Fréttablaðið - 12.01.2023, Page 8
Hreyfing hefur alltaf
verið stór hluti af mínu
lífi, sama í hvaða formi
hún er.
Eftir því sem við kom-
umst næst er hvergi að
finna jafn góðar
aðstæður fyrir landeldi
og á Íslandi.
Jens Þórðarson,
framkvæmda-
stjóri GeoSalmo
Sölvi Rúnar Pétursson tók við stöðu
markaðsstjóra Justikal í nóvember á
síðasta ári. Áður starfaði hann í rúm
fjögur ár hjá auglýsingastofunni
ENNEMM og þar áður starfaði hann
við markaðsmál í Kaupmannahöfn
fyrir DigitasLBi Nordics, Evendo og
Lessor A/S.
Nýsköpunarfyrirtækið Justikal
hefur á síðustu árum hannað hug-
búnað sem gerir lögmönnum og
öðrum aðilum kleift að senda gögn
rafrænt til dómstóla. „Lausnin er
þannig uppbyggð að málsaðilar fá
tilkynningar þegar eitthvað nýtt
gerist í þeirra málum og þeir eru
því alltaf upplýstir um framvindu
sinna mála. Lausnin miðar að því að
auðvelda störf allra aðila sem koma
að dómsmálum og gæti sparað
íslensku samfélagi háar fjárhæðir á
ári hverju,“ segir Sölvi.
„Við erum á ákaflega spennandi
stað í dag með tilbúna lausn fyrir
markaðinn og stefnum á að fjölga
notendum hratt innanlands á næstu
vikum og mánuðum þegar f leiri
og f leiri munu sjá þann ábata sem
kerfið skilar.
Á næstu misserum munum við
síðan fjölga starfsmönnum, stór-
efla þróun og byggja upp alþjóðlegt
sölu- og markaðsteymi til að sækja á
erlenda markaði en engar sambæri-
legar lausnir eru í boði erlendis sem
gerir vegferðina ákaf lega spenn-
andi,“ segir hann.
Hver eru helstu áhugamálin?
„Ég hef alltaf haft gaman af því að
hreyfa mig en hreyfing hefur alltaf
verið stór hluti af mínu lífi, sama í
hvaða formi hún er. Í augnablikinu
reyni ég að fara sem oftast með
krakkana upp í Bláfjöll á skíði eða
á snjóbretti við góðar undirtektir.
Þegar ég var yngri var ég á kafi í
borðtennis en þar hefur elsti sonur
minn tekið við keflinu með miklum
sóma.
Ég hef einnig mjög gaman af
öllum ferðalögum innanlands og
erlendis og að njóta góðra stunda
með fjölskyldu og vinum.“
Hver er uppáhaldsbókin?
„Ég á í raun enga uppáhaldsbók
og myndi seint f lokka mig sem
lestrarhest en ég segi stundum að ég
sé að spara lesturinn til efri áranna.“
Besta sumarfríið sem þú hefur
farið í?
„Það er alltaf nærtækast að nefna
það sem maður gerði síðasta sumar
en við vorum svo heppin að fá að
fagna tveimur stórafmælum erlend-
is með stórfjölskyldum okkar.
Annars vegar fögnuðum við 70 ára
afmæli pabba á Tenerife og hins
vegar 60 ára afmæli tengdapabba
í Salou á Spáni. Báðar ferðir voru
ákaf lega vel heppnaðar en þrátt
fyrir að Covid hafi sett svip sinn á
aðra ferðina þá náðum við að búa til
dýrmætar minningar fyrir okkur og
krakkana.“ n
Sparar lesturinn til efri áranna
Sölvi Rúnar
Pétursson,
markaðsstjóri
Justikal, fer
mikið með fjöl-
skylduna í Blá-
fjöll um þessar
mundir.
MYND/BENT
MARINÓSSON
n Svipmynd
Sölvi Rúnar Pétursson
Nám:
MS-gráða í viðskiptafræði með
áherslu á markaðsfræði og
alþjóðaviðskipti frá Háskóla Ís-
lands.
Fjölskylduhagir:
Í sambúð með Daníelu Rún
Reynisdóttur, 4 börn.
Fjárfesting GeoSalmo í land-
eldisstöð fyrirtækisins í Ölfusi
getur numið allt að 90 millj-
örðum króna strax á næstu
árum. Það er á pari við áætl-
aðan kostnað ríkisins vegna
nýs Landspítala í Vatnsmýri.
Þrjú fiskeldisfyrirtæki vinna nú að
því að koma upp landeldisverk-
smiðjum vestan við Þorlákshöfn
í sveitarfélaginu Ölfusi. Eitt þeirra
er fyrirtækið GeoSalmo sem skilaði
umhverfismatsskýrslu til Skipu-
lagsstofnunar á síðasta ári. Undir-
búningur fyrirtækisins vegna fram-
kvæmda á svæðinu er þegar hafinn.
Jens Þórðarson, framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins, segir að upp-
byggingin muni taka að lágmarki
þrjú ár og áætlanir geri ráð fyrir að
allt að 25 þúsund tonn af eldislaxi
verði framleidd í verksmiðjunni.
„Við sjáum samt fyrir okkur að
stækka starfsemina enn frekar í
Ölfusi þegar fram í sækir,“ segir Jens.
Hann bætir við að fyrirhugaðar
framkvæmdir upp á 80 til 90 millj-
arða séu þegar að fullu fjármagn-
aðar og að baki standi stór hópur
íslenskra fjárfesta.
Samk væmt fyrirtækjaskrá á
Aðalsteinn Jóhannsson stóran hlut
í GeoSalmo. Aðalsteinn hefur meðal
annars fjárfest í Advania og Berin-
ger Finance.
Fyrr í þessari viku ákvað svo
sveitarfélagið Vogar á Vatnsleysu-
strönd að ganga til viðræðna við
GeoSalmo um uppbyggingu eldis-
stöðvar sem áætlað er að verði af
svipaðri stærðargráðu og verk-
smiðjan í Ölfusi.
Það er því ljóst að GeoSalmo er
stórhuga þegar kemur að uppbygg-
ingu landeldis á suðvesturhorni
landsins.
Jens segir enda fulla ástæðu til.
Aðstæður hér á landi séu allar hinar
ákjósanlegustu og vaxtarmöguleik-
arnir miklir í greininni.
„Eftir því sem við komumst
næst er hvergi að finna jafn góðar
aðstæður fyrir landeldi á Íslandi frá
náttúrunnar hendi.
Hér er hægt að bora eftir sjó í
jörðu, sem er alls ekki sjálfgefið.
Fjárfesting á pari við nýjan Landspítala
Forsvarsmenn
landeldisstöðv-
ar GeoSalmo
við Þorlákshöfn
sjá fyrir sér enn
frekari vaxtar-
möguleika á
svæðinu.
MYND/AÐSEND
Guðmundur
Gunnarsson
ggunnars@
frettabladid.is
Það þýðir um leið að við getum beitt
tækni sem hefur þegar sannað gildi
sitt og er til þess að gera einföld,“
segir Jens.
Það sé sannarlega mikilvægt að
það sem skipti jafnvel enn meira
máli sé að hagkvæmur og stöðugur
raforkumarkaður sé fyrir hendi
hér á landi. Það sé veigamesta for-
senda þess að hægt sé að byggja upp
landeldi í stórum stíl. Og þar standi
Ísland öðrum löndum framar.
„Bent hefur verið á að það sé
ekki mikil orka eftir til skiptanna á
Íslandi en þá er mikilvægt að muna
að landeldi þarf ekki mikla orku.
Það er að segja ef horft er til þess
hve mikil verðmæti geta skapast.“
Þriðja stoðin sem geri undirlendi
á suðvesturhorni landsins fýsilegt
sé allt það landrými sem þar sé til
staðar.
En hvert stefnir greinin? Hvaða
möguleikar eru fyrir hendi til fram-
tíðar í landeldi á Íslandi?
„Þetta er mjög ung atvinnugrein
á heimsvísu og fá fyrirtæki komin
langt á leið. Það er að segja á þessum
stóra skala sem við einblínum á.
Norðmenn eru komnir lengst.
Eins og í laxeldinu almennt. Hvort
sem það er á landi eða í sjó. Þar er
til að mynda eitt fyrirtæki komið
af stað með framleiðslu á stórum
skala og gengur vel.
Þannig að við erum mjög framar-
lega í þessari þróun,“ segir Jens.
Varðandi hvaða þýðingu upp-
bygging greinarinnar geti haft
fyrir þjóðarbúið segist Jens ekki í
nokkrum vafa um að laxeldi geti
orðið ein af burðarstoðum atvinnu-
lífs á Íslandi áður en langt um líður.
„Greinin þarf ekki að vaxa nema
upp í svona þrjú hundruð þúsund
tonn til að vera orðin jafn stór og
íslenski sjávarútvegurinn í heild
sinni.
Það áhugaverða við eldið er svo
að við höfum alla möguleika til að
þróa sjálf bæra aðfangakeðju. Þar
með værum við ekki bara komin
með atvinnugrein sem væri að
skapa tekjur á við aðrar stórar
greinar heldur værum við líka með
grein sem væri alíslensk og í sam-
ræmi við stefnu landsins í loftslags-
málum.“
Jens segir alveg ljóst að það sé
eftir heilmiklu að slægjast í upp-
byggingu landeldis á Íslandi.
Þess vegna séu fjárfestar farnir að
sýna greininni þennan gríðarlega
áhuga. n
8 Fréttir 12. janúar 2023 FIMMTUDAGURFréttablaðiðMARkAðURInn Fréttablaðið 12. janúar 2023 FIMMTUDAGUR