Morgunblaðið - 29.09.2022, Side 6

Morgunblaðið - 29.09.2022, Side 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2022 LAGERSALA LÍN DESIGN HEFST Á MORGUN FLATAHRAUNI 31 HAFNARFIRÐI Á MÓTI KAPLAKRIKA KL15.00 Undanfarið hefur verið unnið að því að grafa fyrir grunni fjölbýlis- húss á lóð Valhallar við Háaleitis- braut. Úr fjarlægð séð er eins og þetta svipfagra hús, Valhöll, standi á bjargbrún. Hið nýja hús á lóðinni verður um 5.000 fermetrar á 4-6 hæðum og þar verða 48 íbúðir, auk atvinnu- rýmis á 1. hæð. Undir húsinu verð- ur bílakjallari. Það var í fyrrahaust sem bygg- ingarfulltrúinn í Reykjavík veitti Sjálfstæðisflokknum leyfi til að byggja fjölbýlishús á lóð Valhallar, höfuðstöðva flokksins. Síðar er stefnt að því að reisa 2.500 fm fimm hæða skrifstofu- byggingu við horn Háaleitisbrautar og Kringlumýrarbrautar. sisi@mbl.is Morgunblaðið/sisi Valhöll alveg „á bjargbrúninni“ Heilbrigðisráðherra hefur úthlutað rúmum 650 milljónum króna úr Framkvæmdasjóði aldraðra í sam- ræmi við tillögur stjórnar sjóðsins. Fram kemur í tilkynningu heil- brigðisráðuneytisins að hæstu framlögin renni til hjúkrunarheim- ila Sjómannadagsráðs, alls um 250 milljónir króna til 14 mismunandi verkefna. „Þar af vega þyngst úr- bætur á Hraunvangi í Hafnarfirði þar sem m.a. verða gerðar endur- bætur á 50 baðherbergjum í einka- rýmum íbúa. Einnig verður þar ráðist í innleiðingu nýjungar sem felur í sér hæðarstillanleg salerni og handlaugar og færanleg sturtu- sett sem auðveldar íbúum að sinna persónulegu hreinlæti og bætir vinnuaðstöðu starfsfólks.“ Styrkir eru veittir til endurbóta- og viðhaldsverkefna á hjúkrunar- heimilum víðsvegar um landið. Fær Sveitarfélagið Ölfus tæpar 29 millj- ónir vegna framkvæmda við nýja dagdvöl fyrir 16 einstaklinga. Úthluta 650 milljónum til hjúkrunarheimila „Við hefðum mátt loka leiðinni fyrr,“ segir G. Pétur Matthíasson, upplýs- ingafulltrúi Vegagerðarinnar. Tals- menn bílaleiga hafa síðustu daga gagnrýnt stofnunina fyrir að hring- veginum um Möðrudalsöræfi, það er milli Mývatns og Jökulsdals, hafi ekki verið lokað í tíma í óveðrinu sem gekk yfir norðan- og austanvert landið sl. sunnudag. Allt að fjörutíu bílar, þar af margir í eigu bílaleig- anna, skemmdust eða urðu ónýtir eftir að hafa lent í byl og grjóthríð sem af veðurofsanum leiddi. Hugs- anlegt er að viðskiptavinir sem lentu í þessu gjörningaveðri sitji uppi með skaðann og skuldi jafnvel bílverðið. Veðurspár sem Vegagerðin starf- ar eftir bentu til að á sunnudag gætu orðið sterkar vindhviður og ofankoma við sunnanverðan Vatna- jökul. Því var vegum þar, frá Kirkjubæjarklaustri og austur á firði, lokað. Ekki var spáð jafn- miklum hviðum á öræfum austan- lands en heldur meiri ofankomu en varð. Laus jarðvegur leiddi síðan til vandræðanna. Þegar veðrið skall á og staða mála á Fjöllum varð ljós var veginum lok- að með því að í hádeginu á sunnudag voru slár settar fyrir veginn – það er við Námaskarð í Mývatnssveit og Skjöldólfsstaði innst á Jökuldal. Bílar voru þá þegar á leiðinni milli tveggja áðurnefndra staða og komu björgunarsveitir og fleiri ökumönn- um þeirra og farþegum til aðstoðar. Hugsanlegt er þó að meðan á lokun stóð hafi einhverjir komist inn á lok- aðan veginn, til dæmis af hjáleiðum eða framhjá lokunarslám. „Núna erum við að fara yfir at- burðarás þessa dags og greina hvað gera hefði mátt betur,“ segir G. Pét- ur. Hann segir Vegagerðina ekki bera skaðabótaskyldu í málum sem þessum. Slíkt sé aðeins ef rekja megi skemmdir á ökutækjum til ástands vega, svo sem ef holur eru á vegum eða blæðingar úr malbiki og rekja megi til þess að Vegagerðin hafi ekki brugðist við með merk- ingum eða lagfæringum. Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Skemmdir Nokkrir af bílaleigubílunum sem skemmdust í óveðrinu. Of seint gripið til lokunar vegarins á Fjöllum - Vegagerðin svarar í kjölfar óveðurs Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Skúmastofninn hefur orðið fyrir miklu höggi,“ segir dr. Lilja Jóhann- esdóttir, vistfræðingur og forstöðu- maður Náttúrustofu Suðaustur- lands. „Ég fann fjörutíu dauða skúma á mínum ferðum í sumar allt fram undir lok ágúst, mestmegnis á Breiðamerkursandi og aðeins í Ing- ólfshöfða. Eins heyrði ég að það hefðu fundist að minnsta kosti þrjá- tíu dauðir skúmar á Úthéraði.“ Fuglaflensan reyndist skæð Þá er vitað að fuglaflensan hefur einnig drepið marga skúma í Skot- landi og Færeyjum. Súlur drepast enn unnvörpum og eins hafa margir helsingjar fallið fyrir fuglaflensunni í Skaftafellssýslu. Lilja segir að sumir telji að allt að 90% skúmastofnsins á Bretlandseyjum hafi drepist. Hún segir að 47 skúmsungar hafi verið merktir í Ingólfshöfða í sumar en þar hafa verið merktir allt að 150 skúmsungar á sumri í venjulegu ár- ferði. Á Breiðamerkursandi voru merktir aðeins tveir skúmsungar í sumar. Lilja segir að hún og fulltrú- ar Fuglaathugunarstöðvar Suðaust- urlands á Höfn hafi séð í mesta lagi samtals tíu skúmsunga á Breiða- merkursandi. Engar vísbendingar eru um hvort þeir komust á legg. Varpið gekk því afar illa í sumar. Skúmur í útrýmingarhættu? var yfirskrift erindis Lilju á ársfundi Náttúrufræðistofnunar Íslands 2022 í gær. En er skúmurinn í útrýming- arhættu? „Það er erfitt að svara því núna,“ segir Lilja. „Það verður mjög áhugavert að sjá hvað gerist í vor þegar skúmarnir eiga að skila sér á varpstöðvarnar.“ Skúmurinn er far- inn út á úthafið þar sem hann dvelur yfir veturinn og því ekki hægt að segja til um hvort fuglar eru enn að drepast í stórum stíl. Vetrarstöðvar skúmsins eru í Norður-Atlantshafi allt frá Nýfundnalandi og austur að Spánarströndum. Langlífir en fjölga sér hægt Skúmurinn verpir aðallega á eyj- um í norðaustanverðu Atlantshafi, allt frá Skotlandi í suðri og norður á Svalbarða og frá Íslandi og austur til Skandinavíu. Heimsstofn skúmsins var metinn vera 30-35 þúsund fuglar. Þá var talið að um þriðjungur stofns- ins verpti á Íslandi. Skúmar geta orðið allt að 40 ára gamlir en fjölga sér hægt. Þeir byrja varp á 5. til 8. ári og verpa 1-2 eggj- um á ári. Fuglaathugunarstöðin hef- ur merkt talsvert marga skúmsunga í gegnum árin en fáir hafa endur- heimst hér á landi. Raunar fréttist af einum íslenskum skúmi norður á Svalbarða. Fuglaflensan drepur skúmana - Skúmastofninn hefur orðið fyrir miklu höggi - Margir dauðir fuglar fundust hér á landi í sumar - Fáir ungar virðast hafa komist á legg - Útlit fyrir að mikill skúmafellir hafi orðið á Bretlandseyjum Morgunblaðið/RAX Skúmur Svo virðist sem margir skúmar hafi fallið í fuglaflensu hér og erlendis og fáir ungar komist upp í sumar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.