Fréttablaðið - 12.01.2023, Side 2
Björgvin Páll Gústavs-
son markvörður gerði
allt til þess að vera ekki
hjátrúarfullur. Í dag
kyssir Björgvin slána
og stangirnar í mark-
inu – og marklínuna
að auki, fyrir alla leiki.
Óttast ekki þaulsætið mengunarský
Reykjavíkurborg varaði í gær við styrk köfnunarefnisdíoxíðs. Froststillur geti valdið því að mengunarský haldist lengur yfir borginni. Spáð er frosti og logni
næstu tíu daga en Þorsteinn Jóhannsson, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, hefur þó ekki verulegar áhyggjur af uppsafnaðri loftmengun. Til þess þurfi
mjög hægan vind undir tveimur metrum á sekúndu en gert sé ráð fyrir nokkrum vindi, upp í átta metra, á næstu dögum. Fréttablaðið/anton brink
Ísland leikur sinn fyrsta leik á
HM í kvöld þegar liðið mætir
Portúgal. Vonandi, fyrir
Guðmund Guðmundsson
landsliðsþjálfara, hleypur
ekki köttur fyrir rútu íslenska
liðsins á leið þess á leikstað
í Svíþjóð.
aron@frettabladid.is
Íþróttir „Ég játa að ég beit það í mig
hér á árum áður að ef það hljóp kött-
ur fyrir bílinn hjá mér á leiðinni í leik
þá sneri ég við og fór einhverja aðra
leið að leikstað,“ segir landsliðsþjálf-
ari Íslands, Guðmundur Guðmunds-
son, sem stýrir íslenska landsliðinu í
fyrsta leik á heimsmeistaramótinu í
handbolta í kvöld.
Guðmundur, sem er margreyndur
þjálfari í bransanum, hefur þó enga
sérstaka hjátrú fyrir leiki. Hann
hefur í þrígang tekið við íslenska
landsliðinu og stýrði liðinu meðal
annars í verðlaunasæti á Ólympíu-
leikunum 2008 og Evrópumótinu
2010. Hann er núna á leið á sitt
fimmta heimsmeistaramót með
íslenska landsliðið.
Þrátt fyrir að hafa verið lengi að
er Guðmundur ekkert sérstaklega
hjátrúarfullur fyrir leiki. Ef kattar-
hlaupið er undanskilið.
„Sem betur fer er þetta ekki vanda-
mál hjá mér lengur, þetta er horfið út
úr minni „hjátrú“ ef svo mætti kalla,“
segir Guðmundur og hlær.
Eins og sjá má í sérblaði um HM
sem fylgir Fréttablaðinu í dag horfir
Viktor Gísli á sömu fjögur YouTube-
myndböndin fyrir alla leiki.
Hvorki Aron Pálmarsson fyrirliði
né Ómar Ingi Magnússon, íþrótta-
maður ársins, eru hjátrúarfullir.
Bjarki Már Elísson drekkur alltaf
Nocco fyrir leiki.
En enginn er eins og Björgvin Páll
Gústavsson markvörður. Hann var
orðinn svo svakalegur í hjátrúnni að
hann gerði allt til þess að vera ekki
hjátrúarfullur.
Í dag kyssir Björgvin stangirnar
tvær og slána á markinu og línuna
á gólfinu fyrir börnin sín.
„Hafi ég haft einhverja hjátrú á
ákveðnu tímabili er sú hin sama
bara úr sögunni,“ segir Guðmundur
landsliðsþjálfari. Fyrir hann sem
þjálfara snúist málið um að undir-
búa sig og liðið eins vel og hann geti.
„Það snýr meira bara að ákveð-
inni rútínu í því hvernig ég vinn
að hlutunum og að þeirri leið sem
ég tel besta í átt að okkar mark-
miðum.“ n
Fór aðrar leiðir á leikstað
ef köttur hljóp fyrir bílinn
Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari er ekki hjátrúarfullur en á þó
eina gamla og góða sögu sem tengist köttum og leikdegi. Fréttablaðið/Ernir
bth@frettabladid.is
Akureyri Stjórn Menningarfélags
Akureyrar, MAk, sem rekur Hof er
að vinna að endurskoðun á gjaldi
sem greiða þarf fyrir útleigu á sölum
menningarhússins fyrir tónleika-
hald.
Preben Jón Pétursson, formaður
stjórnar MAk, segir þá vinnu
ótengda gagnrýni sem Michael Jón
Clarke tónlistarmaður hefur sett
fram.
Michael Jón segir að salir Hofs
séu of dýrir til að fólk úr tónlistar-
legri grasrót hafi efni á að nýta
húsið undir tónleika. Hof sé eins og
skrímsli sem étur börnin sín.
Preben Jón segir að Hof fái ríkis-
styrki en samið hafi verið til þriggja
ára og félög sem geri lengri samn-
inga þurfi að taka á sig verðbólgu
og launahækkanir.
Veitingastaðurinn í Hofi hefur
sagt upp samningi sínum við Hof
en ekki er rétt að engin veitingasala
fari fram þessa dagana innanhúss
að sögn Prebens. Staðurinn er sam-
kvæmt upplýsingum Fréttablaðsins
sá fjórði í röðinni sem ekkert verður
ágengt í menningarhúsinu. n
Hof of dýrt og verðskrá endurskoðuð
Rekstrarlegar áskoranir eru fyrir
hendi í Hofi á Akureyri.
Fréttablaðið/auðunn
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Mikið úrval af HVÍLDARSTÓLUM
með og án rafmagns lyftibúnaði
Komið og
skoðið úrvalið
kristinnhaukur@frettabladid.is
norðurlAnd Sjö knattspyrnu-
stúlkur í þriðja f lokki Völsungs
á Húsavík hafa sent bæjarstjórn
Norðurþings bréf þar sem þær segja
slæmt ástand gervigrasvallarins
beinlínis hafa valdið fjölmörgum
og sársaukafullum meiðslum.
Meðal annars hafi ein þeirra slitið
krossbönd í tvígang. Fjórar hafi
álagsmeiðsli á hnjám sem kallast
Oshgood-schlatter. „Það er verkur
sem er mjög sársaukafullur og erfitt
að losna við,“ segja þær. Allar hafi
fest sig í grasinu og meitt sig, þar af
ein skaddað rófubeinið alvarlega.
Segja þær til skammar að ekkert
hafi verið gert eftir öll þessi slys og
fleiri hjá öðrum flokkum.
„Ef fótboltafélag eins og Völsung-
ur á að ganga er algjört lágmark að
aðstæður séu góðar,“ segir í bréfinu.
Kjartan Páll Þórarinsson, íþrótta-
og tómstundafulltrúi Norðurþings,
segir völlinn vera frá árinu 2012.
„Hann er orðinn tíu ára gamall
og það styttist í líftímanum,“ segir
Kjartan. Grasið sé þó heilt og engin
föst áætlun sé um endurnýjun. „Við
erum að fara í að skoða það. Það
gæti orðið á komandi árum.“ n
Fótboltastúlkur á
Húsavík eru sárar
Kjartan Páll
Þórarinsson,
íþrótta og tóm-
stundafulltrúi
2 Fréttir 12. janúar 2023 FIMMTUDAGURFréttablaðið