Morgunblaðið - 29.09.2022, Qupperneq 1
F I M M T U D A G U R 2 9. S E P T E M B E R 2 0 2 2
.Stofnað 1913 . 228. tölublað . 110. árgangur .
Sigraðu
innkaupin
29. september
–2. október
EVRÓPUÆVIN-
TÝRIÐ JÓK
ÁLAGIÐ TIL MUNA
RIFF HALDIN
Í NÍTJÁNDA
SINN
GLÆSILEGIR
VINNINGAR
Í KVÖLD
HÁTÍÐ Í BÆ 52-53 ERTU VISS?JÚLÍUS MAGNÚSSON 51
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Mál er varða nauðganir og önnur
kynferðisbrot liggja mörg hver lengi
óhreyfð, bæði hjá rannsakendum og
ákærendum, meðan á málsmeðferð
stendur. Ástæðan er helst sögð vera
mikil mannekla hjá embættunum.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu
starfshóps um málsmeðferðartíma
kynferðisbrotamála sem ríkissak-
sóknari skipaði í upphafi árs.
Í skýrslunni segir meðal annars að
meðalafgreiðslutími nauðgunarmála
hjá lögreglu hafi að meðaltali verið
413 dagar árið 2021 og hafi lengst um
77% frá árinu 2016. Það sama er uppi
á teningnum hvað varðar kynferðis-
brotamál í heild. Þeim hefur fjölgað
um 33% frá 2016 og er afgreiðslu
þeirra lokið eftir 343 daga að meðal-
tali. Árið 2016 var málsmeðferðar-
tími kynferðisbrota hins vegar 253
dagar. Oft liggja málin óhreyfð í ár
eða lengur hjá rannsóknardeild.
Komast ekki í verkefnin
„Staðan er alls ekki nógu góð. Það lá
fyrir og þess vegna var ákveðið að fara
í meiri greiningarvinnu til þess að
finna út hverjir helstu orsakaþættirnir
væru, hvað lægi að baki og hvort það
væri eitthvað hægt að bæta verklag-
ið,“ segir Margrét Unnur Rögnvalds-
dóttir, saksóknari hjá ríkissaksókn-
ara, sem leiddi störf starfshópsins.
„Málsmeðferðartíminn hefur verið
að lengjast mjög mikið eins og
skýrslan ber með sér. Það sem kom
náttúrlega mjög sterkt fram er að
ástæðan er fyrst og fremst sú að það
vantar starfsfólk. Fólk kemst hrein-
lega ekki í verkefnin sem það á að
leysa. Það eru bara of mörg verk-
efni.“
Liggja jafnvel óhreyfð í ár
- Málsmeðferðartími kynferðisafbrotamála hefur lengst undanfarin ár, segir í
nýrri skýrslu - Mikil mannekla hjá lögreglu og ákærendum sögð helsta ástæðan
232
413
Meðalafgreiðslutími
nauðgunarmála
2016 2021
Lokin mál hjá lögreglu, meðal-
tími í dögum
Heimild: Ríkissaksóknari
MKynferðisbrotamál »…28
_ „Skúmastofninn hefur orðið fyrir
miklu höggi,“ segir dr. Lilja Jó-
hannesdóttir, vistfræðingur og for-
stöðumaður Náttúrustofu Suðaust-
urlands. „Ég fann fjörutíu dauða
skúma á mínum ferðum í sumar allt
fram undir lok ágúst, mestmegnis á
Breiðamerkursandi og aðeins í Ing-
ólfshöfða. Eins heyrði ég að það
hefðu fundist að minnsta kosti þrjá-
tíu dauðir skúmar á Úthéraði.“ Fáir
ungar komust upp í sumar. »10
Morgunblaðið/Ómar Óskarsson
Skúmur Stofninn er lítill og viðkvæmur.
Skúmastofninn varð
fyrir þungu höggi
Altjón varð þegar mikill eldur kom upp í gær
í húsnæði Vasks á Egilsstöðum sem hýsir
bæði verslun og efnalaug. Mikill eldsmatur
var þar inni og lagði svartan reykjarmökk yf-
ir bæinn. Sjónarvottar segja að eldurinn hafi
breiðst hratt út og að ekki hafi liðið á löngu
þar til húsið varð alelda. Þá mátti heyra
sprengingar sem minntu á stóra flugelda er
eldsvoðinn stóð sem hæst.
Mikil mildi var að eldur hafi ekki læst sig í
húsnæði Landsnets sem er sambyggt við
Vask en eldvarnarveggur liggur þar á milli.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Sprengingar heyrðust þegar húsið logaði stafna á milli