Morgunblaðið - 29.09.2022, Blaðsíða 30
30 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2022
•HúðslípunHúðfegrunar
skilar góðumárangri
•Hreinsar og frískar
upp á þreytta húð
•Vinnur burt unglingabólur
Ve
13
Við to rét
Pe
21 reynsla
Við fe
HÚÐSLÍPUN
Húðslípun vinnur vel á ysta
lagi húðarinnar og frískar
upp á og hreinsar þreytta húð
Tímapantanir í síma 533 1320
PORSCHE NOTAÐIR BÍLAR
Skoðaðu úrvalið á benni.is
Krókhálsi 9
Sími: 590 2000
Virka daga 9 -17
Laugardaga 12 - 16
FNJ16
Porsche Cayenne
NGJ59
PorscheMacan S
FKM80
Porsche Cayenne S E-Hybrid
YRA68
Porsche Panamera Turbo S E-Hybrid
Hér er dásamleg bifreið á ferð, allt í senn sportlegur
og elegant! Leðursæti, næs! Hiti og kæling í
framsætum sem eru einnig með minni. Rafdrifnir
hliðarspeglar með minni, ofl. ofl.
Verð: 5.490.000 kr.
Nýskráður nóvember 2011 | Ekinn 134.000 km.
Gríðarlega flottur bíll! Einn fyrri eigandi, nýþjónastaður
hjá Porsche á Íslandi! Mjög vel búinn: Stillanleg
loftpúðafjöðrun, lyklalaust aðgengi, rafdrifinn
dráttarkrókur, hiti í framsætum- og stýri, hraðastillir
og 18 stillinga sportsæti svo eitthvað sé nefnt.
Verð: 5.990.000 kr.
Nýskráður ágúst 2014 | Ekinn 106.000 km.
Lítið ekinn, vel búinn, HYBRID Cayenne. Stillanleg
loftpúðafjöðrun, ljúflokun á hurðum, hiti í stýri, fram-
og aftursætum, opnanlegt panorama glerþak, dekktar
rúður, BOSE hljómtæki, 14 stillinga sport-
þægindasæti svo eitthvað sé nefnt!
Verð: 9.490.000 kr.
Nýskráður nóvember 2019 | Ekinn 44.000 km.
Einstakt tækifæri til að eignast sturlaðan bíl: Heilleður
í svörtu, LED PDLS framljós, 21" Turbo álfelgur, hiti og
loftkæld 18" sportframsæti, beygjur að aftan,
hæglokun á hurðum, Burmester hágæða hljómflut-
ningstæki og margt fleira. Koma, skoða og kaupa.
Verð: 24.900.000 kr.
Nýskráður september 2017 | Ekinn 53.000 km.
B
irtm
eð
fyrirvara
um
m
ynd-
og
textabrengl
Upplifðu sanna ökugleði...
Að morgni 7. júní
sl., er ég var rétt að
koma heim á bíl mín-
um, tók ég eftir því að
lögreglubíll var á eftir
mér. Erindi lögregl-
unnar var að spyrja
mig hvort það væri ég
sem rétt áður hefði
skvett rauðri máln-
ingu á skiltið á vegg
sendiráðs Rússlands í
Garðastræti. Játti ég
því að sjálfsögðu og bætti við í
framhaldinu að ég væri einnig sá
sem það hefði gert áður eða hinn 3.
mars sl. Að því búnu fóru þeir,
þannig að ekki var ég þá spurður
hvort það kynni líka að hafa verið
ég sem í apríl sl. og aftur í maí sl.
málaði rauðri málningu yfir skiltið
við sendiráðsbygginguna í Túngötu
24, sem leiddi til þess að það var
tekið niður mönnum til mikils
ánægjuauka.
Ástæða þess að ég greip til þess-
ara róttæku aðgerða var sú ákvörð-
un stríðsglæpamannsins Pútíns
forseta Rússlands að ráðast inn í
nágrannaland sitt Úkraínu. Þá ekki
síst vegna þeirra svívirðilegu
stríðsglæpa og fjöldamorða sem
rússneski herinn varð síðan í fram-
haldinu uppvís að og öllum er kunn-
ugt um og ekki þarf að tíunda frek-
ar hér. Var mér öllum lokið við að
vera upplýstur um þessi óhæfuverk
rússneskra hermanna á saklausum
nágrönnum sínum. Af þeim ástæð-
um var mér því gjörsamlega
ómögulegt að sitja aðgerðalaus með
hendur í skauti og fylgjast daglega
í fjölmiðlum með hryllilegri fram-
göngu rússneska innrásarliðsins og
fjöldamorðum, hverjar svo sem af-
leiðingarnar kynnu síðar að verða
fyrir mig vegna viðbragða minna.
Allir bera ábyrgð á gerðum sín-
um og taka út þá refsingu er ís-
lensk lög bjóða ef út af er brugðið.
Menn skemma ekki eigur annarra
t.d. með málningu eða á annan hátt
eða valda skaða með öðrum beinum
eða óbeinum hætti án afleiðinga
fyrir þá. Hér skal nefna sér-
staklega sendiráð erlendra ríkja,
sem njóta sérstakrar verndar, en í
1. mgr. 95. gr. alm. hegningarlaga
nr. 19/1940 segir þetta orðrétt:
„Hver sem opinberlega smánar er-
lenda þjóð eða erlent
ríki, æðsta ráðamann,
þjóðhöfðingja þess,
fána þess eða annað
viðurkennt þjóð-
armerki, fána Samein-
uðu þjóðanna eða fána
Evrópuráðs, skal sæta
sektum eða fangelsi
allt að tveimur árum.
Nú eru sakir miklar og
varðar brot þá fangelsi
allt að sex árum.“
Fram hefur komið
tillaga á Alþingi um að
fella skuli þessa lagagrein út, sem
ég tel sjálfur að ekki skuli gera. Sé
litið hlutlægt á málið, þá þurfa er-
lend sendiráð að geta notið verndar
og friðhelgi í því landi sem þau
starfa í, hverjar og hvernig sem
pólitískar væringar kunna að vera í
heiminum á hverjum tíma. Þetta
snýst fyrst og fremst um vernd og
öryggi sendiráðsfólksins, hvað svo
sem gagnrýna má stjórnvöld við-
komandi ríkis fyrir. Þetta hefur
mönnum alls staðar í heiminum
verið ljóst lengi. Það sem þó mætti
hugleiða hér er það hvort refsi-
rammi þessarar lagagreinar sé ekki
of víður og ætti að þrengja. Hvað
mínar áðurnefndu aðgerðir snertir
og hugsanleg viðbrögð við þeim, þá
mun tíminn leiða í ljós hvert fram-
haldið verður þar.
Að endingu vil ég árétta hve
aðdáunarverð mér þykir barátta
Úkraínumanna við að reyna að
vernda sjálfstæði lands síns vegna
innrásar rússnesku heimsvalda-
sinnanna. Ber öllum þjóðum heims
svo og ríkisborgurum þessara
landa skylda til að styðja varnar-
baráttu Úkraínumanna af öllum
mætti. Megi Úkraínumönnum
ganga allt í haginn í baráttu sinni.
Rússar og rauð
málning
Jónas
Haraldsson
Jónas Haraldsson
» Ástæða þess að ég
greip til þessara rót-
tæku aðgerða var sú
ákvörðun stríðsglæpa-
mannsins Pútíns forseta
Rússlands að ráðast inn
í nágrannaland sitt
Úkraínu.
Höfundur er lögfræðingur.
Við trúum því að hér séu lífskjör jafnari en víðast annars stað-
ar og að við lifum í þjóðfélagi án mikillar stéttaskiptingar.
Einhverjir eru þó jafnari en aðrir og fá oft að heyra það
óþvegið, sérstaklega á samfélagsmiðlum. Ekki fréttist þó
mikið um óhóflega einkaneyslu þessara landa okkar og ef þeir
skyldu borga ca. tvöföld meðalmánaðarlaun fyrir eina næt-
urgistingu einhvers staðar, þótt með morgunverði væri, þætti
það saga til næsta bæjar og ekki sæmandi í okkar jafn-
aðarlandi.
Hins vegar dreymir sumt athafnafólk hér um að laða ein-
mitt slíkt fólk til landsins, „betur borgandi ferðamenn“ heitir
það á fagmáli, og á sú gerð túrista að vera snöggtum eft-
irsóknarverðari en þessir venjulegu, sem notast við bíla-
leigubíla milli staða, eða jafnvel rútur, sem eru þá lægsta stig
massatúrismans og varla lítandi á slíkan skítabissniss í al-
vöru.
En eigum við ekki samt að halda okkur við jörðina og taka
á móti venjulegu fólki með venjulegar kröfur?
Það hæfir held ég okkar standi best.
Sunnlendingur.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12.
Næturgreiðinn
Lúxus Viljum við fá „betur borgandi ferðamenn“?