Fréttablaðið - 12.01.2023, Blaðsíða 9
helgisteinar@frettabladid.is
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, for-
stjóri Niceair, segir að hugmyndin
um að bjóða upp á klippikort
fyrir f lugferðir hafi mælst vel fyrir
meðal viðskiptavina Niceair. Hann
segir kortin auðvelda fjölskyldum
og fastakúnnum að ferðast á milli
landa.
„Þessu hefur verið vel tekið af
neytendum, ekki síst vegna þess
að það er svo mikið öryggi í þessu.
Farið kostar alltaf það sama óháð
því hvað er bókað í vélina. Þú ert
alltaf með öruggt sæti á sama verði.“
Niceair býður upp á tvenns konar
klippikort fyrir viðskiptavini. Tíu
ferðir til eða frá Kaupmannahöfn
kosta 350 þúsund og tíu ferðir til eða
frá Tenerife fást á 660 þúsund. Þor-
valdur segir að ódýrasta fargjaldið
frá Akureyri til Kaupmannahafnar
sé í kringum 20 þúsund, en það dýr-
asta á rúmlega 60 þúsund.
Hann segist hafa fengið hug-
myndina sökum þess hve mikil
umferðin er frá Norðurlandi til
Skandinavíu, en margir íbúar á
Norður- og Austurlandi eru einnig
búsettir á Norðurlöndunum.
„Þetta gæti kannski verið hug-
mynd fyrir önnur f lugfélög að
skoða, en við metum auðvitað
stöðuna okkar út frá okkar eftir-
spurn, sem hefur verið góð,“ segir
Þorvaldur. n
Þetta gæti kannski
verið hugmynd fyrir
önnur flugfélög að
skoða.
Þorvaldur Lúð-
vík Sigurjónsson,
forstjóri Niceair
Gerður í Blush segir það enga
tilviljun að henni hafi ásamt
góðu fólki tekist að byggja upp
íslenska kynlífstækjaverslun
sem velti á bilinu sex til sjö
hundruð milljónum króna
á ári. Allt byggi þetta á þrot-
lausri vinnu, þrautseigju og
ástríðu fyrir viðfangsefninu.
ggunnars@frettabladid.is
„Það er búið að leggja rosalega
vinnu í þetta. Líf mitt snýst um
þetta og ég hef verið vakin og sofin
yfir þessu fyrirtæki síðastliðin
þrettán ár,“ segir Gerður Huld Arin-
bjarnardóttir, eigandi kynlífstækja-
verslunarinnar Blush.
Gerður hefur vakið verðskuld-
aða athygli í íslensku viðskipta-
lífi undanfarin ár. Ekki síst fyrir
óhefðbundnar aðferðir í markaðs-
setningu.
Hún segir Blush samt ekki hafa
sprottið upp úr einskærum áhuga
hennar á kynlífstækjum. Öðru nær.
„Grunnurinn að fyrirtækinu er
miklu frekar að ég sá að þarna var
rakið tækifæri. Áttaði mig á að það
var risastórt gat á þessum markaði
og ákvað að gera eitthvað í því,“
segir Gerður.
Þegar hún keypti sitt fyrsta kyn-
lífstæki fannst henni eins og hún
væri að gera eitthvað ólöglegt. Þetta
hafi allt verið svo mikið tabú.
„Svo fór ég að lesa mér til og
komst að því að allar spár bentu til
þess að markaður fyrir vörur sem
tengjast kynlífi ætti eftir að marg-
faldast að stærð á næstu árum í Evr-
ópu. Þá varð eiginlega ekki aftur
snúið. Mér fannst tækifærið of gott
til að láta það fram hjá mér fara. Svo
langaði mig líka til að breyta þess-
ari neikvæðu ásýnd kynlífstækja
og viðhorfi fólks til kynlífs um leið.“
En þótt Gerður hafi vitað að hug-
myndin væri góð var hún ekkert
endilega viss um að hún væri rétta
manneskjan til að hrinda henni
í framkvæmd. Hennar stærsta
áskorun í upphafi hafi verið að öðl-
ast nægilega mikla trú á sjálfri sér.
„Á þessum tíma var ég rétt skriðin
yfir tvítugt og að koma úr fæðing-
arorlofi. Eina menntunin sem ég
hafði upp á vasann var grunnskóla-
próf. Ég vissi til dæmis ekkert hvað
virðisaukaskattur var. Komst ekki
að því fyrr en mörgum mánuðum
eftir að ég stofnaði fyrirtækið,“ segir
Gerður og hlær.
„Þannig að ég var aðallega að
glíma við eigin fordóma. Svona í
fyrstu. Gagnvart sjálfri mér. Ég hef
alveg þurft að vinna í sjálfri mér
hvað það varðar.“
Að sögn Gerðar reyndist þessi
skortur á sjálfstrausti, svona eftir á
að hyggja, stærsta hindrunin. Við-
brögðin í viðskiptalífinu eða álit
annarra hafi haft minna að segja.
Allar efasemdaraddirnar hafi frekar
styrkt hana í þeirri trú að hún væri
með eitthvað stórt í höndunum.
„Ég var oft spurð að því hvernig ég
endaði í kynlífstækjabransanum.
Eins og þetta væri einhvers konar
endastöð sem enginn óskar sér. Það
finnst mér enn í dag mjög fyndið.
Svo er þetta auðvitað mjög karl-
lægur bransi. Þegar ég var að fara á
mínar fyrstu vörusýningar erlendis
var ég eina konan í Evrópu sem rak
eigin kynlífstækjaverslun. Ég þurfti
alveg að sanna mig. Sýna fólki
að þessari 21 árs gömlu konu frá
Íslandi væri alvara,“ segir Gerður.
Það hafi henni tekist með mikilli
vinnu og þrautseigju.
„Í raun er það lykillinn að vel-
gengni Blush og öllu þessu ævintýri.
Okkur hefur gengið fáránlega vel en
það er fyrst og fremst vegna þess að
við erum búin að vinna fyrir því. n
Þrotlaus vinna að baki velgengninni
Gerður í Blush var í hispurslausu viðtali í Markaðnum á Hringbraut í gærkvöldi. MYND/HRINGBRAUT
Ég þurfti alveg að
sanna mig. Sýna fólki
að þessari 21 árs gömlu
konu frá Íslandi væri
alvara.
Gerður Huld Arinbjarnardóttir,
eigandi Blush
Áskorun um að skrá
raunverulega eigendur
Skráningarskyldum aðilum sem falla undir ákvæði til bráðbirgða I við lög
um skráningu raunverulegra eigenda, nr. 82/2019 ber að skrá raunverulega
eigendur sína, sbr. 2. mgr. 4. gr. laganna.
Hér með er skorað á þá lögaðila sem ekki hafa skráð raunverulega eigendur
í fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra að sinna skráningarskyldu innan tveggja
vikna frá því áskorun var birt í Lögbirtingablaði þann 11. janúar 2023, sbr. 2.
mgr. ákvæðis til bráðabirgða II við lög um skráningu raunverulegra eigenda,
nr. 82/2019, sbr. lög nr. 139/2022.
Sinni þeir lögaðilar sem enn eiga eftir að skrá raunverulega eigendur ekki
skyldu sinni með fullnægjandi hætti innan þess tíma mun ríkisskattstjóri
taka ákvörðun um að krefjast skipta á þeim og í kjölfarið krefjast
dómsúrskurðar um slit eða skipti, sbr. 3. mgr. og 6. mgr. ákvæðis til
bráðabirgða II við lög um skráningu raunverulegra eigenda, nr. 82/2019,
sbr. lög nr. 139/2022.
Vakin er athygli á að áður en tveggja vikna frestinum lýkur getur
fyrirsvarsmaður aðila óskað eftir því að fresturinn verði framlengdur allt
að tveimur vikum og ber ríkisskattstjóra að verða við því ef hann telur
lögmætar ástæður réttlæta frekari drátt á að skráningarskyldu sé sinnt.
Nánari upplýsingar má finna á svæði fyrirtækjaskrár á www.skatturinn.is
fyrirtaekjaskra@skatturinn.is 442 1000
Upplýsingaver opið:
Mán.-fim. 9:00-15:30
Fös. 9:00-14:00
Segir klippikort Niceair veita öryggi
Forstjóri Niceair segir heilmikila flugumferð að norðan til Skandinavíu.
FRÉTTABLAÐIÐ/AXEL
FIMMTUDAGUR 12. janúar 2023 Fréttir 9Fréttablaðið MARkAðURInnFréttablaðiðFIMMTUDAGUR 12. janúar 2023