Morgunblaðið - 29.09.2022, Page 24

Morgunblaðið - 29.09.2022, Page 24
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2022 SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • TRYGGVABRAUT 24, AKUREYRI • S: 560 8888 • vfs.is vfs.is Athugið: 25% afsláttur af öllumvörum aðeins í 4 da ga: 30. sept. –3. okt. ELTAK sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Segulsvið raflína í sjó hefur áhrif á áttaskyn ýsuseiða og dregur úr hreyfingu þeirra. Þetta getur um sinn haft áhrif á lífslíkur þeirra. Þetta er niðurstaða vísindamanna hjá norsku hafrannsóknastofnunni, Havforskningsinstituttet. Undanfarið hefur stofnunin gert rannsóknir á áhrifum af uppbygg- ingu og rekstri vindorkuvera til hafs á lífríki sjávar, sem hluti af umfangsmiklu rannsóknarverkefni. Þar í landi eru uppi umfangsmikil áform um uppbyggingu slíkrar orkuframleiðslu. „Vindorkuver á hafi úti og önnur orkumannvirki til hafs eru tengd háspennustrengjum sem framleiða segulsvið. Þetta get- ur haft áhrif á fiska sem synda eða rekur nálægt – sérstaklega seiði sem hafa minni getu til að synda í burtu frá strengjunum,“ segir í grein sem birt hefur verið á vef stofnunarinnar. Nýleg rannsókn undir stjórn Alessandro Cresci, vísindamanns hjá Havforskningsinstituttet, miðaði sérstaklega að því að meta áhrifin á ýsuseiði, en ýsan er mikilvægur nytjastofn við Noregsstrendur líkt og við Ísland. „Við vildum kanna hvort þau seiði sem rekur á svæði þar sem vindmyllur eru fyrirhug- aðar gætu orðið fyrir áhrifum af segulsviðum af sama styrk og þeim sem myndast af sæstrengjum sem tengja hverflana saman,“ segir Cresci í greininni. Sund háð áttavita Tilraun var gerð þar sem ýsuseiði voru látin reka eða synda framhjá raflínu í sjó, í sérstökum tanki á til- raunastofu. „Að verða fyrir segul- sviði minnkaði sundvirkni meiri- hluta ýsuseiðanna um meira en helming. Það dró einnig verulega úr hröðun þeirra. Slík minnkun á sund- virkni getur haft áhrif á útbreiðslu og lífslíkur seiðanna í náttúrunni,“ útskýrir Cresci. Í fyrri rannsóknum hefur hann ásamt samstarfsfólki sínu sýnt fram á að ýsuseiði rekur ekki bara í haf- straumum, heldur synda þau til norðvesturs eftir innbyrðis segul- stýrðum áttavita. Sund seiðanna hefur áhrif á það hvert þau rata eft- ir hrygningu. Ef hægt er á sund- virkninni með sæstrengjum getur það því haft áhrif á útbreiðslu seið- anna og dregið úr lífslíkum þeirra, að því er fram kemur í greininni. „Niðurstöður okkar veita nokkrar af fyrstu vísbendingum um hugs- anleg vistfræðileg áhrif af þróun vindorkuvera til hafs. Þessa tegund rannsókna ber að hafa í huga þegar hugað er að því hvað frekari þróun gæti þýtt fyrir lífríkið í sjónum,“ segir Cresci. Engin áhrif á sandsíli Fyrr á árinu sagt frá niðurstöð- um úr rannsókn á áhrifum segul- sviðs raflína á sandsílaseiði, en Cresci leiddi einnig þá rannsókn. Með tilraunum komust vísindamenn að því að segulsvið háspennu- strengja laðar hvorki að né hrindir frá sér sandsílaseiði. Segulsviðið hefur heldur ekki áhrif á sundhegð- un þeirra. Vísindagreinar hafa verið birtar vegna beggja rannsókna, annars vegar í Marine Environmental Research um sandsílin og PNAS Nexus vegna ýsuseiðanna. Raflínur geta minnkað lífslíkur ýsuseiða - Segulsvið dregur úr sundvirkni - Áhrif á útbreiðslu seiða Ljósmynd/Havforskningsinstitutt Segulsvið Ýsuseiði, sem notuð voru í rannsókn á áhrifum segulsviðs raflína á hreyfingu þeirra, fengust skammt frá rannsóknastöð á Austevoll í Noregi. Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Norska ríkisstjórnin tilkynnti í gær- morgun áform sín um að leggja 40% auðlindaskatt á sjókvíaeldi í Noregi. Í kjölfarið hrundi sjávarfangs- vísitala kauphallarinnar í Osló um 21,27%. Frumvarp norsku ríkisstjórnar- innar gerir ráð fyrir að auðlinda- skatturinn verði innheimtur frá og með 1. janúar 2023 og á að skila 3,65 til 3,8 milljörðum norskra króna, jafnvirði um 49 til 51,3 milljarða ís- lenskra króna. Auðlindaskatturinn nær jafnt til lax, urriða og regnboga- silungs sem alinn er í sjókvíum og er grundvöllur álagningarinnar vísitala meðalverðs á laxi, en söluverð á urr- iða og regnbogasilungi. Tapa milljörðum Gengi hluta Salmar lækkaði hvað mest eða rétt rúm 30%, þá lækkaði gengi bréfa Grieg Seafood um 26,91% og Lerøy Seafood Group um 26,39%. Bréf stærsta fiskeldisfyrir- tæki í heimi, Mowi, lækkuðu um rúm 19%. Dagens Næringsliv áætlar að yfir 45 milljarðar norskra króna hafi þurrkast út, það er yfir 600 millj- arðar íslenskra króna. Ljósmynd/Mowi Eldi Gengi hlutabréfa Mowi og annarra fiskeldisfyrirtækja tók dýfu. Bréf í fiskeldisfyr- irtækjum hrundu - Norsk stjórnvöld boða auðlindaskatt Margrét Kristín Pétursdóttir, for- stöðumaður gæðamála hjá Vísi í Grindavík, var kjörin nýr formaður Félags kvenna í sjávarútvegi, KÍS, á aðalfundi félagsins sem fram fór í húsakynnum Háskólans á Akureyri á mánudag. Margrét tekur við for- mennsku af Agnesi Guðmunds- dóttur, sölustjóra Icelandic Asia, en hún hefur gegnt embættinu undan- farin fjögur ár. Tilgangur félagsins er að styrkja og efla konur sem starfa í sjávar- útvegi og haftengdri starfsemi og stendur félagið fyrir viðburðum og fræðslu með það að markmiði að efla samstöðu og samstarf kvenna. gso@mbl.is Margrét Kristín kosin nýr formaður KÍS Afurðaverð á markaði 28. september,meðalverð, kr./kg Þorskur, óslægður 496,17 Þorskur, slægður 506,32 Ýsa, óslægð 337,47 Ýsa, slægð 324,47 Ufsi, óslægður 233,08 Ufsi, slægður 271,08 Gullkarfi 318,52 Litli karfi 10,00 Blálanga, slægð 178,39 Langa, óslægð 308,03 Langa, slægð 342,86 Keila, óslægð 118,33 Keila, slægð 185,14 Steinbítur, óslægður 235,94 Steinbítur, slægður 417,31 Skötuselur, óslægður 753,00 Skötuselur, slægður 649,89 Grálúða, slægð 429,00 Skarkoli, slægður 542,43 Þykkvalúra, slægð 547,94 Langlúra, óslægð 283,92 Langlúra, slægð 214,00 Sandkoli, óslægður 141,29 Sandkoli, slægður 69,81 Skrápflúra, óslægð 30,55 Gellur 1.288,00 Hlýri, óslægður 310,00 Hlýri, slægður 375,13 Lúða, slægð 423,26 Lýr, óslægður 56,00 Lýsa, óslægð 116,65 Lýsa, slægð 91,32 Náskata, slægð 132,61 Stórkjafta, slægð 180,00 Tindaskata, óslægð 12,80 Undirmálsýsa, óslægð 26,10 Undirmálsýsa, slægð 36,20 Undirmálsþorskur, óslægður 199,70 Undirmálsþorskur, slægður 160,15

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.