Fréttablaðið - 12.01.2023, Page 13
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
FIMMTUDAGUR 12. janúar 2023
thordisg@frettabladid.is
Það gustar af bresku konungsfjöl-
skyldunni þessa dagana. Þannig
skartaði Katrín prinsessa af Wales
gullfallegri ullarkápu þegar hún
sást fyrst á meðal almennings eftir
að mágur hennar, Harry prins,
opnaði sig upp á gátt um samband
sitt við Kötu í nýútkominni bók
sinni, Varaskeifunni (e. Spare).
Það sást til Kötu skutla börnum
sínum í skólann, alvarlegri í
bragði. Hún var glæsileg að vanda,
með brúntóna förðun, slegið hár
og klædd kamellitaðri kápu, þeirri
sömu og hún klæddist í opinberri
heimsókn til Scarborough fyrr í
vetur. Kápan er frá Max&Co.
Erfitt að fela einkalífið
Í viðtali við sjónvarpsstöðina ITV
á sunnudagskvöld ræddi Harry
um það uppátæki breskra fjöl-
miðla að kalla prinsana og konur
þeirra, Kötu og Meghan, „hin
fjögur frábæru“ (e. the fab four) en
það hafi aukið á samkeppni á milli
þeirra.
„Ég vonaði alltaf að okkur
fjórum kæmi vel saman. En mjög
fljótlega breyttist það í Meghan
á móti Kötu,“ sagði Harry og hélt
áfram: „Þegar slíkt gerist opin-
berlega er engin leið að fara í
felur með það. Sérstaklega þegar
dagblöðin leynast í öllum skúma-
skotum til að fylgjast með hverju
skrefi fjölskyldunnar.“ n
Fjögur frábæru
Katrín prinsessa í ullarkápunni góðu.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Það þarf engin föt í flæði
Tónskáldið Arngerður og kvikmyndagerðarkonan Eydís Eir hafa vakið verðskuldaða at-
hygli í tónlistar- og kvikmyndageiranum undanfarið. Þær standa fyrir einstökum viðburði
um helgina þar sem kvikmyndatónlist kvenna er í sviðsljósinu.
Eydís (t.v.) og Arngerður standa að Lokki kvikmyndartónlistarviðburði. Nafnið er tekið úr fornnorrænu og var notað um sérstakt hljóð sem lætur röddina
heyrast langar vegalengdir. Með Lokki vilja þær beina kastljósinu að konum og öðrum kyngervum en körlum í tónlist og kvikmyndagerð. FRÉTTABLAÐIÐ/ERnIR
jme@frettabladid.is
Arngerður María Árnadóttir og
Eydís Eir Brynju- Björnsdóttir
reka saman framleiðslufyrirtækið
Anima Productions. Eydís Eir er
sjálfstætt starfandi leikstjóri og
höfundur og menntuð í kvik-
myndagerð frá FAMU. Arngerður
er menntaður organisti, kórstjóri
og tónskáld, er sjálfstætt starfandi
tónlistarkona og tónskáld og er í
tónlistarhópnum Umbru.
Pönk og glimmerkjólar
Báðar hafa skapað sér fjölbreyttan
fatastíl sem endurspeglar per-
sónuleika þeirra. „Ég get verið
rosa pönk, villt og tryllt, klætt
mig alla í latex eða verið klassísk í
fínum svörtum pin-up kjól. Er svo
í jarðlitum næsta dag í prjónuðum
kjól með hatt,“ segir Eydís Eir og
bætir við: „Í gær fór ég í skotapils,
moonboots bomsur og pels. Vana-
lega er ég með nokkrar leðurbuxur
í gangi. Ég er líka mikið með hatta
og þessa dagana ég elska litríkar
dragtir. Rauða flauelsdragtin mín
er guðdómleg. Ég er dýrka líka heil-
galla sem eru alltaf þægilegir og á
veturna bý ég í silfursnjógallanum
mínum. Einnig fíla ég hálsklúta
og slæður og á einn tímalausan
úr silki frá Hermés sem ég nota
endalaust og á marga vegu. Töff
sólgleraugu gera svo gæfumuninn.“
„Minn stíll byggir aðallega
á þægilegum fötum í litum og
gjarnan með mynstrum. Ég held
ég eigi kjóla í nánast öllum litum
og marga glimmer líka sem ég hef
gaman af að klæðast við ákveðin
tækifæri. Þægilegir skór, eins og
strigaskór og svartir grófir skór eru
líka möst hjá mér,“ segir Arngerður.
Notað frekar en nýtt
Báðar eru á þeim buxunum að
kaupa frekar notað en nýtt, en þær
neita sér þó ekki um nýjar flíkur ef
svo ber undir. „Kannski má segja
að ég hafi einum of gaman af því
að kaupa föt, sérstaklega peysur
og kjóla, og verð að viðurkenna
að ég á óþarflega mikið. Það gerir
bara svo mikið fyrir mig að vera í
fallegum og helst litríkum fötum.
Ég kaupi helst notað á Íslandi.
Verslanahöllin á Laugavegi er
uppáhaldsbúðin mín og ég kíki
líka reglulega í Hringekjuna. Ég
freistast þó stundum til að kaupa
nýtt þegar ég er í útlöndum en
reyni að halda því í lágmarki,“
segir Arngerður.
„Notað klárlega. Ég elska ein-
staka hluti, sem enginn annar á og
þræði nytjamarkaði hér heima og
erlendis. Báðar systur mínar, Þóra
Hlíf og Eygló, eru algjörar tísku-
dívur og ef mig vantar eitthvað fínt
fæ ég lánað frá þeim. Þær senda
mér reglulega hlekki á netversl-
anir: „Þetta er svo mikið þú,“ segja
þær og þá kannski kaupi ég
Alla daga
gegn kulda og sól
Apótek, Hagkaup og Fjarðarkaup
www.celsus.is