Fréttablaðið - 12.01.2023, Síða 11
Þorsteinn
Pálsson
n Af Kögunarhóli
„Við höfum það sem til þarf …
Við erum að bjarga heil-
brigðiskerfinu, menntakerfinu og
samgöngunum frá langvinnri van-
rækslu og ásælni peningaaflanna í
landinu …
Erum við ekki ánægð með aukið
fjármagn til heilbrigðismála?“
Þetta eru tilvitnanir í ræðu
Svandísar Svavarsdóttur ráðherra
í sjónvarpsumræðum um stefnu
ríkisstjórnarinnar í desember
2017.
Órímað
Hverri afgreiðslu fjárlaga og fjár-
málaáætlunar síðan hafa fylgt
yfirlýsingar um risahækkun á
fjárveitingum til heilbrigðismála.
Þannig hefur ríkisstjórnin samtals
tólf sinnum kynnt ákvarðanir um
hækkun framlaga.
Fréttir af vandræðum og jafnvel
neyðarástandi í heilbrigðiskerfinu
eru hins vegar f leiri nú en áður
en þessi samfellda lota hófst með
tveimur árlegum ákvörðunum um
viðbótarfjárveitingar.
Fjárlagaumræðan rímar ekki við
fréttaumræðuna. Atómljóð þóttu
að vísu bylting í ljóðagerð þótt þau
væru órímuð. En rímleysið í heil-
brigðisumræðunni endurspeglar
ekki neins konar byltingu.
Peningar
Rímleysið stafar af því að ríkis-
stjórnin og stjórnendur spítalans
nota ólíka mælikvarða. Ríkis-
stjórnin segir satt að því leyti að
hún reiðir fram mun fleiri krónur.
Stjórnendur heilbrigðiskerfisins
þurfa hins vegar að vega kaupmátt
hverrar krónu í ljósi verðbólgu og
launahækkana.
Veruleikinn er sá að kaup-
máttarkrónum, sem veitt er til
heilbrigðiskerfisins, hefur ekki
fjölgað.
Heilbrigðisáætlun til 2030 var
samþykkt samhljóða á Alþingi
fyrir fjórum árum. Það er því ekki
stór ágreiningur um skipulag og
markmið. Pólitíski ágreiningurinn
snýst um peninga.
Annars vegar er ágreiningur um
það hvort stækka á sneiðina, sem
heilbrigðiskerfið fær. Hins vegar
eru skiptar skoðanir um hvernig
afla ætti aukinna fjármuna.
Hlutdeildin
Stjórnarflokkarnir þrír hafa í
framkvæmd talið aðra hagsmuni
mikilvægari en aukna hlutdeild
heilbrigðiskerfisins í þjóðarút-
gjöldum. Framsókn og VG voru þó
á annarri skoðun fyrir kosning-
arnar 2017.
Samfylking og Viðreisn hafa
talað fyrir því að þetta hlutfall
ætti að vera nær því sem er á
öðrum Norðurlöndum.
Til þess að ná því markmiði þarf
annað hvort að hækka skatta eða
lækka hlutdeild annarra útgjalda-
liða og færa til heilbrigðiskerfisins.
Kostirnir
Ríkisstjórnin hefur hækkað fjár-
magnstekjuskatt án þess að heil-
brigðiskerfið hafi notið ávinnings
af því. Hækkun skatta þeirra allra
tekjuhæstu gæti hjálpað, en þó
aðeins leyst lítinn hluta vandans.
Auðlindagjald má auðveldlega
hækka. En jafnvel tvöföldun þess
gæfi varla meira en tíunda hluta
þess sem þarf.
Ríkissjóður ver hins vegar marg-
falt hærra hlutfalli útgjalda sinna í
vaxtagreiðslur en nokkurt annað
Norðurlanda. Með því að koma
vaxtahlutfallinu niður á sama stig
og þar mætti líka koma hlutfalli
heilbrigðisútgjalda upp á sama
stig.
Með tvöföldun auðlindagjalds
og afmörkuðum skattahækkunum
þarf að auki kerfisbreytingu til
að lækka vaxtagjöld eða gífur-
lega almenna tekjuskattshækkun.
Þetta eru kostirnir, sem pólitíkin
þarf að taka afstöðu til.
Pólitíkin
Samfylking og Viðreisn voru
sammála um að skapa svigrúm
til að auka hlut heilbrigðismála
með kerfisbreytingu í peninga-
málum. Nú hefur Samfylkingin
lagt slíkar hugmyndir til hliðar og
ætlar alfarið að ná því marki með
skattahækkunum.
Stjórnarflokkarnir vilja svo alls
ekki kerfisbreytingu á þessu sviði.
Eftir stendur að Viðreisn ein talar
fyrir kerfisbreytingu til að lækka
vaxtaútgjöld og auka heilbrigðisút-
gjöld.
Hvort heldur menn tala um
skattahækkanir eða kerfisbreyt-
ingu til að leysa vandann er þetta
verkefni, sem tekur að minnsta
kosti áratug.
Fyrir kosningarnar 2017 boðaði
VG nákvæmlega sömu lausn og
Samfylkingin nú. Eftir stjórnar-
myndun spurði forysta VG hvort
þjóðin væri ekki jafn ánægð og
hún sjálf. Neikvæðum svörum
fjölgar með hverju ári.
Samfylkingin lofar að gefa ekki
þumlung eftir með skattahækk-
anir. Féll VG á prófinu með því að
setja ekki slíka úrslitakosti? Eða
voru skattahækkunaráformin ein-
faldlega ekki raunhæf?
Umræðan
Val um leiðir til að afla fjármuna
eða færa þá til skiptir mestu máli
fyrir umræðuna um bætta heil-
brigðisþjónustu.
Það er ekki nóg að pólitíkin ræði
þær leiðir. Kjósendur þurfa líka að
taka afstöðu til þeirra. Og heil-
brigðisstarfsfólk getur ekki látið
sem sá hluti umræðunnar komi
því ekki við.
Það er vandalaust að tala fyrir
auknum útgjöldum. Hitt er þraut
að finna peningana. Þar er ekkert
ókeypis og án hliðarverkana. n
Erum við ekki ánægð?
Finndu réttu eignina
fyrir þig á frettabladid.is Fasteignablaðið
Fasteignablað Fréttablaðsins kemur út alla þriðjudaga
FIMMTUDAGUR 12. janúar 2023 Skoðun 11Fréttablaðið