Morgunblaðið - 29.09.2022, Page 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2022
Hlýtt og
notalegt
Þinn dagur, þín áskorun
100% Merino
ullarnærföt
fyrir dömur og herra
Stærðir: S–XXL
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | run@run.is | www.runehf.is
OLYMPIA
Sölustaðir:
Hagkaup • Fjarðarkaup • Útilíf • N1 • Vesturröst • Verslun Guðsteins Eyjólfssonar • Verslunin Bjarg, Akranesi
Herrahúsið, Ármúla 27 • JMJ, Akureyri • Lífland, Hvolsvelli og Blönduósi • Verslunin Blossi, Grundafirði • Efnalaug Vopnafjarðar
Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki • Verslun Grétars Þórarinssonar, Vestmannaeyjum • Borgarsport, Borgarnesi
Kaupfélag V-Húnvetninga, Hvammstanga • Verslun Bjarna Eiríkssonar, Bolungarvík • Þernan, Dalvík • Siglósport, Siglufirði
Bókaverslun Breiðarfjarðar, Stykkishólmi • Vaskur, Egilsstöðum • Skóbúð Húsavíkur • Efnalaug Suðurlands, Selfossi • run.is
Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355
laugardaginn 1. október
Vefverslun
selena.is
Útsölulok
50%
afsláttur
af öllum
útsöluvörum
Undirföt * Sundföt * Náttföt
Náttkjólar * Sloppar
Gisli Freyr Valdórsson
gislifreyr@mbl.is
Það heyrir til undantekninga að lítil
og meðalstór fyrirtæki hafi yfir að
ráða sérstakri markaðsdeild eða svig-
rúmi til að verja miklum tíma í mark-
aðsmál. Því þurfa þau oft á utanað-
komandi ráðgjöf að halda, enda er
markaðssetning einn mikilvægasti
þáttur í rekstri fyrirtækja.
Þetta segir Riad Zouheir, aðal-
ráðgjafi Amplify My Sales í Bret-
landi, í samtali við Morgunblaðið.
Zouheir verður fyrirlesari á mark-
aðsráðstefnu Kompanís í ár.
Skýr markaðsstefna mikilvæg
„Þrátt fyrir að tiltekið fyrirtæki
reki ekki heila markaðsdeild getur
það, og þarf, að hafa skýra markaðs-
stefnu. Við vitum hvað virkar og hvað
ekki og það er meðal þess sem ég
mun ræða við gesti ráðstefnunnar í
næstu viku,“ segir Riad sem segist
spenntur fyrir því að hitta ráð-
stefnugesti.
Án þess að rekja í smáaatriðum
umfjöllunarefni sitt á komandi mark-
aðsráðstefnu biðjum við Riad um að
segja frá nokkrum af þeim þáttum
sem fjallað verður um. Hann víkur
strax að mikilvægi þess að hafa stöð-
ugleika í skilaboðum og nefnir í því
samhengi að fyrirtæki þurfi alltaf að
eiga ákveðið talsamband við neyt-
endur.
„Ég nefni gosdrykk og þú hugsar
um Kók eða Pepsi, ég nefni raksápu
og þú hugsar um Gillette og þannig
mætti áfram telja upp vörumerki
sem hafa skapað sér sterka stöðu –
með því að auglýsa með stöðugum og
skilvirkum hætti,“ segir Riad.
„Síðan sjáum við fyrirtæki á borð
við McDonalds, sem þarf í raun ekki
að auglýsa en gerir það samt. Það er
af því að fyrirtækið er ekki bara að
hugsa um viðskiptavini dagsins í dag
heldur líka viðskiptavini til framtíðar.
Það gilda sömu lögmál um minni
fyrirtæki sem ætla að selja ákveða
vöru eða þjónustu. Með því að minna
stöðugt á sig eru neytendur meðvit-
aðir um tilvist þeirra og munu að lok-
um snúa viðskiptum sínum til
þeirra.“
Stöðugt samband við neytendur
Það er ekki hjá því komist að
spyrja Riad um það hvernig fyrirtæki
eigi að haga markaðsmálum sínum
þegar kreppir að í hagkerfinu, hvort
að rétt sé að draga saman seglin eða
viðhalda auglýsingaáætlun. Hann
svarar því strax til að neytendur leiti
til þeirra fyrirtækja sem þau þekkja
og treysta, og það traust sé byggt
upp með markvissum auglýsingum.
„Fyrirtæki sem halda áfram að
auglýsa í gegnum samdráttarskeið
eru þrisvar sinnum fljótari að ná
vopnum sínum þegar það rofar til á
ný,“ segir Riad. „Viðskiptavinir fara
þangað sem þeir eru velkomnir. Með
því að viðhalda stöðugu talsambandi
við viðskiptavini í gegnum auglýs-
ingar eru fyrirtæki að bjóða þá
velkomna.“
Kompaní, viðskiptaklúbbur
Morgunblaðsins og mbl.is, stendur
sem fyrr segir fyrir markaðs-
ráðstefnunni, sem haldin verður á
Grand Hótel frá þriðjudegi til
fimmtudags í næstu viku. Þetta er í
tíunda sinn sem markaðsráðstefnan
er haldin og nú eftir tveggja ára hlé
vegna heimsfaraldurs. Í ár verður
sjónum beint að því hvernig hámarka
má árangur og auka sölu með skipu-
lögðum og sýnilegum auglýsingum.
Fara þangað sem þeir eru velkomnir
- Viðskiptaklúbbur Morgunblaðsins heldur markaðsráðstefnu í næstu viku - Haldin í tíunda sinn
- Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar segir mikilvægt fyrir fyrirtæki að auglýsa í gegnum samdráttarskeið
Morgunblaðið/Eggert
Markaðsmál Riad Zouheir hefur áratugareynslu og hefur haldið fyrir-
lestra um markaðsmál á yfir 300 ráðstefnum og vinnustofum víða um heim.