Fréttablaðið - 12.01.2023, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 12.01.2023, Blaðsíða 13
KYNN INGARBLAÐ ALLT FIMMTUDAGUR 12. janúar 2023 thordisg@frettabladid.is Það gustar af bresku konungsfjöl- skyldunni þessa dagana. Þannig skartaði Katrín prinsessa af Wales gullfallegri ullarkápu þegar hún sást fyrst á meðal almennings eftir að mágur hennar, Harry prins, opnaði sig upp á gátt um samband sitt við Kötu í nýútkominni bók sinni, Varaskeifunni (e. Spare). Það sást til Kötu skutla börnum sínum í skólann, alvarlegri í bragði. Hún var glæsileg að vanda, með brúntóna förðun, slegið hár og klædd kamellitaðri kápu, þeirri sömu og hún klæddist í opinberri heimsókn til Scarborough fyrr í vetur. Kápan er frá Max&Co. Erfitt að fela einkalífið Í viðtali við sjónvarpsstöðina ITV á sunnudagskvöld ræddi Harry um það uppátæki breskra fjöl- miðla að kalla prinsana og konur þeirra, Kötu og Meghan, „hin fjögur frábæru“ (e. the fab four) en það hafi aukið á samkeppni á milli þeirra. „Ég vonaði alltaf að okkur fjórum kæmi vel saman. En mjög fljótlega breyttist það í Meghan á móti Kötu,“ sagði Harry og hélt áfram: „Þegar slíkt gerist opin- berlega er engin leið að fara í felur með það. Sérstaklega þegar dagblöðin leynast í öllum skúma- skotum til að fylgjast með hverju skrefi fjölskyldunnar.“ n Fjögur frábæru Katrín prinsessa í ullarkápunni góðu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Það þarf engin föt í flæði Tónskáldið Arngerður og kvikmyndagerðarkonan Eydís Eir hafa vakið verðskuldaða at- hygli í tónlistar- og kvikmyndageiranum undanfarið. Þær standa fyrir einstökum viðburði um helgina þar sem kvikmyndatónlist kvenna er í sviðsljósinu. Eydís (t.v.) og Arngerður standa að Lokki kvikmyndartónlistarviðburði. Nafnið er tekið úr fornnorrænu og var notað um sérstakt hljóð sem lætur röddina heyrast langar vegalengdir. Með Lokki vilja þær beina kastljósinu að konum og öðrum kyngervum en körlum í tónlist og kvikmyndagerð. FRÉTTABLAÐIÐ/ERnIR jme@frettabladid.is Arngerður María Árnadóttir og Eydís Eir Brynju- Björnsdóttir reka saman framleiðslufyrirtækið Anima Productions. Eydís Eir er sjálfstætt starfandi leikstjóri og höfundur og menntuð í kvik- myndagerð frá FAMU. Arngerður er menntaður organisti, kórstjóri og tónskáld, er sjálfstætt starfandi tónlistarkona og tónskáld og er í tónlistarhópnum Umbru. Pönk og glimmerkjólar Báðar hafa skapað sér fjölbreyttan fatastíl sem endurspeglar per- sónuleika þeirra. „Ég get verið rosa pönk, villt og tryllt, klætt mig alla í latex eða verið klassísk í fínum svörtum pin-up kjól. Er svo í jarðlitum næsta dag í prjónuðum kjól með hatt,“ segir Eydís Eir og bætir við: „Í gær fór ég í skotapils, moonboots bomsur og pels. Vana- lega er ég með nokkrar leðurbuxur í gangi. Ég er líka mikið með hatta og þessa dagana ég elska litríkar dragtir. Rauða flauelsdragtin mín er guðdómleg. Ég er dýrka líka heil- galla sem eru alltaf þægilegir og á veturna bý ég í silfursnjógallanum mínum. Einnig fíla ég hálsklúta og slæður og á einn tímalausan úr silki frá Hermés sem ég nota endalaust og á marga vegu. Töff sólgleraugu gera svo gæfumuninn.“ „Minn stíll byggir aðallega á þægilegum fötum í litum og gjarnan með mynstrum. Ég held ég eigi kjóla í nánast öllum litum og marga glimmer líka sem ég hef gaman af að klæðast við ákveðin tækifæri. Þægilegir skór, eins og strigaskór og svartir grófir skór eru líka möst hjá mér,“ segir Arngerður. Notað frekar en nýtt Báðar eru á þeim buxunum að kaupa frekar notað en nýtt, en þær neita sér þó ekki um nýjar flíkur ef svo ber undir. „Kannski má segja að ég hafi einum of gaman af því að kaupa föt, sérstaklega peysur og kjóla, og verð að viðurkenna að ég á óþarflega mikið. Það gerir bara svo mikið fyrir mig að vera í fallegum og helst litríkum fötum. Ég kaupi helst notað á Íslandi. Verslanahöllin á Laugavegi er uppáhaldsbúðin mín og ég kíki líka reglulega í Hringekjuna. Ég freistast þó stundum til að kaupa nýtt þegar ég er í útlöndum en reyni að halda því í lágmarki,“ segir Arngerður. „Notað klárlega. Ég elska ein- staka hluti, sem enginn annar á og þræði nytjamarkaði hér heima og erlendis. Báðar systur mínar, Þóra Hlíf og Eygló, eru algjörar tísku- dívur og ef mig vantar eitthvað fínt fæ ég lánað frá þeim. Þær senda mér reglulega hlekki á netversl- anir: „Þetta er svo mikið þú,“ segja þær og þá kannski kaupi ég Alla daga gegn kulda og sól Apótek, Hagkaup og Fjarðarkaup www.celsus.is 

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.