Morgunblaðið - 29.09.2022, Síða 50

Morgunblaðið - 29.09.2022, Síða 50
50 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2022 Meistaradeild kvenna 2. umferð, seinni leikir: Slavia Prag – Valur .................................. 0:0 _ Slavia áfram, 1:0 samanlagt. Rosengård – Brann ................................. 3:1 - Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn með Rosengård. - Svava Rós Guðmundsdóttir lék allan leikinn með Brann. _ Rosengård áfram, 4:2 samanlagt. Real Madrid – Rosenborg....................... 2:1 - Selma Sól Magnúsdóttir lék fyrstu 62 mínúturnar með Rosenborg. _ Real Madrid áfram, 5:1 samanlagt. Häcken – París SG................................... 0:2 - Berglind Björg Þorvaldsdóttir sat allan tímann á varamannabekk París SG. _ París SG áfram, 4:1 samanlagt. Juventus – Köge ...................................... 2:0 - Sara Björk Gunnarsdóttir lék fyrstu 78 mínúturnar með Juventus og skoraði. _ Juventus áfram, 3:1 samanlagt. Vllaznia – Vorskla Poltava....................... 2:1 _ Vllaznia áfram, 3:2 samanlagt. Ajax – Arsenal .......................................... 0:1 _ Arsenal áfram, 3:2 samanlagt. St. Pölten – KuPS Kuopio............... (frl.) 2:2 _ St. Pölten áfram, 3:2 samanlagt. Zürich – Sarajevo ..................................... 3:0 _ Zürich áfram, 10:0 samanlagt. Benfica – Rangers ........................... (frl.) 2:1 _ Benfica áfram, 5:3 samanlagt. _ Í kvöld mætast Bayern München – Real Sociedad og Roma – Sparta Prag. Sigur- vegarar einvígjanna í 2. umferð fara í riðla- keppnina ásamt Lyon, Barcelona, Wolfs- burg og Chelsea. England Chelsea – West Ham................................ 3:1 - Dagný Brynjarsdóttir lék allan leikinn með West Ham og skoraði. Vináttulandsleikir karla Argentína – Jamaíka............................... 3:0 - Heimir Hallgrímsson stýrði sínum fyrsta leik sem þjálfari Jamaíku. El Salvador – Perú ................................... 1:4 Kólumbía – Mexíkó .................................. 3:2 4.$--3795.$ Meistaradeild karla A-RIÐILL: Magdeburg – París SG........................ 22:29 - Ómar Ingi Magnússon skoraði fimm mörk fyrir Magdeburg og Gísli Þorgeir Kristjánsson eitt. Veszprém – Dinamo Búkarest........... 33:30 - Bjarki Már Elísson skoraði fjögur mörk fyrir Veszprém. _ Veszprém 6, París SG 4, Magdeburg 4, GOG 3, Wisla Plock 2, PPD Zagreb 2, Di- namo Búkarest 1, Porto 0. B-RIÐILL: Aalborg – Kielce.................................. 28:30 - Aron Pálmarsson skoraði þrjú mörk fyr- ir Aalborg. Arnór Atlason er aðstoðarþjálf- ari liðsins. - Haukur Þrastarson skoraði tvö mörk fyrir Kielce. _ Barcelona 4, Aalborg 4, Kielce 4, Kiel 2, Celje Lasko 2, Nantes 2, Pick Szeged 0, Elverum 0. Danmörk Midtjylland – Fredericia .................... 32:35 - Einar Þorsteinn Ólafsson skoraði ekki fyrir Fredericia. Guðmundur Þ. Guð- mundsson þjálfar liðið. Svíþjóð Skövde – Malmö................................... 30:27 - Bjarni Ófeigur Valdimarsson var ekki í leikmannahópi Skövde. Sviss Kadetten – Bern .................................. 32:26 - Óðinn Þór Ríkharðsson lék ekki með Ka- detten vegna meiðsla. Aðalsteinn Eyjólfs- son þjálfar liðið. %$.62)0-# Subway-deild kvenna Njarðvík – Grindavík ........................... 77:61 Breiðablik – Keflavík ........................... 58:88 ÍR – Fjölnir ........................................... 50:58 Haukar – Valur .................................. (43:27) _ Ekki lokið þegar blaðið fór í prentun. Staðan fyrir leik Hauka og Vals: Keflavík 2 2 0 183:130 4 Njarðvík 2 1 1 149:156 2 Grindavík 2 1 1 148:152 2 Haukar 1 1 0 104:53 2 Valur 1 1 0 84:46 2 Fjölnir 2 1 1 133:137 2 ÍR 2 0 2 103:162 0 Breiðablik 2 0 2 104:172 0 1. deild kvenna Þór Ak. – Tindastóll ............................. 74:52 KR – Hamar/Þór .................................. 75:41 Stjarnan – Aþena/Leiknir/UMFK...... 97:81 Staða efstu liða: KR 2 2 0 153:117 4 Stjarnan 2 2 0 171:142 4 Þór Ak. 2 2 0 137:110 4 Tindastóll 2 1 1 147:100 2 Snæfell 1 0 1 76:78 0 4"5'*2)0-# MEISTARADEILD Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Valur er úr leik í Meistaradeild Evr- ópu í knattspyrnu kvenna eftir að hafa gert markalaust jafntefli við Slavia Prag í síðari leik liðanna í 2. umferð undankeppninnar í Tékklandi í gær. Slavia vann fyrri leikinn að Hlíð- arenda 1:0 og einvígið því samanlagt með sömu markatölu. Með sigri í ein- víginu tryggðu tékknesku meist- ararnir sér sæti í riðlakeppni Meist- aradeildarinnar en Valskonur ná ekki að leika sama leik og Breiðablik gerði í fyrra og lengja tímabilið hjá sér fram í desember. Leikurinn í gær var nokkuð kafla- skiptur en eftir að Slavia hafði byrjað af krafti unnu Valskonur sig vel inn í hann og réðu lögum og lofum síðasta stundarfjórðunginn í fyrri hálfleik. Cyera Hintzen komst nálægt því að koma Val í forystu eftir rúmlega hálftíma leik þegar hún slapp í gegn eftir stungusendingu Önnu Rakelar Pétursdóttur en Olivie Lukásová í marki Slavia varði skot hennar úr nokkuð þröngri stöðu út í vítateiginn áður en boltanum var komið frá. Ásdís Karen Halldórsdóttir átti þá hörkuskot rétt fyrir utan vítateig skömmu fyrir leikhlé en aftur var Lukásová vandanum vaxin og varði með naumindum yfir markið. Í síðari hálfleik áttu Valskonur erf- itt uppdráttar framan af þar sem Slavia setti Íslands- og bikar- meistarana undir pressu, skapaði sér nokkur hættuleg færi og skoraði auk þess tvö mörk, sem voru þó bæði dæmd af. Fyrra markið var dæmt af vegna rangstöðu og það síðara eftir að brotið var á Örnu Sif Ásgríms- dóttur í aðdragandanum. Arna Sif fékk besta færið Elín Metta Jensen, sem kom inn á sem varamaður eftir klukkutíma leik, frískaði aðeins upp á sóknarleik Vals í síðari hálfleik og kom sér í fínt færi eftir góðan sprett um hann miðjan en táarskot hennar fór í hliðarnetið ut- anvert. Á 77. mínútu fékk Arna Sif svo besta færi Valskvenna í leiknum. Anna Rakel tók þá aukaspyrnu frá hægri, fann Örnu Sif eina á fjær- stönginni en skot hennar af markteig, þar sem hún þurfti að teygja sig í boltann, fór yfir markið. Leikurinn fjaraði svo út og niður- staðan sár vonbrigði fyrir Val. Valur hefur oft leikið betur en í gær en það er ekki þar með sagt að liðið hafi leikið illa. Tékkneska liðið var einfaldlega skynsamt í sinni nálgun og lokaði á nánast allar leiðir að marki sínu, þá sér í lagi í síðari hálfleik. Besta færi Vals í leiknum kom eftir fast leikatriði og hefði liðið almennt þurft að nýta sér þau betur. Eitt mark skildi liðin að - Valskonur úr leik í Meistaradeildinni Morgunblaðið/Árni Sæberg Evrópa Cyera Hintzen og Simona Necidová eigast við í fyrri leik Vals og Slavia Prag á Origo-vellinum að Hlíðarenda í síðustu viku. Bjarki Már Elísson átti góðan leik fyrir Veszprém þegar liðið vann þriggja marka sigur gegn Dinamo Búkarest í A-riðli Meistaradeildar karla í handknattleik í Ungverja- landi í gær. Leiknum lauk með 33:30-sigri Veszprém en Bjarki Már var næstmarkahæstur í ungverska liðinu með fjögur mörk. Þá var Ómar Ingi Magnússon næstmarkahæstur hjá Magdeburg þegar liðið tapaði með sjö marka mun gegn París SG í Þýskalandi, 22:27. Ómar Ingi skoraði fimm mörk í leiknum og Gísli Þorgeir Kristjánsson eitt. Veszprém er í efsta sæti riðilsins með sex stig eða fullt hús stiga en Magdeburg er í þriðja sætinu með fjögur stig. Haukur Þrastarson skoraði tvö mörk fyrir Kielce þegar liðið vann 30:28-sigur gegn Aalborg í Íslend- ingaslag í B-riðli keppninnar. Aron Pálmarsson skoraði þrjú mörk fyrir Aalborg en Arnór Atlason er að- stoðarþjálfari danska liðsins. Kielce og Aalborg eru með fjögur stig í öðru og þriðja sæti riðilsins. Barce- lona er einnig með fjögur stig og á leik til góða á bæði Íslendingaliðin. Bjarki Már og félagar með fullt hús stiga í Meistaradeildinni Ljósmynd/Eurohandball 4 Bjarki Már Elísson hefur farið vel af stað með ungversku meisturunum í Veszprém á tímabilinu en hann gekk til liðs við félagið frá Lemgo í sumar. Keflavík er með fullt hús stiga í úr- valsdeild kvenna í körfuknattleik, Subway-deildinni, eftir stórsigur gegn Breiðabliki í Smáranum í Kópavogi í 2. umferð deildarinnar í gær. Birna Valgerður Benónýsdóttir var stigahæst í liði Keflavíkur með 23 stig og sjö fráköst en leiknum lauk með 88:58-sigri Keflavíkur. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og var staðan 23:20 Blikum í vil eftir fyrsta leikhluta en Kefla- vík leiddi 38:35 í hálfleik. Breiða- blik skoraði einungis 23 stig í síðari hálfleik og Keflavík fagnaði örugg- um sigri i leikslok. Daniela Wallen skoraði 21 stig og tók tíu fráköst fyrir Keflavík en Isabella Ósk Sigurðardóttir var stigahæst í liði Breiðabliks með 17 stig og tíu fráköst. _ Urté Slavickaité skoraði 20 stig fyrir Fjölni þegar liðið hafði betur gegn nýliðum ÍR, 58:50, í Seljaskóla í Breiðaholti en þetta var fyrsti sigur deildarmeistara Fjölnis á tímabilinu. ÍR-ingar byrjuðu leikinn betur og leiddu með fjórum stigum eftir fyrsta leikhluta, 16:12. Fjölnir var sterkari í öðrum leikhluta og leiddi 31:22 í hálfleik. Þrátt fyrir að ÍR- ingum hafi tekist að minnka forskot Fjölnis í fjögur stig í þriðja leik- hluta, 38:42, tókst þeim ekki að snúa leiknum sér í vil. Simone Sill skoraði sautján stig og tók sextán fráköst fyrir Fjölni en Greeta Uprus var stigahæst í liði ÍR með 21 stig og átta fráköst. _ Þá var Aliyah Collier stigahæst hjá Íslandsmeisturum Njarðvíkur þegar liðið vann sinn fyrsta sigur á tímbilinu gegn nágrönnum sínum í Grindavík í Ljónagryfjunni í Njarð- vík. Njarðvíkingar byrjuðu betur og leiddu 41:32 í hálfleik. Staðan að loknum þriðja leikhluta var 66:41, Njarðvík í vil. Grindavík tókst aldr- ei að snúa leiknum sér í vil í fjórða leikhluta og Njarðvík fagnaði 77:61-sigri. Lavinia Gomes skoraði 21 stig og tók ellefu fráköst fyrir Njarðvík en Danielle Rodriguez var stigahæst í liði Grindavíkur með 23 stig og sjö stoðsendingar. Morgunblaðið/Eggert Sókn Fjölniskonan Dagný Lísa Davíðsdóttir sækir að ÍR-ingum í Seljaskóla í Breiðholti í gærkvöldi en hún skoraði 6 stig og tók átta fráköst í leiknum. Keflavík með fullt hús stiga - Fyrsti sigur Íslandsmeistaranna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.