Morgunblaðið - 29.09.2022, Síða 52
52 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2022
Mikið úrval af borðstofuhúsgögnum frá CASØ
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
N Ý F O R M
H Ú S G A G N A V E R S L U N
VIÐTAL
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
RIFF, Alþjóðleg kvikmyndahátíð í
Reykjavík, verður sett í dag í Há-
skólabíói með sýningu opnunar-
myndar og dagskráin vegleg að
vanda. Hrönn Marinósdóttir hefur
frá upphafi stýrt hátíðinni og á
næsta ári verður stórafmæli, hátíðin
þá haldin í 20. sinn. En það er líka
gaman að vera 19 ára og þegar
blaðamaður ræddi við Hrönn var
vika í hátíðina og líf og fjör í höfuð-
stöðvum RIFF við Tryggvagötu en
kvikmyndasýningar munu lang-
flestar fara fram í Háskólabíói og
auk þeirra boðið upp á sérviðburði.
Frábær frá Feneyjum
Opnunarmynd hátíðarinnar, sem
gagnrýnd er á næstu síðu, nefnist
Vera og er eftir leikstjórana Tizzu
Covi og Rainer Frimmel sem Hrönn
segir að kalla megi költleikstjóra.
Vakti myndin mikla athygli þegar
hún var frumsýnd á kvikmyndahá-
tíðinni í Feneyjum í byrjun mánaðar
og munu leikstjórarnir og aðalleik-
kona myndarinnar, Vera Gemma,
mæta á RIFF.
„Mér finnst hún algjörlega frá-
bær,“ segir Hrönn um myndina og
að hún sé stolt af því að fá svo nýja
mynd á hátíðina. Myndin er sú
þriðja sem RIFF sýnir eftir þau
Covi og Frimmel og fjallar um leik-
konuna sjálfa, þ.e. Veru Gemma,
sem er dóttir Guilianos Gemma sem
var hvað þekktastur fyrir leik sinn í
spagettívestrum og þótti fjallmynd-
arlegur. „Maður veit ekki hvað er
leikið og hvað raunverulegt,“ segir
Hrönn um myndina sem fjallar með-
al annars um hvernig það er að vera
dóttir svo frægs manns en önnur
slík, dóttir leikstjórans Darios Arg-
ento, kemur líka við sögu. Þess má
geta að Vera Gemma hlaut verðlaun
fyrir leik sinn í myndinni í Fen-
eyjum.
Hrönn er spurð hvernig hátíðin í
ár sé í samanburði við þá fyrstu sem
hún hélt. Hún segir hátíðina hafa
breyst mjög mikið og hún sé allt
öðruvísi nú en hún var í upphafi.
„Hún hefur þróast í takt við tíðar-
andann og reynsluna og þekking-
una. Hátíðin er líka orðin viður-
kennd á alþjóðagrundvelli,“ segir
Hrönn.
Lokamynd hátíðarinnar, Sumar-
ljós og svo kemur nóttin eftir leik-
stjórann Elfar Aðalsteinsson, verður
heimsfrumsýnd 8. október og er
handrit hennar byggt á samnefndri
bók Jóns Kalmans Stefánssonar.
Meðal leikara í henni eru Ólafur
Darri Ólafsson, Heiða Rún Sigurð-
ardóttir/Heiða Reed, Svandís Dóra
Einarsdóttir og Sveinn Ólafur Gunn-
arsson.
„Mér líst bara mjög vel á hana.
Við sýndum líka mynd Elfars, End
of Sentence, og reyndar vann stutt-
myndin hans, Sailcloth með John
Hurt, stuttmyndaflokkinn á sínum
tíma. Þannig að við erum mikið fyrir
að sýna myndirnar hans Elfars,“
segir Hrönn kímin.
Óþarfi að plana of mikið
– Nú þyrmir kannski yfir suma
þegar þeir renna yfir dagskrána, 70
myndir frá 59 löndum og takmark-
aður tími til að sjá sem flestar. Er
ekki bara málið að fylgja straumn-
um, vera ekki að plana alltof mikið?
„Jú, ég held að það sé málið, að
pæla ekki of mikið í þessu. Bara
skella sér á einhverjar myndir og
láta þær koma sér svolítið á óvart og
treysta því að þær séu góðar,“ svar-
ar Hrönn og tekur undir með blaða-
manni að stundum sé gott að vita
sem minnst um kvikmyndina sem
maður er að fara að sjá í bíó.
Heiðursgestur hátíðarinnar er
spænska leikkonan Rossy de Palma
og einn heiðursverðlaunahafa er líka
spænskur, Albert Serra. Þá verður
kastljósinu beint sérstaklega að
spænskum kvikmyndum á hátíðinni.
Hrönn er spurð hvernig það hafi
komið til að Spánn varð fyrir valinu.
„Við erum búin að vera að vinna að
þessu í mörg ár, þetta hefur verið
draumur hjá mér mjög lengi að hafa
Spán í fókus en það hefur verið erfitt
að ganga frá þessu,“ svarar Hrönn.
„Til þess að geta gert þetta þurftum
við góða samstarfsaðila og þarna
fengum við spænska sendiráðið á Ís-
landi og líka ICCA, kvikmyndastofn-
un Spánverja, til að hjálpa okkur við
fjármögnun. Þeir eru að hjálpa okk-
ur t.d. við að bjóða leikstjórum og
líka framleiðendum sem taka þátt í
framleiðendaþinginu.“
31 Norðurlandafrumsýning
„Þetta eru mikið evrópskar mynd-
ir,“ segir Hrönn um dagskrána í
heild og að hluti hennar muni tengj-
ast Evrópsku kvikmyndaverðlaun-
unum, EFA, sem verða afhent hér á
landi í desember.
„Við verðum með EFA-dag, það
koma stjórnendur frá EFA-
samtökunum í Berlín,“ segir Hrönn
og að mikilvægi verðlaunanna verði
rætt sérstaklega þann dag. „Mér
finnst eins og RIFF sé svolítill upp-
taktur að EFA því það eru svo
margar myndir og gestir sem tengj-
ast verðlaununum.“
Norðurlandafrumsýningar RIFF
eru alls 31 í ár, þrjár Evrópufrum-
sýningar og tvær heimsfrumsýning-
ar, eins og kom fram í tilkynningu
frá hátíðarhöldurum fyrir viku og
leggja skipuleggjendur sig fram um
að velja verk kvenna á dagskrána.
Eru konur leikstjórar um 56% kvik-
myndanna að þessu sinni og því í
meirihluta. Einnig verður sýndur
mikill fjöldi stuttmynda, 207 myndir
með fjölda frumsýninga og 86%
mynda hátíðarinnar eru evrópsk.
Hvað kynjahlutfall leikstjóra
varðar segir Hrönn að það hafi gerst
nokkuð náttúrulega að um helming-
ur mynda sé í leikstjórn kvenna.
Hafa erlendar hátíðir oft verið gagn-
rýndar fyrir kynjahalla, að konur
séu afar fáar í röðum leikstjóra og
þá m.a. hátíðin í Cannes. „Auðvitað
finnst okkur þetta mikilvægt, að
kynna verk eftir konur líka af því að
þær gera öðruvísi myndir en karl-
ar,“ segir Hrönn um þessi fyrir-
myndarkynjahlutföll RIFF.
RIFF er einnig til fyrirmyndar
hvað viðkemur umhverfisvernd og
töluvert minna prentað af bæklingi
hátíðarinnar en vani er. Þá hefur
nýtt app verið kynnt og með því
hægt að kaupa miða, búa til dagskrá
og finna allar helstu upplýsingar.
Segir Hrönn þetta mjög þægilegt
fyrirkomulag þó sumir vilji alltaf
hafa bækling í höndunum líka. Vef-
síðu RIFF má finna á slóðinni riff.is.
Óvissa með fjármagn
Hrönn segir að það taki lágmark
ár að undirbúa hverja RIFF-hátíð
og því verði strax hafist handa við þá
næstu þegar þessari lýkur. Hún
verður sú tuttugasta í röðinni og er
Hrönn spurð hvort eitthvað verði þá
gert aukalega, í tilefni af afmælinu.
Hún segir erfitt að svara því að svo
stöddu þar sem alltaf ríki óvissa um
fjármögnun milli ára. Í fyrrnefndri
tilkynningu kom einmitt fram að
dregið hefði úr umfangi RIFF, borið
saman við undangengin ár, eftir
miklar skerðingar á framlögum hins
opinbera til hátíðarinnar. „Ekki
verður unnt að halda úti sérstakri
ókeypis barnadagskrá RIFF eins og
hefur verið undanfarin ár, ásamt
kennsluefni fyrir alla leik- og grunn-
skólanema. Þá verður RIFF fyrir
framtíðina, verkefni um kvikmynda-
læsi og kvikmyndagerð fyrir ungt
fólk frá Norðurlöndunum, ekki hald-
ið í ár,“ segir þar en nýr dagskrár-
liður, Ung RIFF, muni draga aðeins
úr þeim skelli sem niðurskurðurinn
hafi í för með sér. Þá verður netleig-
an RIFF heima ekki í boði í ár vegna
niðurskurðar, að sögn Hrannar, en
RIFF hefur sýnt helstu myndir á
vef sínum riff.is til að þeir sem ekki
komast í bíó, einhverra hluta vegna,
geti líka notið mynda hátíðarinnar.
Kvikmyndasýningar á landsbyggð-
inni lentu líka undir niðurskurðar-
hnífnum, segir Hrönn og að það þyki
henni miður.
Býr til verðmæti
Hrönn bendir einnig á að ef styrk-
ur frá stjórnvöldum sé skorinn mikið
niður eigi hátíðin á hættu að fá lægri
styrki frá Media-sjóðnum hjá
Evrópusambandinu sem hafi verið
stuðningsaðili hátíðarinnar í mörg
ár. „Þetta helst í hendur og ég hef
kallað eftir lengri tíma samningum,
eins og við menntamálaráðuneytið,
og meira öryggi,“ segir Hrönn.
Hátíð á borð við RIFF sé mikils
virði fyrir almenning í landinu og
kvikmyndabransann. „Í heild býr
RIFF til mun meiri verðmæti en
hún fær í styrkjum,“ segir Hrönn og
það sé m.a. vegna samstarfsverk-
efna milli kvikmyndabransans hér
og erlendis og aukinnar víðsýni og
gleði þeirra sem sækja hátíðina.
Morgunblaðið/Eggert
Hátíðarstund Frá blaðamannafundi um RIFF sem haldinn var við Hagatorg um miðjan mánuð. Hrönn, í stól lengst til vinstri, með starfsmönnum RIFF.
Hefur þróast í takt við tíðarandann
- Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, hefst í dag og er hún nú haldin í nítjánda sinn
- Kvikmyndagerð á Spáni í kastljósinu - Konur í meirihluti leikstjóra kvikmynda hátíðarinnar