðilegur og
er kolefnisbindandi svo munar um.
Fyrir fólk sem vill skoða dalinn er ágætt að leggja upp frá til
dæmis Elliðaárvirkjun. Þar eru áberandi skilti og skýrar merk-
ingar sem vísa veg um ævintýraland þar sem er fjölbreyttur
gróður. Þá er líka mjög sennilegt að sjáist til villtra kanína sem
þarna hoppa um.
Þjóðgarður í borginni
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Vestfirðir eru góðir. Landshlutinn er ofarlega á lista ferða-
bókaútgáfunnar Lonely Planet sem tiltók nokkra staði sem
áhugavert væri að heimsækja árið 2022. Best in Travel heitir
viðurkenningin sem Vestfirðir fengu og nær á heimsvísu yfir
lönd, svæði og borgir. Útgáfan hefur sömuleiðis sagt að Rauði-
sandur sé meðal fegurstu stranda í Evrópu.
„Við Látrabjarg á Vestfjörðum er Rauðisandur, stór, auður
og ótrúlega fallegur. Ströndin fær bronsaðan lit sinn úr niður-
brotinni hörpuskel og er römmuð inn af dökkum klettum með
fallegt heiðblátt lón í forgrunni. Ef þú ákveður að fara að Látra-
bjargi gáðu þá hvort þú sérð lunda og seli. Á heiðum degi sérðu
Snæfellsjökul,“ segir á vef Lonely Planet.
Rautt fyrir vestan
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Akureyri er í vitund sumra staður með yfirbragð útlanda. Bær-
inn stendur í brekkum sem liggja upp frá firði og flæðarmáli.
Gömul hús eru áberandi í kaupstaðnum sem er skógi vaxinn og
há fjöll í bakgrunni. Yfir sumartímann eru skemmtiferðaskip
við kaja nánast hluti af bæjarmyndinni og farþegar af þeim,
sem fara í spássitúr um miðbæinn, gera Akureyri alþjóðlega.
Í næsta nágrenni við Akureyri eru Skógarböðin, heilsulind
og baðstaður sem opnaður var fyrr í sumar. Sá mælist vel fyrir
eins og fleira á Akureyri, svo sem tjaldsvæðin á Hamri. Þau eru
í úrvalsflokki, rétt eins og veitingastaðirnir, söfnin, íþrótta-
aðstaðan og útivistarsvæðin. Norður á Akureyri úr borginni er
um fimm tíma akstur og flugtími er hálf klukkstund.
Útlöndin á Akureyri
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Geysissvæðið í Haukdal er skemmtilegur staður að skoða.
Þetta er eitt þekktasta goshverasvæði jarðar og samkvæmt því
draga goshverir um heim allan heiti sitt af Geysi. Fjölmargir
hverir og laugar eru á svæðinu, þekktastir þeirra goshverirnir
Geysir og Strokkur. Sá síðarnefndi er gjarnan í stuði. Gýs með
nokkurra mínútna millibili þar sem vatnssúlan gengur hátt í
loft upp og úr verður skemmtileg sýning.
Í næsta nágrenni við Geysissvæðið er margt áhugavert að
skoða, svo sem Gullfoss, Laugarvatn, Skálholt og Þingvellir.
Einnig Flúðir; garðyrkjubær Íslands, þar sem Gamla laugin
hefur slegið í gegn. Í Reykholti í Biskupstungum hefur tómata-
túrismi í Friðheimum komið sterkur inn.
Strokkur er í stuði
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Áhugaverðum viðkomustöðum í Nor-
egi, hvort heldur er til að fræðast eða
njóta lífsins í botn, eru gerð góð skil
á vefsetrinu visitnorwy.com. Segja
má að vefur þessi sé alhliða upplýs-
ingabrunnur um flest er býðst í land-
inu. Sérstaklega eru tiltekin tækifær-
in sem ferðafólki bjóðast í Osló, sem
árið 2019 bar titilinn hin græna höf-
uðborg Evrópu. Frábærir veitinga-
staðir og áhugaverð söfn eru í borg-
inni og nærri henni, við Oslóarfjörð,
eru til dæmis fallegir skógar þar sem
bjóðast margir möguleikar til útivist-
ar.
Einnig segir á vefnum frá Bergen,
sem er önnur fjölmennasta borg
landsins. Sú er nærri Sognfirðinum
sem með öllum sínum botnlöngum er
vinsæl leið skemmtiferðaskipa. Þekkt
skipalægi er til dæmis í Geirangurs-
firði. Upp af fjörðunum eru háar hlíð-
ar, gjarnan skógi vaxnar, og inn af
þeim hásléttur og fjallvegir.
Greiðir gagnvegir eru milli Íslands
og Noregs. Frá Keflavík er aðeins um
tveggja stunda flug frá Bergen og
ferð til Oslóar er hálftímanum lengri.
Tungumál landanna tveggja eru svip-
uð og því lítið mál að tala sig í gegn-
um fyrirstöður sem á vegi fólks gætu
orðið. Þá er menningarumhverfið
sambærilegt og allt slíkt auðveldar
ferðalög og tengslamyndun.
Vefurinn visitnorway.com er ótæmandi upplýsingabrunnur
Noregur er á næstu grösum
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Bergen Horft yfir borgina. Á fjallinu sem byggðin er undir liggur Fløibanen um
fjallshlíðina, en þegar upp er komið er fín aðstaða og útsýni er engu líkt.