Morgunblaðið - 04.08.2022, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 04.08.2022, Blaðsíða 45
liðanema sem útskrifuðust svo í desember það ár. Man þig best af hópnum í byrjun, þú hafðir svo sterka réttlætiskennd og varst órög að segja skoðanir þínar. Hópurinn er á misjöfnum aldri en höfum haldið saman með sauma- klúbbum, sumarbústaðaferðum og hittingum þar til núna síðustu ár, þar sem allt slíkt lá niðri. Ég hafði ekki unnið lengi á Sléttu- veginum þegar þú hringdir í mig og sagðir: Bára, heldurðu að við getum unnið saman? Ég er að fara í atvinnuviðtal á vinnustaðn- um þínum. Sem betur fer varstu ráðin og áttum við farsælt og gott samstarf alla tíð síðan með smá hléi. Þú varst svo frábær vinnu- félagi og fagmanneskja, Við gát- um pústað við hvor aðra með svörtum húmor og glensi og hlátrum. Við áttum svo margt sameiginlegt þó árin á milli okkar væru mörg. Ég ætla ekki að vera væmin, það var ekki þinn stíll en ég á eftir að sakna þess sem var, hélt við hefðum nægan tíma þó ég væri farin á eftirlaun. Takk fyrir öll símtölin og skila- boðin. Takk fyrir öll trúnaðar- samtölin. Takk fyrir að hugsa svo vel um „gömlu konuna þína“. Takk fyrir allt, elsku Tóta, hvíldu í friði. Kæra fjölskylda, missirinn er mikill en minningin lifir. Mínar innilegustu samúðar- kveðjur, Bára Hjaltadóttir. Kveðja frá samstarfsfólki Við spyrjum drottin særð, hvers vegna hann hafi það dularfulla verkalag að kalla svona vænan vinnumann af velli heim á bæ um miðjan dag. Og þó, með trega og sorg, skal á það sæst, að sá með rétti snemma hvílast megi í friði, er hafði, fyrr en sól reis hæst, fundið svo til, að nægði löngum degi. (Jóhann S. Hannesson) Þórhildur Una Stefánsdóttir kom til starfa í heimaþjónustu á Sléttuvegi fyrir rúmum áratug og starfaði hér, með stuttum hléum inni í milli. Hún starfaði hér fyrst sem sjúkraliði en síðar sem deild- arstjóri þar sem hún hafði um- sjón með ýmsum krefjandi verk- efnum. Hún hafði komið víða við á starfsferli sínum og hafði langa starfsreynslu við umönnun sem sannarlega kom vel að notum hér. Öllum störfum sínum sinnti hún af elju og fagmennsku og var okkur hinum fyrirmynd í starfi. Hún vildi ekki láta hlutina bíða og gekk í verkefni dagsins af þeim drifkrafti sem einkenndi hana. Hún gat auðveldlega sinnt mörg- um hlutum í einu sem kom sér vel þegar forföll eða óvænt atvik komu upp. Með fáum var betra að vera ef krefjandi aðstæður sköp- uðust þar sem þörf var á skjótri ákvörðunartöku. Hún var um- hyggjusöm og gat auðveldlega sett sig í spor annarra. Hún hafði afar gott lag að ná til skjólstæð- inga sem hún vitjaði og hafði hagsmuni þeirra alltaf að leiðar- ljósi í öllum störfum sínum. Gagnvart samstarfsfólki var hún bóngóð, trygg, hvetjandi og stóð við bakið á okkur, ekki síst þeim sem voru nýbyrjaðir eða voru í starfsnámi. Hreinskiptin var hún, ákveðin og réttsýn og sagði umbúðalaust ef henni mis- líkaði eða ef vinnubrögð voru ekki til samræmis við það sem ætlast mátti til. Hún var einkar næm á líðan samstarfsfólks síns og fljót að sjá ef eitthvað bjátaði á og örlát að gefa af sjálfri sér til þess að reyna að aðstoða ef þess var nokkur kostur. Skipti fyrir- höfn hennar sjálfrar þar engu máli. Og svo minnumst við hversu skemmtileg og fyndin Þórhildur var og oft var hlegið dátt á kaffi- stofunni þegar hún var á vakt- inni. Hún átti það til að vera stríðin á góðan hátt, sérstaklega gagnvart okkur sem erum dálítið auðtrúa. Þórhildi varð tíðrætt um fjöl- skyldu sína og kom þar vel í ljós hversu innilega stolt og glöð hún var með hópinn sinn. Hún varð amma á síðasta ári og hlakkaði mikið til þess að fá að reyna sig í því hlutverki gagnvart litla ömmudrengnum sínum. Hjá þeim er hugur okkar og dýpsta samúð þessa erfiðu daga. Eftir sitja minningar um ein- staka og minnisstæða konu sem kært er kvödd héðan af Sléttu- vegi. Fyrir hönd samstarfsfólks, Hanna María Karlsdóttir. Kveðja frá Sjúkraliðafélagi Íslands Okkur sjúkraliðum barst í síð- ustu viku sú harmafregn að öflug forystukona úr okkar röðum, Þórhildur Una Stefánsdóttir, hefði látist eftir skammvinn veik- indi. Hún dó langt fyrir aldur fram og varð aðeins 47 ára gömul. Hennar er hvarvetna sárt sakn- að. Í hópi okkar sjúkraliða skilur Þórhildur Una eftir stórt skarð. Hún var í senn frábær sjúkraliði, sem naut trausts samstarfs- manna og sjúklinga, sem margir bundust henni tryggðaböndum. Um leið var hún einstakur félagi, áræðin og einlæg í samskiptum, og innan stéttarfélags okkar var hún virk og öflug í starfi. Hún hafði áhuga á réttinda- baráttu félagsins og lét ekki sitt eftir liggja þegar þurfti kraft til að koma hugmyndum í verk. Þess naut félagið sannarlega. Þórhild- ur Una fann bæði á sjálfri sér og samstarfsfólki hvað sjúkraliða- starfið getur verið krefjandi og lýjandi, og hvað langur vinnutími og þung vaktabyrði hafði íþyngj- andi áhrif á fjölskyldur sjúkra- liða. Hún studdi því einlæglega stefnu félagsins um að stytta vinnutíma. Þegar áfangasigur náðist, stóð hún dyggilega við bakið á forystunni á meðan erfið innleiðing var í gangi, sótti stíft alla fræðslufundi um „betri vinnutíma“ og varð ómetanlegur hlekkur í innleiðingarferlinu. Fyrir það viljum við þakka sér- staklega. Á yfir 20 ára ferli sem sjúkra- liði starfaði hún víða, nú síðast í heimahjúkrun hjá Reykjavíkur- borg, þar sem hún sinnti íbúum við Sléttuveg. Atgervi hennar og kraftur leiddi til þess að hún var eiginlega sjálfkrafa kölluð til mikilvægra forystustarfa innan Sjúkraliðafélags Íslands en frá nóvember 2019 gegndi Þórhildur Una formennsku í langstærstu deild þess, á höfuðborgarsvæð- inu. Það voru jafnan líflegar um- ræður þegar Þórhildur Una kom til skrafs og ráðagerða á skrif- stofu félagsins við Grensásveg. Samhliða samtölum um kjara- og réttindamál áttum við einlæg samskipti, þar sem talið barst oftar en ekki að hestamennsku sem hún stundaði af ástríðu, fjöl- skyldunni sem hún unni, en ekki síður að barnabarninu, sem hún hlakkaði til að fylgjast með vaxa og dafna. Sannarlega er það því þyngra en tárum taki, og óskilj- anlegt, að með þessum hætti skuli forlögin hrífa burt okkar yndislegu vinkonu og ómetanleg- an samstarfsfélaga. Hennar beið svo margt jákvætt og fallegt. Í okkar röðum er sannarlega skarð fyrir skildi. Mestur er þó missir hamingjuríkrar fjöl- skyldu, sem hún elskaði og studdi. Við leiðarlok kveðja sjúkraliðar hana með miklum söknuði og flytja henni einlægar þakkir fyrir mikilvægt framlag til félagsins. Við biðjum góðan Guð að styrkja fjölskyldu hennar í sorginni. Minning hennar mun ávallt lifa með okkur. F.h. Sjúkraliðafélags Íslands, Sandra B. Franks formaður. MINNINGAR 45 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 2022 ✝ Hafsteinn Már Matthíasson mjólkurtæknifræð- ingur fæddist í Reykjavík 28. jan- úar 1943. Hann lést á Heilbrigðis- stofnun Suðurlands 22. júlí 2022. Foreldrar hans voru Laufey Guð- mundsdóttir fisk- matsmaður, f. 1923, d. 1981, og Matthías Jónsson múrarameistari, f. 1922, d. 2014. Hálfbróðir Hafsteins er Kristján Þór Valdimarsson og hálfsystur hans eru Þórunn Halldóra Matt- híasdóttir og Guðrún Matthías- dóttir. Eiginkona Hafsteins er Bryn- dís Brynjólfsdóttir, kaupmaður og fyrrverandi útibússtjóri Sjó- vár á Selfossi, f. 4.12. 1945. Þau giftust í Selfosskirkju 26.12. 1965. Foreldrar hennar voru Brynjólfur Gíslason, veit- ingamaður í Tryggvaskála á Selfossi, f. 1903, d. 1983, og Kristín Árnadóttir, hótelstýra í Tryggvaskála f. 1901, d. 1974. Dætur þeirra eru Kristín Haf- steinsdóttir viðskiptafræðingur, f. 2.10. 1963, sonur hennar er Bjarki Már Magnússon lögfræð- ingur, f. 31.1. 1996; Berglind Hafsteinsdóttir sjóntækjafræð- ingur, f. 8.8. 1976, maki Brynjar Þór Heiðarsson rafvirki, f. 10.1. 1972, börn þeirra eru Alexander Brynjarsson, f. 31.1. 2006 og Fil- ippía Brynj- arsdóttir, f. 20.4. 2011. Hafsteinn bjó á uppvaxtarárum sínum í vesturbæ Reykjavíkur með móður sinni. Hafsteinn flutti á Selfoss árið 1961 og hóf þá nám í Mjólk- urbúi Flóamanna. Hann lauk prófi sem mjólkurfræðingur frá Ladelund Landbrugs & Melkeri- skole í Danmörku árið 1964, fór svo í framhaldsnám við sama skóla og lauk þaðan prófi sem mjólkurtæknifræðingur árið 1966. Hann starfaði hjá Mjólk- urbúi Flóamanna í 20 ár og hóf þá störf í Mjólkursamsölunni í Reykjavík, fyrst sem verkstjóri en síðar sem forstöðumaður rannsóknarstofu MS. Síðustu starfsárin starfaði hann einnig sem gæðastjóri MS. Hafsteinn hafði mörg áhuga- mál um ævina, m.a. smíðaði hann sína eigin seglskútu og sigldi henni sem og öðrum segl- skútum víða um höf, skar út í tré, hannaði og útbjó fagra list- muni úr steindu gleri. Síðustu árin átti býflugnarækt hug hans allan. Útför Hafsteins fer fram frá Selfosskirkju í dag, 4. ágúst 2022, klukkan 14. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. (Valdimar Briem) Faðir minn hefur nú kvatt þetta líf. Margs er að minnast og margt ber að þakka. Allt er breytt en þakklát er ég að hafa átt föður minn í hartnær sextíu ár í lífi mínu. Föður sem var mörg- um góðum kostum gæddur. Pabbi var gáfaður, vinnusamur, fylginn sér, með sterka réttlæt- iskennd og fallegt hjartalag. Það var ekkert sem pabbi gat ekki gert. Ef hann fékk áhuga á ein- hverju þá las hann allt um mál- efnið og varð sérfræðingur. Hann lærði að smíða sína eigin skútu sem fékk nafnið Pía S6. Pabbi elskaði að sigla og áttu foreldrar mínir góðar minningar um sigl- ingar með vinum sínum um heimsins höf. Faðir minn átti ótrúlega mörg áhugamál og var margt til lista lagt. Býflugnarækt var eitt af áhugamálunum sem áttu hug hans og hin síðari ár kom listamaðurinn fram í honum þar sem hann naut sín við gerð fallegra listmuna úr gleri og tré. Þessir listmunir skreyta heimili okkar fjölskyldunnar og eru hinir mestu dýrgripir. Á þessum tíma- mótum þegar ég lít yfir farinn veg er mér efst í huga þakklæti fyrir góðu en líka erfiðu tímana sem lágu á vegi okkar. Tíma sem mótuðu og þroskuðu okkur þann- ig að við urðum sterkari einstak- lingar. Ég á föður mínum mikið að þakka, hann var mikill þátt- takandi í uppeldi barnabarna sinna. Hann sýndi syni mínum mikla alúð og hlýju og var honum góð fyrirmynd. Það var ánægju- legt að pabbi náði að sjá son minn útskrifast úr mastersnámi sínu núna í vor. Að leiðarlokum eru það minningarnar sem lifa og er- um við fjölskyldan rík af góðum og björtum minningum. Þær ylja á þessum erfiðu tímum. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (Valdimar Briem) Þín dóttir, Kristín. Elsku afi minn. Ævinlega vor- um við saman í liði og bestu fé- lagar, með þó einni undantekn- ingu, þegar möndlugrauturinn var borinn á borð á aðfangadag. Þá vorum við mestu andstæðing- ar meðan á átinu stóð, en sam- glöddumst þó alltaf þeim sem vann, ásamt því að leggja okkur aðeins eftir ofátið. Nú ertu farinn frá okkur og get ég því aðeins hugsað til baka til allra þeirra yndislegu minninga sem ég á af þér. Heilráð þín og stuðningur hafa átt stóran þátt í að koma mér á þann stað sem ég er á í dag og verð ég þér ævinlega þakklát- ur fyrir það. Tíminn líður hratt og áður en ég veit af verð ég orðinn afi sjálfur. Ég hugsa þá til þess að ef ég næ að veita barnabörnum mínum aðeins brot af þeirri ást, umhyggju, stuðningi og vinskap sem þú veittir mér, þá verða þau heppnustu barnabörn í heimin- um. Hvíldu í friði, afi minn. Bjarki Már Magnússon. Hafsteinn Már Matthíasson Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Allur arður af þjónustunni rennur til reksturs kirkjugarðanna Útfararþjónusta í yfir 70 ár Við tökum vel á móti ástvinum í hlýlegu og fallegu umhverfi Okkar elskaða eiginkona, móðir, systir, tengdamóðir og amma, SANDRA MAY ERICSON listfræðingur, lést á líknardeild Landspítalans fimmtudaginn 28. júlí. Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju mánudaginn 8. ágúst klukkan 15. Leonard Frederick Ashford Magdalena B. Gunnarsdóttir Kristmann Ericson Paul Templin Ashford Stephanie Templin Ashford Noah Templin Ashford Maeve Templin Ashford Nina Christine Campagna Christopher Campagna Duncan Campagna Holden Campagna Martin Campagna Okkar elskulega STEINUNN VIGFÚSDÓTTIR, Una, Skúlagötu 40a, áður til heimilis á Seyðisfirði, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi miðvikudaginn 20. júlí. Bálför hefur farið fram. Minningarathöfn auglýst síðar. F.h. aðstandenda, Guðsteina Hreiðarsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma, langamma og langalangamma, INGIBJÖRG GÍSLADÓTTIR, Inga frá Akurhúsum, Suðurgötu 42, Sandgerði, lést á Landspítalanum í Fossvogi fimmtudaginn 21. júlí. Útförin fer fram frá Útskálakirkju þriðjudaginn 9. ágúst klukkan 13. Ómar J. Castaldo Pálína Guðmundsdóttir Henríetta I. Haraldsdóttir Ingibjörg Anna Gísladóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn Elskulegur faðir okkar, sonur, bróðir, mágur og frændi, ÁSMUNDUR EINARSSON, varð bráðkvaddur 24. júlí. Útför hans fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 12. ágúst klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á styrktarsjóð barna hans: 0370-13-011901, kt. 180282-4839. Rósa Björk, Einar, Katrín Anna Hjálmfríður Björg Jóhannsdóttir Kristín Helga Einarsdóttir Gunnar Auðunn Jóhannsson og fjölskylda Elskuleg eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma, SIGRÍÐUR MARÍA SÓLNES, Smyrilsvegi 31 Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi föstudaginn 29. júlí. Útför hennar verður gerð frá Neskirkju þriðjudaginn 9. ágúst klukkan 13. Júlíus Sólnes Lára Sólnes Jón Óskar Sólnes Bergdís Ellertsdóttir Inga Björk Sólnes og barnabörn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.