Fréttablaðið - 12.01.2023, Qupperneq 14
C-YOUR-IMMUNITY® fæst í Apótekaranum, Fjarðarkaup, Hagkaup, Krónunni, Lyf & heilsu, Nettó og á goodroutine.is
K
A
V
IT
A
Vörn í vetur,
alla daga
C-YOUR-IMMUNITY® fyrir öflugt ónæmiskerfi
Einstök blanda með c-vítamíni, quercetin,
hesperidin og bromelain
Á viðburðinum verða einnig pallborðsumræður með innlendu og erlendu fagfólki innan kvikmynda- og tónlistarbrans-
ans. Meðal annars mætir Sue Crawshaw, sem er einna þekktust fyrir umsjón tónlistarinnar í Netflixþáttaröðinni Crown.
Fréttablaðið/Ernir
það. Ég elska líka nýjar gjafir og
dreymir um ný Louboutin-stígvél
með rauðum sólum. Ég verð þó
að vera í ákveðnu skapi þegar ég
kaupi föt og geri það vanalega
þegar ég neyðist til þess. Ég hef til
dæmis aldrei farið í sérstaka versl-
unarferð erlendis. En þegar ég dett
í gírinn getur alveg verið gaman.
Ég fór í Hringekjuna um daginn,
ætlaði bara að kíkja aðeins. Þá var
bara dj og frír bjór og ég skemmti
mér helvíti vel,“ segir Eydís og hlær.
Fötin og sköpunin
Hafa fötin áhrif á sköpunargáfuna
– eða öfugt?
„Já, svei mér þá! Falleg, litrík
og þægileg föt hafa jákvæð áhrif
á mína líðan og ég held að það
endurspeglist í tónlistinni. Ég held
að maður hljóti að vinna betur ef
manni líður vel með sjálfan sig,“
segir Arngerður. Eydís segir að vel-
líðan skipti mestu máli fyrir sköp-
unargleðina. „Að vera í jafnvægi,
stunda hreyfingu, gott mataræði
og hugarró. Þá kemst ég í f læði. Það
þarf engin föt í f læði. En föt skapa
auðvitað öryggi og vellíðan. Innra
og ytra lag skipta mig máli, meira
að segja nærfatnaðurinn. Ég væri
til í að sjá meira af því í íslenskri
hönnun. Agent Provocateur mætti
alveg opna verslun hér,“ segir
Eydís.
Fylgist þið með tískunni? Og
íslenskri fatahönnun?
„Að einhverju leyti, en meira
svona þegar mér hentar. Ég verð
líka að viðurkenna að mér finnst
mjög gaman að detta inn í hönn-
unarbúðir og skoða þær reglulega,“
segir Arngerður.
„Systur mínar fylgjast meira með
og deila með mér á Pinterest. Mig
dreymir svo um að fá mér stílista í
mánuð og prófa allt sem hann segir
mér að prófa. Ég gúgla oft íslenska
hönnuði til að finna eitthvað
íslenskt, til dæmis fyrir hátíðirnar
sem ég fór á með kvikmyndina
mína, en verð að viðurkenna að
það var erfitt að finna eitthvað. Oft
voru flíkurnar ekki til á lager því
þær eru framleiddar í litlu upplagi,
en það er það sem ég fíla. Ég fylgist
mikið með Spaksmannsspjörum.
Einnig fylgist ég með Ýr Þrastar-
dóttur, One Creation og Hall-
dóru Sif sem reka Apotek Atelier
á Laugaveginum. Yeoman er líka
mjög áberandi en ég þarf að gefa
mér tíma til að kíkja í leiðangur
með tískusystrunum mínum að
máta meira af íslenskri hönnun.
Ég vil endilega fá ábendingar um
íslenska hönnun til að prófa,“ segir
Eydís.
Flíkurnar á myndunum
Á forsíðumyndinni skartar Arn-
gerður gullfallegum rauðum
kjól og Eydís dásamlegri rauðri
blómadragt. „Kjólinn rakst ég á í
Verslanahöllinni í nóvember og
féll fyrir honum. Sniðið geggjað
og liturinn ekki síður. Ég er mikið
fyrir stóra eyrnalokka og þessa
keypti ég í hönnunarbúð í Lissa-
bon í haust. Skórnir eru Vagabond,
ég nota ekki mikið hælaskó en
þessir eru mjög þægilegir og passa
við flest,“ segir Arngerður. „Þessi
pixlaða dragt er sumarleg, en samt
eitthvað svo töff fyrir alls konar
tilefni, var í henni á Airwaves og
elska hana. Græna leðurtaskan er
úr leðurbúð í Feneyjum. Fullkomin
litapalletta,“ segir Eydís.
Um fatnaðinn á myndinni að
ofan segir Eydís: „Dressið er nærri
allt second hand. Ég fann pelsinn
notaðan í Gyllta kettinum. Það
var pottþétt leikglaður hönnuður
sem setti hann saman. Kraginn
er minkur og ermarnar teknar
af. Hann er með götótta vasa
en er ótúlega töff við alls konar.
Ég mæli með að mæta þangað á
sumrin að kaupa pelsa. Afgreiðslu-
dömurnar þar eru líka eðalkonur.
Leðurskórnir eru úr Lólu Flórens,
uppáhalds kaffihúsinu mínu.
Hattinn fékk ég í skosku hálönd-
unum. Slæðan er 100% silki frá
sænska hönnuðinum Filippu K. Ég
gramsaði eftir henni í Konukots-
markaðinum og fékk á undir 500
krónum,“ segir Eydís.
„Buxurnar og kápan eru úr
Verslanahöllinni en bolurinn er
keyptur á útsölurekka í H&M.
Eyrnalokkana þykir mér mjög
vænt um. Þeir eru ekta silfur og
keyptir á markaði í Gdansk. Ég
stunda það að finna mér fallega
eyrnalokka, helst í hverri borg
sem ég heimsæki og þá er einmitt
heppilegt að ég ferðast töluvert um
þessar mundir með hljómsveitinni
minni Umbru,“ segir Arngerður.
Einstök tónlistarveisla
Arngerður og Eydís standa fyrir
kvikmyndatónlistarviðburðinum
LOKK, á vegum Anima Produc-
tions á laugardaginn, 14. janúar,
í Bíó Paradís, í samstarfi við RVK
Feminist Film Festival og shesaid.
so með stuðningi STEF og Rannís.
„Viðburður af þessu tagi hefur
verið lengi í hugmyndabankanum,
svo small þetta þegar við Arngerð-
ur hittumst með Maríu Leu Ævars
hjá RVK Feminist Film Festival,“
segir Eydís og bætir við: „Kristín
Jóhannesdóttir leikstjóri sérvaldi
sjö tónskáld til að frumsemja nýja
tónlist við valdar senur úr kvik-
myndum sínum. Arngerður er ein
af þeim, ásamt fleiri frábærum
tónlistarkonum, eins og Betu Ey,
K.Óla og Unu Stef sem eru að stíga
sín fyrstu skref í kvikmyndatón-
listinni um þessar mundir og fá hér
tækifæri til að láta ljós sitt skína,“
segir Eydís. „Á viðburðinum
sýnum við kvikmyndatónverkið
Kvöldvöku. Eydís Eir leikstýrir og
ég sem tónlistina,“ segir Arngerður.
Arngerður hefur látið til sín taka
í tónlistarheiminum að undan-
förnu og semur hér sitt fyrsta kvik-
myndatónlistarverk á opinberum
vettvangi. „Það er töluvert ólíkt
að vinna tónlist út frá myndefni í
samstarfi við kvikmyndagerðar-
fólk. Að mörgu leyti hefurðu ekki
jafn frjálsar hendur og í mörgum
öðrum verkefnum. En um leið
eru þau oftast afar spennandi og
gefandi að glíma við,“ segir Arn-
gerður.
Sýnileiki er lykillinn
Að sögn beggja er verkefnið
mikilvægt, því þrátt fyrir að
íslenskt kvikmyndagerðarfólk
sé almennt orðið meðvitaðra um
nauðsyn þess að stuðla að jafnrétti
kynjanna í kvikmyndum sínum,
þá hallar enn á stöðu kvenna og
annarra kyngerva, sem og fólks af
öðrum kynþáttum, í kvikmynda-
gerð og tónlist á Íslandi. „Það
er enn þá vantraust til kvenna,
jafnvel þeirra sem hafa unnið til
Óskarsverðlauna, eins og í tilfelli
Hildar Guðnadóttur. Fólkið með
peningana efast enn um hvort
konum sé treystandi,“ segir Arn-
gerður. „Það má þó spyrna á móti
með því að gera betur í aðgengi,
fjármögnun og öðrum úrræðum
fyrir þann hóp sem hallar á, eins
og hefur komið í ljós í Svíþjóð. Það
er lykilatriði að auka sýnileikann
eins og þetta verkefni gerir,“ segir
Eydís að lokum. n
Falleg, litrík og
þægileg föt hafa
jákvæð áhrif á mína
líðan og ég held að það
endurspeglist í tónlist-
inni. Ég held að maður
hljóti að vinna betur ef
manni líður vel með
sjálfan sig.
Arngerður María
2 kynningarblað A L LT 12. janúar 2023 FIMMTUDAGUR