Morgunblaðið - 04.08.2022, Blaðsíða 31
FRÉTTIR 31Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 2022
SPORTÍS SKE I FAN 1 1
1 08 REYKJAV ÍK
S POR T I S . I S
520-1000
ÚTSALA!
Norska öryggislögreglan PST tel-
ur nú hafið yfir allan vafa að skot-
árás hryðjuverkamannsins Zaniars
Matapours á Oslo Pride-hátíðinni
25. júní hafi verið til höfuðs hin-
segin fólki.
Tveir létust og 21 særðist þegar
Matapour lét til skarar skríða við
tvo skemmtistaði í Ósló og kveður
Siv Sørensen, greinandi hjá PST,
nú öruggt hvers kyns var. „Við
sjáum það hreint út í kjölfar þess
sem gerðist að þarna réðst öfga-
sinnaður íslamisti að hinsegin
fólki,“ sagði Sørensen í samtali við
norska ríkisútvarpið NRK í gær.
Lögreglan í Ósló, sem fer með
rannsókn málsins, hefur þó ekki
staðfest við norska fjölmiðla að
hún sé sammála þessu mati PST
og hvorugt þessara embætta vildi
ræða málið við Morgunblaðið í
gærkvöldi. „Því miður óttumst við
að hinsegin fólk verði jafnvel í
háska í framtíðinni,“ sagði Søren-
sen enn fremur við NRK en vildi
ekki leggja mat á hvort hætta
fylgdi því að halda Pride-hátíðir í
Noregi næstu ár.
„Við vonum að lögreglan geti
tryggt öryggi fólks við þessar
samkomur en að koma í veg fyrir
hryðjuverkaárásir einstaklinga
[þ.e. fólks sem ræðst eitt til at-
lögu] er verulega krefjandi,“ segir
Sørensen greinandi að lokum.
Enn hefur lögreglan í Ósló ekki
viljað tjá sig um hvort Matapour
hafi talist ábyrgur gjörða sinna
þegar hann lét til skarar skríða
25. júní en ein kenning hennar
byggir á því að hann hafi verið frá
sér andlega og teljist því hugs-
anlega ekki geta borið refsi-
ábyrgð.
AFP/Beate Oma Dahle
Sorg Óslóarbúar voru harmi slegnir
eftir árásina í lok júnímánaðar.
Telja árásina gegn
hinsegin fólki
- PST óttast háska í framtíðinni
Abdi Hussein Ah-
med, sem einnig
gegnir nafninu
Abu Khadi, situr
í haldi lögreglu í
Meru í Kenýa og
á von á ákæru í
New York í
Bandaríkjunum
fyrir veiðiþjófn-
að og fíkniefna-
sölu.
Var hann handtekinn eftir að
ábendingar bárust kenýskri lög-
reglu um starfsemi hans en þá
höfðu bandarísk stjórnvöld lýst eft-
ir honum vegna meintrar starfsemi
hans og sölu nashyrningahorna og
fílabeins til kaupenda í Bandaríkj-
unum. Liggur Ahmed einnig undir
grun um verslun með allt að eitt
kílógramm af heróíni. Þrír aðrir
eru grunaðir í málinu sem snýst um
sölu 190 kílógramma af hornum
nashyrninga og tíu tonn af fíla-
beini.
AFRÍKA
Veiðiþjófnaður og
heróínviðskipti
Horn nashyrninga
eru eftirsótt víða.
Atli Steinn Guðmundsson
atlisteinn@mbl.is
Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar
Bandaríkjaþings, yfirgaf Taívan í
gær eftir fund með Tsai Ing-wen,
þarlendum forseta, sem kalla má ol-
íu á heiftarbál Kínverska kommún-
istaflokksins í garð grannríkisins
Taívans.
Ásakaði kínverski utanríkisráð-
herrann Wang Yi Bandaríkin um að
„brjóta á fullveldi Kína undir fölsku
flaggi svokallaðs lýðræðis“ auk þess
sem hann gerðist svo digur að kasta
því fram að þeim sem léku sér að
eldi farnaðist ekki vel og þeim sem
strykju Kínverjum andhæris yrði
refsað.
Pelosi lét þessar ásakanir sem
vind um eyru þjóta og sagði í yf-
irlýsingu í gær að Kína gæti engan
veginn tálmað þjóðarleiðtogum eða
nokkrum öðrum sem kjósi að heim-
sækja Taívan í virðingarskyni við
blómstrandi lýðræðisþróun þar í
landi og dást að þeim árangri sem
smáríki þetta hafi náð auk þess að
undirstrika frjótt samstarf
ríkjanna.
Joe Biden Bandaríkjaforseti deil-
ir hins vegar ekki háleitum hugsjón-
um þingforsetans og sagði í gær að
heimsókn Pelosi gæti ekki talist
„góð hugmynd um þessar mundir“
og vísaði þar til þeirra viðsjáa er nú
ríkja milli stórveldanna tveggja,
Bandaríkjanna og Kína.
„Nauðsynlegar heræfingar“
Reyndar hefur stefna Bidens
gagnvart Taívan þótt í besta falli
torkennileg, annars vegar hyllir
hann stefnu Kínverska kommún-
istaflokksins um „eitt Kína“ og
styður þar með kínversku komm-
únistastjórnina en á hinn bóginn
selja Bandaríkjamenn Taívönum
vopn til að verja sjálfstæði sitt og
lýðræðið dýrmæta sem bandarískir
embættismenn eru hraðkvæðir að
mæra.
Auk þess að senda SU-35-orr-
ustuþotur yfir sundið milli Kína og
Taívans á þriðjudaginn til að sýna
mátt sinn og megin hafa kínversk
stjórnvöld nú blásið til þess sem
þarlend stjórnvöld kalla „nauðsyn-
legar og réttlætanlegar“ heræfing-
ar á sjó örfáa kílómetra undan
ströndum Taívans. Hefjast æfingar
þessar í dag og standa í fimm daga
þar sem Kínverjar munu æfa sig í
notkun „langdrægra og virkra skot-
vopna“ á einu umferðarþyngsta haf-
svæði veraldar.
Utanríkisráðherrar G7-þjóðanna
svokölluðu, Kanada, Frakklands,
Þýskalands, Ítalíu, Japans, Bret-
lands og Bandaríkjanna, sendu í
gær frá sér sameiginlega yfirlýs-
ingu þar sem þeir bentu Kínverjum
á að ekki kynni góðri lukku að stýra
að raska svo stöðugleika álfunnar.
Kínverjum strokið andhæris
- „Þeim sem leika sér að eldi farnast ekki vel“ - Biden forseti styður „eitt Kína“
en selur Taívönum vopn til að verja frelsi sitt - Pelosi blæs á gagnrýni hvaðanæva
AFP/Skrifstofa forseta Taívans
Heimsókn Nancy Pelosi og Tsai
Ing-wen kæra sig kollóttar.
„Og stúlka með sægræn augu
segir við mig: Skyldi manninum
ekki leiðast að láta krossfesta
sig?“ orti Steinn Steinarr í Pass-
íusálmi sínum númer 51. Þessi
stúlka, sem ljósmyndari AFP-
fréttastofunnar rakst á í flótta-
mannabúðum rétt utan við Raqa í
Sýrlandi, er kannski ekki með
sægræn augu, heldur virðast þau
heiðblá.
Þótt augu heimsins hafi beinst
að Úkraínu síðustu mánuði hefur
þjáningin hvergi yfirgefið Sýr-
lendinga í langvarandi orrahríð
þar í landi. Í síðustu viku krafðist
Recep Tayyip Erdogan Tyrk-
landsforseti þess að Bandaríkja-
menn kölluðu síðustu hersveitir
sínar heim frá Norður-Sýrlandi
og undir þá kröfu hans taka kín-
versk stjórnvöld.
Lengi getur vont versnað í Sýrlandi þótt augu heimsins hvíli á Úkraínu um þessar mundir
Bláeygt
barn í flótta-
mannabúðum
AFP/Delil Souleiman