Morgunblaðið - 04.08.2022, Blaðsíða 59
MENNING 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
96%
CHRIS
HEMSWORTH
CHRISTIAN
BALE
TESSA
THOMPSON
TAIKA
WAITITI
RUSSELL
WITH CROWE
NATALIE
AND PORTMAN
Empire
The Playlist BBC The sun
Total FilmRogerEbert.com
N
orsku myndirnar Barna-
ninja og Versta mann-
eskja í heimi (Joachim
Trier) eru tvær af bestu
myndum ársins 2021. Þetta eru
kvikmyndir sem hægt er að horfa á
aftur og aftur þrátt fyrir að það sé
strax ljóst að aðalpersónan verði
ekki hamingjusöm til endaloka.
Báðar kvikmyndirnar fjalla um
óvingjarnlegar eða erfiðar konur en
áhorfendur vita að þær eru einfald-
lega mannlegar. Þær eru svo frá-
brugðnar þeirri kvenlegu birtingar-
mynd sem við þekkjum á skjánum
að okkur er brugðið. Hvers konar
konur eru þetta eiginlega? Þetta
eru konur sem neita að ganga hefð-
bundnum kvenleikahugmyndum á
hönd, ekki vegna þess að þær líti
niður á þær eða séu svo miklir fem-
ínistar, heldur vegna þess að það er
ekki í eðli þeirra þó því hafi verið
haldið fram áður.
Martröð að verða ólétt
Barnaninja er fersk, fyndin og fem-
ínísk kvikmynd eftir Yngvild Sve
Flikk byggð á teiknimyndabók eftir
Inga Sætre. Söguhetjan Rakel
(Kristine Kujath Thorp) kemst
óvænt að því að hún er ólétt og hjá
Rakel er fóstureyðing það eina
mögulega í stöðunni enda hefur hún
engan áhuga á að verða móðir.
Besta vinkona hennar og meðleigj-
andi Ingrid (Tora Christine Diet-
richson) tók eftir því að brjóstin á
Rakel höfðu stækkað, sem Rakel
var ekkert ósátt við, og spurði hvort
hún væri ólétt en Rakel hélt nú
ekki. Þegar Ingrid áttar sig á því að
Rakel er komin með sérkennilegt
lyktarskyn fær Ingrid hana til þess
að taka þungunarpróf sem reynist
svo jákvætt. Rakel fer á spítalann í
fóstureyðingu ásamt aikidoþjálf-
aranum sem lyktar eins og smjör,
Mos (Nader Khademi), sem sam-
kvæmt hennar útreikningi gerði
hana ólétta. Það er fljótt hægt að
útiloka það að Mos sé faðirinn því
Rakel er komin 7 mánuði á leið
þrátt fyrir að vera með sáralitla
bumbu og nánast engin einkenni.
Fóstureyðing er ekki lengur inni í
myndinni henni til mikillar
óánægju. Rakel er brjáluð út í barn-
ið sem hefur falið sig í maganum á
henni allan þennan tíma: „Það held-
ur að það geti bara slakað á í mag-
anum mínum í níu mánuði og læðst
svo bara út!“ segir hún. Hún skissar
upp mynd af barninu með svarta
grímu og gefur því heitið Barna-
ninja sem lifnar síðan við á skján-
um.
Teiknimyndafígúran (Herman
Tømmeraas) er ófeimin við að deila
skoðunum sínum, eins og t.d. það að
Rakel ætti að gefa sig til Angelinu
Jolie þar sem hún væri nú þegar
sex barna móðir og kynni á hlut-
verkið. Teiknimyndunum sem birt-
ast á skjánum er ætlað að sýna
hvernig Rakel upplifir heiminn.
Barnið sem hún vill ekkert með
hafa birtist því sem pirrandi barna-
ninja, þegar hún er þunglynd sér
hún ekki andlit fólks af því að búið
er að krota yfir þau og þegar hún er
ástfangin má sjá litla geisla og
búbblur koma úr brjóstkassanum
hennar. Þrátt fyrir þetta er kvik-
myndin mjög raunveruleg, kvik-
myndataka Marianne Bakke er t.d.
mjög raunsæisleg, en það er þessi
blanda raunsæis og listrænna þátta
sem gerir kvikmyndina einstaka.
Barnaninja er full af einlægum og
fallegum atriðum sem snerta hjarta-
rætur. Myndin fylgir Rakel í leit
hennar að heimili fyrir barn sem
hún vill ekki. Hún býður ófrjórri
hálfsystur sinni, Mie (Silya Nymo-
en), að taka við því, athugar hvort
faðir þess, sem hún kallar Typpaj-
esús (Arthur Berning), vilji það og
gengur svo langt að laumast inn á
námskeið fyrir foreldra sem eru í
ferlinu að ættleiða og yfirheyrir þá
um skoðanir þeirra og forréttindi
sem endar með því að hún ásakar
alla hugsanlegu foreldrana um ras-
isma í bráðfyndnu atriði. Hnyttinn
húmor Flikke og klók klipping Kar-
en Gravås er frábær blanda eins og
sést á vandræðalegum endurfundi
Rakelar og Mos. Þau reyna eftir
bestu getu að gera endurfundinn
ekki vandræðalegan þrátt fyrir að
endurlit úr samförum þeirra spilist
fyrir framan þau sem ómögulegt er
að hunsa.
Hafnar móðurhlutverkinu
Barnaninja er ekki hefðbundin saga
þar sem Rakel áttar sig á því eftir
fæðingu barnsins að hún elski það
og geti ekki látið það frá sér.
Áhugaleysið á móðurhlutverkinu
helst óbreytt eftir fæðinguna, Rakel
langar ekki að eignast barn og lét
áhorfendur vita það í byrjun mynd-
arinnar. Af hverju trúðum við henni
ekki? Áhorfendur eru alltaf að bíða
eftir „fullnægjandi“ endi þar sem
hún tekur sig saman í andlitinu og
gengst við móðurhlutverkinu með
kærasta sínum Mos en þetta er ekki
slík saga. Í byrjun myndarinnar,
þegar hún bíður eftir niðurstöðu
þungunarprófsins, eru áhorfendur
látnir vita hvað Rakel vill verða
þegar hún er orðin „stór“; geimfari,
bjórsmakkari, ferðamaður, land-
vörður eða teiknimyndasöguhöf-
undur. Hvergi nefnir hún það að
hún vilji verða móðir. Hefðbundnar
frásagnir eru hins vegar svo
brenndar í okkar að við upplifum
vægt áfall þegar Rakel hafnar móð-
ureðlinu en um leið erum við heilluð
af þessari hreinskilni.
Norskar myndir slá í gegn
Leikstjórarnir, Yngvild Sve Flikke
(Barnaninja) og Joachim Trier
(Versta manneskja í heimi), eru að
færa kvikmyndaunnendum eitthvað
alveg nýtt. Myndirnar minna á lög
eftir Hipsumhaps þar sem ljóti
hversdagsleikinn er söguefnið og
sögupersónur líkar þeim sem við
þekkjum úr raunheiminum, ófull-
komnar en fallegar samt sem áður.
Það sem virðist oft gleymast í kvik-
myndaiðnaðinum er að kvikmyndir
eru tegund af list en margir kvik-
myndagerðarmenn virðast týnast í
markmiðinu við að fanga raunveru-
leikann. Myndir Flikke og Trier eru
fullkomin blanda, þar sem raun-
veruleikinn er söguefnið en
frásagnarformið er listrænt og
skapandi.
Flikke hlaut áhorfendaverðlaun
South by Southwest-kvikmynda-
hátíðarinnar fyrir Barnaninju,
Kristalbjörninn á Berlinale-
hátíðinni og Amanda-verðlaunin
(Norsku Edduverðlaunin) fyrir
bestu leikkonu í aðalhlutverki, besta
leikara í aukahlutverki, bestu leik-
stjórn og besta handrit. Auk þess
sem myndin var valin besta evr-
ópska gamanmyndin á Evrópsku
kvikmyndaverðlaununum í fyrra.
Það kemur ekki á óvart; Barnaninja
er vel heppnuð og mannleg kvik-
mynd sem dregur upp sannferðuga
mynd af konu sem líkar það ekki að
hafa enga stjórn í líkama sínum eða
að því er virðist framtíð sinni. Þetta
er mynd sem kvikmyndaunnendur
ættu ekki að láta fram hjá sér fara.
Langar ekki að verða mamma
Móðurhlutverkið „Það er þessi blanda raunsæis og listrænna þátta sem gerir kvikmyndina einstaka,“ skrifar gagn-
rýndandi meðal annars um Barnaninju. Hér sjást Ingrid og Rakel í áfalli eftir að komast að því að Rakel er ólétt.
Bíó Paradís
Ninjababy / Barnaninja bbbbm
Leikstjórn: Yngvild Sve Flikke. Handrit:
Johan Fasting, Yngvild Sve Flikke, Inga
Sætre. Aðalleikarar: Kristine Kujath
Thorp, Arthur Berning, Nader Khademi
og Herman Tømmeraas. Noregur, 2021.
103 mín.
JÓNA GRÉTA
HILMARSDÓTTIR
KVIKMYNDIR