Morgunblaðið - 29.09.2022, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 29.09.2022, Qupperneq 48
48 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2022 VIÐ LEITUM AÐ LISTAVERKUM Áhugasamir geta haft samband í síma 551-0400 ERUM AÐ TAKA Á MÓTI VERKUM Á NÆSTA LISTMUNAUPPBOÐ Rauðarárstígur 12-14 · 105 Reykjavík · sími 551 0400 · www.gallerifold.is Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Það er engin ástæða til þess að gala það út um allar jarðir þótt þú hafir haft heppnina með þér. Gott væri að gefa sér tíma til íhugunar. 20. apríl - 20. maí + Naut Það er líklegt að yfirmenn þínir setji fram ákveðnar hugmyndir um breytingar í dag. Enginn tekur eftir fötunum þínum eða þyngdinni. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Þú getur verið að gera það ná- kvæmlega sama og allir aðrir, en það lítur ekki þannig út. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Samningar án hlunninda eru eins og dagur án sólskins – leiðinlegri. Láttu hana því vinna með þér frekar en á móti. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Þú verður að gefa þér meiri tíma til þess að slaka á og vera í einrúmi. Og þeir munu þrá félagsskap þinn. Hafðu hugfast að þú ert með hugaróra. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Ungbörn laðast að fólki sem brosir og svo er líka yngjandi að brosa. Gefðu þér tíma til þess að melta þessa nýju vitn- eskju. 23. sept. - 22. okt. k Vog Sköpunargleðin er þín í dag. Athug- aðu hvort ástæða þessa liggur hjá þér því ef svo er geturðu kippt því í liðinn. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Sumt sem fellur undir skil- greininguna um velgengni eykur ekki endi- lega á lán þitt. Reyndu að sjá hvatirnar í réttu ljósi, þær eru viðbrögð. Notaðu svo kvöldið fyrir sjálfan þig. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Hugmyndaflug þitt kemur öll- um á óvart. En stundum getur hugurinn verið of langt á undan líkamanum og þá er nauðsynlegt að leita sér einveru til íhug- unar. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Þú ættir að fara þér hægar á vissum sviðum lífsins, þó ekki öllum í einu. Reyndu að sýna þolinmæði því það ert þú sem ert á röngum hraða en ekki hinir. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Þú kemst langt á smá kurteisi. En áhyggjurnar eru eins og ruggustóll; hann hreyfist en kemst ekkert áfram. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Það er svo margt sem þig langar að gera að þér fallast eiginlega hendur. Notaðu sterkt myndmál eins og þú ert svo snjall við. Gallup á Íslandi, 1988-92 og alþing- ismaður 1994-2003. „Á mínum átta árum á Alþingi urðu umhverfismál aðalviðfangsefni mitt og naut ég þess að vera for- maður umhverfisnefndar þingsins. Miklir lagabálkar á þessu sviði voru þá unnir, m.a. náttúruverndarlögin og skipulagslög og teknar ákvarð- anir um stórvirkjanir, skipulag miðhálendisins o.fl. Hafði ég stund- um nokkuð sjálfstæðar skoðanir á þessum málum. Ég var síðan for- maður fjárlaganefndar eitt ár.“ Ólafur var síðan forstjóri Ratsjár- stofnunar 2004-2007 og þjóðgarðs- vörður á Þingvöllum 2010-2018. Undanfarin 12 ár hefur hann setið í faghópi rammaáætlunar um nátt- úruvernd og orkunýtingu. yfir Grænlandsjökul 1993 og á Suðurpólinn 1997-98. Þá gengum við án utanaðkomandi stuðnings 1.100 km á tæpum tveimur mán- uðum.“ Haraldur gekk síðan á Norðurpólinn en Ingþór þurfti frá að hverfa vegna kalsára. „Foreldrar okkar sendu okkur hvert um sig í sumarskóla erlendis. Það varð til þess að ég fór á þýsku- skóla 1966 og keypti mér Triumph- mótorhjól í Kaupmannahöfn. Ferð- aðist ég á því einn míns liðs víða um Evrópu þetta sumar 18 ára gamall og kom heim í vetrarbyrjun með Ms Gullfossi. Þetta mótorhjól fundu synir mínir, keyptu það og gáfu mér og var því ekið inn í veislusalinn í 60 ára afmælinu mínu. Þá fengu hörð- ustu naglar tár í augun. Ég hef líka eignast fornbíla og hef gaman af því en kann ekkert í viðgerðum.“ Ólafur varð stúdent frá ML 1968 og lagði stund á landafræði, jarð- fræði og sagnfræði við HÍ og lauk þar bæði BA- og BSc-gráðu. Að því loknu tók hann meistarapróf í skipulagi byggða og bæja í Univers- ity of Sussex í Englandi. Þegar heim var komið 1973 var Ólafur ráðinn til ráðgjafarfyrirtæk- isins Hagvangs hf. og vann þar í 13 ár, m.a. sem framkvæmdastjóri. Hann var framkvæmdastjóri hjá Ferðaskrifstofunni Útsýn 1985-88, stofnandi og framkvæmdastjóri Ó lafur Örn Haraldsson fæddist 29. september 1947 í Reykjavík. „Þeg- ar ég var þriggja ára fluttu foreldrar mínir að Laugarvatni með okkur fjögur systkinin sem fædd vorum á fjórum árum. Faðir minn varð kennari við Menntaskólann þar til hann lauk störfum vegna aldurs. Fyrstu fjögur árin á Laugarvatni bjuggum við í gríðarlegum þrengsl- um innan um nemendur og í kjall- ara héraðsskólans og var það erfitt, ekki síst fyrir móður mína. En for- eldrar mínir ákváðu þá að Laugar- vatn yrði framtíðarstaður fjölskyld- unnar og byggðu þar mjög veglegt hús, Stöng, sem við eigum enn í upprunalegri mynd. Það var að mörgu leyti sérstakt að alast upp á Laugarvatni sem var blanda af hefðbundnu íslensku þorpi og skólasetri þar sem fimm skólar störfuðu á veturna með tilheyrandi heimavist og mörg hundruð nem- endum og var þar mikið fjör. Við systkinin ólumst upp við miklar námskröfur eins og flestir krakkar á staðnum en það átti ekki alltaf heppilega samleið með mikilli íþróttaiðkun minni og félagsstörf- um.“ Ólafur stundaði allar íþróttir sem í boði voru og keppti bæði fyrir ungmennafélagið og Héraðssam- bandið Skarphéðin. Hann lærði á skíði í Kerlingarfjöllum á fyrstu námskeiðunum þar. „Ferðalög, einkum gönguferðir, um óbyggðir voru ríkjandi þáttur í heimilislífi okkar. Foreldrar okkar fóru víða gangandi og voru miklir náttúruunnendur. Faðir minn skrif- aði margar árbækur fyrir Ferða- félag Íslands. Ég heillaðist af fegurð og náttúru Íslands og hefur það orð- ið leiðarstef í störfum mínum og áhugamálum. Náttúruvernd er mér í blóð borin.“ Þetta áhugasvið leiddi til þess að Ólafur tók að sér emb- ætti forseta Ferðafélagsins 2004 og lauk því starfi í fyrra. Hann hefur skrifað tvær árbækur félagsins. „Óbyggða- og ævintýraþráin varð líka til þess að ég fór ásamt Haraldi Erni syni okkar og Ingþóri vini okk- ar fyrstu skíðaleiðangra Íslendinga Ólafur hefur gegnt ýmsum fé- lagsstörfum, hann var formaður Félags Sameinuðu þjóðanna á Ís- landi, forseti Rótarý og sat í stjórn Rauða krossins og Norræna félags- ins svo eitthvað sé nefnt. „Það má segja að fjallamennska og útivist hafi verið fjölskyldusport okkar. Við Sigrún höfum ferðast mikið bæði heima og erlendis og m.a. gengið tvisvar yfir Vatnajökul á skíðum og nokkrum sinnum á Hvannadalshnjúk og fleiri fjöll. Meðal áhugamála okkar eru sam- verustundir með fjölskyldunni, tón- list, fjallgöngur, líkamsrækt, golf og útivist af öllu tagi, þ. á m. skíða- göngur. Í tilefni af sjötugsaldri mínum kláraði ég fjórþrautina sem nefnist Landvættir en þá þarf á einu ári að hjóla 60 km, ganga 50 km á skíð- um, hlaupa Jökulsárgljúfur 33 km og synda í stöðuvatni 2,5 km. Þessu til viðbótar tók ég þátt í 50 km Fossavatnsgöngu á Ísafirði þrjú ár í röð. Nú hef ég tekið að mér fyrir Ferðafélagið ritun bókar um gönguleiðir fyrir ofan Bláskóga- byggð,“ en Ólafur hefur sinnt ýms- um öðrum ritstörfum gegnum tíð- ina, m.a. skrifað tvær ferðabækur. Önnur heitir Hvíti risinn sem var um skíðaleiðangurinn yfir Græn- landsjökul. Hin heitir Suður á pól- inn. Ólafur Örn Haraldsson, fv. alþingismaður og forseti Ferðafélags Íslands – 75 ára Stórfjölskyldan Ólafur Örn og Sigrún ásamt börnum, tengdadætrum og barnabörnum á gullbrúðkaupsdegi þeirra hjóna árið 2019. Náttúra Íslands er leiðarstefið Nýársdagur 1998 Haraldur Örn, Ólafur Örn og Ingþór í fyrsta skíða- leiðangri Íslendinga á Suðurpólinn. Ljósmynd/Gunnar V. Andrésson Afmælisbarnið Ólafur Örn. Árni Bjarnason, formaður Félags skip- stjórnarmanna, er sjötugur í dag. Árni stundaði sjóinn í 33 ár sem háseti, stýrimaður og skipstjóri. Hann hóf ung- ur afskipti af kjaramálum skipstjórnar- manna samfara skipstjórnarstörfum. Hann varð formaður Skipstjóra- og stýrimannafélags Norðlendinga 1997, var kjörinn forseti Farmanna- og fiskimannasambands Íslands 2001, stóð að stofnun Félags skipstjórnarmanna 2004 ásamt formönnum Öldunnar og Félags íslenskra skipstjórnarmanna og hefur verið formaður þess frá stofnun. Árni er giftur Steinunni Sigurðardóttur og eiga þau þrjú börn, Sigurð Gáka, Heimi Örn og Rósu Maríu. Barnabörnin eru fimm. Þau hjónin eru stödd erlendis en hyggjast halda upp á tímamótin næsta sumar með fjölskyldunni þegar betur stendur á. Árnað heilla 70 ára Til hamingju með daginn 30 ÁRA Snæbjörn ólst upp í Laugardalnum og býr í London. Hann útskrifaðist með meistaragráðu í lögfræði (LL.M) við Duke-háskóla í Bandaríkj- unum þar sem hann stundaði nám á skólastyrk. Áð- ur útskrifaðist hann með BA- og mag.jur.-gráður frá lagadeild HÍ. Snæbjörn starfar sem lögmaður á lögmannsstofunni Ropes & Gray og er með lög- mannsréttindi í New York-ríki í Bandaríkjunum og á Íslandi. Áhugamál Snæbjörns eru fótbolti, hlaup, ferðalög og samvera með vinum og fjölskyldu. FJÖLSKYLDA Sambýliskona Snæbjörns er Diljá Helgadóttir, f. 1994, lögfræðingur á lögmannsstof- unni Milbank og lektor við Háskólann á Bifröst. Foreldrar Snæbjörns eru Snædís Valsdóttir, f. 1962, skólastjóri, og Ólafur Elfar Sigurðsson, f. 1963, við- skiptafræðingur, bæði búsett í Reykjavík. Snæbjörn Valur Ólafsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.