Morgunblaðið - 29.09.2022, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 29.09.2022, Qupperneq 4
bands íslenskra sveitarfélaga þessa dagana að umfang sveitarstjórnar- stigsins er minna á Íslandi sem hlut- fall af landsframleiðslu en annars staðar á Norðurlöndum. Á hlaupum um bæinn Kjartan Björnsson, forseti bæjar- stjórnar í Árborg, kannast við aukið álag. „Bæjarfulltrúi sem tekur þátt í bæjarlífinu, fer í sund og er virkur þátttakandi í menningarlífinu finnur vel þessa miklu nálægð við íbúana. Auk þess vinn ég á rakarastofu þar sem allir eru velkomnir. Ég er því beintengdur við fólkið og vinnustað- ur minn sem bæjarfulltrúi er á hlaupum um bæinn,“ segir Kjartan. Hann tekur fram að þetta kunni að vera misjafnt á milli fólks, hvað það setji sig mikið inn í málin og vilji leggja mikið á sig. Segir hann að álagið sé ef til vill meira í Árborg en víða annars staðar vegna hins mikla vaxtar í bæjar- félaginu. Kjartan segir ekki gott að bæjarfulltrúar þurfi að svara símtöl- um og tölvupóstum heima hjá sér á kvöldin. Ekki sé pláss í ráðhúsinu til að útbúa vinnuaðstöðu fyrir bæjar- fulltrúa. Þess vegna hafi verið geng- ið til samninga um aðstöðu í fjar- vinnustofu þar sem bæjarfulltrúar geti unnið og haldið fundi. Gerir hann sér vonir um að það geri starfið skilvirkara. Laun bæjarfulltrúa í Árborg voru hækkuð í lok síðasta kjörtímabils til þess að bæjarfulltrúar geti notað hluta af dagvinnutíma sínum í þágu bæjarins. Segir Kjartan ekki van- þörf á því. Sjálfur sé hann nú í burtu í tólf daga á einum mánuði vegna funda. Borgarfulltrúarnir í Reykjavík eru einu kjörnu fulltrúarnir sem eru í fullu starfi og á launum samkvæmt því. Komið hefur fram að svo er ekki endilega í höfuðborgum hinna nor- rænu landanna. Þannig eru ekki allir borgarfulltrúar í Kaupmannahöfn í fullu starfi. Halldór Halldórsson segir að sú aðgerð að setja bæjar- eða borgar- fulltrúa í fullt starf sé ekki endilega svarið við auknum verkefnum sveit- arfélaga. „Ég hef aldrei verið mikið fyrir það því ég tel að gott sé að hafa fólk úr atvinnulífinu í bæjarstjórn- inni,“ segir hann. Fulltrúum fjölgar Með nýjum sveitarstjórnarlögum frá árinu 2011 breyttust viðmið um fjölda fulltrúa í sveitarstjórnum. Til- gangurinn var fyrst og fremst að fjölga borgarfulltrúum í Reykjavík úr 15 í 23. Það var rökstutt með því að í raun væri hluti varamanna í borgarstjórn virkur sem borgar- fulltrúar. Þeir hefðu ríka aðkomu að stjórnun borgarinnar. Miðað við íbúafjölda í Reykjavík skulu vera þar 23-31 aðalmenn. Borgarstjórn sam- þykkti að talan yrði 23 og tók það gildi við kosningarnar 2018. Áður en ákvæðið kom til fram- kvæmda voru flutt frumvörp á Al- þingi um að afnema þá lagaskyldu að fjölga skuli borgarfulltrúum í 23 heldur yrði það aftur fært í hendur borgarstjórnar sjálfrar að ákveða hvort þörf væri á fjölgun. Frumvörp- in voru svæfð í nefnd. Lögin hafa einnig haft þau áhrif að þurft hefur að fjölga fulltrúum í bæj- arstjórnum nokkurra stórra sveitar- félaga, þar sem íbúum hefur verið að fjölga. Fjölgað hefur verið í bæjar- stjórnum Garðabæjar, Vestmanna- eyja, Mosfellsbæjar og Árborgar úr níu fulltrúum í ellefu. Í Árborg ákvað bæjarstjórn að nýta sér ekki frest til ársins 2026 heldur samþykkti að fjölgunin tæki gildi við síðustu kosn- ingar. Fullt starf ekki endilega svarið - Miklar breytingar hafa orðið á verkefnum og kröfum til sveitarfélaga með tilheyrandi auknu álagi - Fyrrverandi formaður Sambands sveitarfélaga segir að það eigi ekki að leiða sjálfkrafa til fjölgunar 4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2022 ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 INFO@UU.IS TRYGGÐU ÞÉR GISTINGU Í TÍMA! SKÍÐAFRÍ TIL ÍTALÍU DINNA OG HELGI TAKA VEL Á MÓTI YKKUR Í ÍTÖLSKU ÖLPUNUM VERÐ FRÁ139.900 KR Á MANN M.V 2 FULLORÐNA OG 1 BARN 21. - 28. JANÚAR 2023 NÁNAR Á UU.IS INNIFALIÐ ER FLUG, GISTING, FLUTNINGUR Á SKÍÐABÚNAÐI OG ÍSLENSK FARARSTJÓRN ERTU MEÐ HÓP? SENDU OKKUR FYRIRSPURN Á HOPAR@UU.IS Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Uppbygging malasíska athafna- mannsins Loos Eng Wah á ferða- þjónustu á Leyni 2 og 3 í Landsveit er enn á ný kom- in á ís. Skipulags- stofnun sendi frá sér endurskoð- aða ákvörðun í júní um mat á því hvort uppbygg- ing hans þyrfti að fara í umhverfis- mat. Niðurstaðan var að ekki þyrfti umhverfismat. Nágrannar Loos, sem hafa barist gegn uppbyggingunni, kærðu þessa endurskoðuðu ákvörðun Skipulags- stofnunar til úrskurðarnefndar um- hverfis- og auðlindamála og nú er niðurstöðu hennar beðið. Eins og Morgunblaðið hefur greint frá hefur Loo síðustu þrjú ár unnið að uppbyggingu á svæðinu. Þar á að reisa allt að 200 fermetra þjónustuhús fyrir tjaldsvæði, allt að 800 fermetra byggingu fyrir veit- ingastað, verslun, móttöku og fleira og allt að 45 gestahús á einni hæð, sum þeirra 60 fermetra að stærð og kúluhús við hvert og eitt. Þetta eru síður en svo einu áform Loos um uppbyggingu ferðaþjón- ustu í Rangárþingi ytra. Fram- kvæmdir eru þegar hafnar við bygg- ingu fjölorku- og þvottastöðvar á Faxaflötum sem er rétt sunnan við Suðurlandsveg, austan við Stracta- hótelið. Þá hefur Loo lagt fram teikningar vegna áforma við Mið- vang 5 á Hellu, lóð skammt frá ráð- húsi bæjarins. Þar á að rísa þriggja hæða hús með verslunum á 1. hæð og íbúðum á 2. og 3. hæð. Að síðustu hefur hann kynnt áform sín á Rang- árbakka 4. Þar verður þriggja hæða hús sem skiptist í hótelálmu og íbúðaálmu ásamt sérstæðu veitinga- húsi við árbakkann. Athygli vekur að hið sérstæða veitingahús er kúlu- laga glerhýsi og tónar útlit þess við áform Loos á Leyni. „Þetta er norð- urljósa-hús. Það er mikið kallað eft- ir því núna, sérstaklega af ferða- mönnum úr austri,“ segir Haraldur Birgir Haraldsson, skipulags- og byggingarfulltrúi Rangárþings ytra. Þá hefur Loo farið þess á leit við sveitarfélagið að lóðin gegnt fyrir- huguðu hóteli verði heimiluð undir bílastæði. Uppbygging Loos kærð enn á ný - Framkvæmdir hafnar við þvottastöð Loo Eng Wah Aldís Hafsteinsdóttir, fráfarandi formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga fjallaði, við setningu landsþings sambandsins í gær, um mikilvægi þess að tryggja sveit- arfélögum aukna tekjustofna. Hún gagnrýndi ríkið sem hún sagði ekki hafa skilað tillögum í Tekjustofnanefnd sveitarfélaga og ríkisins. Nefndin hefur skilað af sér drögum að lokaskýrslu. Fulltrúar ríkisins í nefndinni hafi skilað auðu. „Einu tillögurnar í skýrslunni eru frá fulltrúum sambandsins. Þær eru vel rökstuddar, fjöl- breyttar og nákvæmlega útfærðar. Hluti þeirra fjallar að sjálfsögðu um að ríkið auki fjárframlög til þjónustu við fatlað fólk um meira en 10 milljarða,“ sagði hún. Nú verði ríkisstjórnin og Alþingi að taka á málinu. omfr@mbl.is Morgunblaðið/Margrét Þóra Þórsdóttir Þingsetning Þingið fer fram á Akureyri og stendur yfir í þrjá daga. Seturétt eiga 152 fulltrúi frá 63 sveitarfélögum. Segir fulltrúa ríkisins hafa skilað auðu BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Miklar breytingar hafa orðið á verk- efnum sveitarfélaga og kröfum sem gerðar eru til kjörinna fulltrúa og starfsmanna á síðustu árum og ára- tugum. Halldór Halldórsson, fyrr- verandi formaður Sambands ís- lenskra sveitarfélaga, segir að enginn geti sagt annað en að þessu hafi fylgt aukið álag á kjörna full- trúa. Hann telur að það eigi ekki að leiða sjálfkrafa til fjölgunar fulltrúa. Fram kemur í skýrslu verkefnis- stjórnar um vinnuaðstæður kjörinna fulltrúa í sveitarstjórnum að álag á fulltrúa hafi farið vaxandi á síðustu árum. Er það rakið til aukinnar ábyrgðar sveitarfélaganna á opin- berri þjónustu og eftirliti af ýmsu tagi, ásamt auknum kröfum íbúa til starfseminnar. Kemur þetta ekki síst fram í minni sveitarfélögum. Meðal úrbóta sem verkefnisstjórnin leggur til er að skoðað verði hvort ástæða sé til að rýmka reglur laga um fjölda fulltrúa í sveitarstjórnum í þeim tilgangi að draga úr álagi. Halldór Halldórsson, fyrrverandi bæjarstjóri á Ísafirði og fyrrverandi formaður Sambands íslenskra sveit- arfélaga, þekkir þróun mála í nærri þrjá áratugi eða frá því hann tók sæti í bæjarstjórn Grindavíkur á árinu 1994 en hann hætti sem borg- arfulltrúi í Reykjavík 2018. Hann segir að miklar breytingar hafi orðið á þessum tíma. Nefnir hann auknar kröfur í nýjum sveitarstjórnarlög- um, strangari kröfur um fjármál, stjórnsýslu- og upplýsingalög sem höfðu áhrif á stjórnsýslu sveitarfé- laga og ný skipulags- og bygginga- lög. Umfangið hafi aukist með yfir- færslu grunnskólans og málefna fatlaðra til sveitarfélaganna. „Allir ferlar eru miklu flóknari og taka lengri tíma en áður var,“ segir Hall- dór. Fram kemur í lokadrögum að skýrslu um tekjustofna sveitarfélaga sem fjallað er um á landsþingi Sam-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.