Fréttablaðið - 12.01.2023, Síða 16
Ég finn alveg fyrir
rosalega mörgum
tilfinningum, í mínum
augum gerist það ekki
stærra en að sjá hann í
íslenska landsliðsbún-
ingnum.
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Heiða Einarsdóttir, móðir Arons Pálmarssonar
Hvernig var hann sem barn?
„Aron var mjög kröftugt barn
og mér var ráðlagt af kennurum
hans á leikskólanum að hafa hann
bara í nægilega mörgum íþróttum
svo að hann gæti fengið útrás þar.
Aron á afa sem var alltaf að vinna í
íþróttahúsinu í Kaplakrika á sínum
eldri árum og ég fór bara oft með
Aron þangað í pössun. Þar fékk
hann bara útrás og hefur síðan þá
elskað Kaplakrika.“
Sástu fljótt í hvað stefndi hjá
honum?
„Aron æfði alls konar íþróttir
sem barn. Hand-, fót- og körfu-
bolta, ég fór síðan með hann í
sund nánast á hverjum einasta
degi og hann var öflugur kylfingur
í golfi. Það kom hins vegar ekki
fljótt í ljós að hans vegur myndi
liggja í handboltanum.
Hann var með ótvíræða hæfi-
leika þar, engin spurning, en
það átti einnig við fótbolta og
körfubolta. Það var alveg spurning
hvort hann myndi enda í fótbolt-
anum, hann var að minnsta kosti
sjálfur á þeim buxunum á einum
tímapunkti. En svo velur hann á
endanum handboltann. Það var
í raun alveg sama í hvaða íþrótt
hann var, Aron var góður í þessu
öllu, alhliða góður íþróttamaður.“
Voru einhverjar áberandi fyrir-
myndir hjá honum í æsku?
„Fyrirmyndirnar voru í körfu-
boltanum, til að mynda Michael
Jordan. Í handboltanum dýrkaði
hann Ivano Balic. Það sem Aron
gat horft á hann spila handbolta
fram og til baka og mætti í raun
segja að hann hafi verið idolið
hans. Í fótboltanum var Eiður
Smári Guðjohnsen síðan áberandi
fyrirmynd hans.“
Hvaða tilfinningar hellast yfir þig
á meðan hann spilar landsleik?
„Ég finn alveg fyrir rosalega
mörgum tilfinningum, í mínum
augum gerist það ekki stærra
en að sjá hann í íslenska lands-
liðsbúningnum. Við höfum nú
upplifað allt hitt með honum líka
á félagsliðasviðinu en að sjá hann
í íslenska landsliðinu, það fer
kuldahrollur um allan líkamann
þegar að maður sér hann labba
inn á völlinn, alveg rosalegt. Það
tekur líka á að horfa á landsleiki,
maður upplifir mikið stress en á
sama tíma er þetta algjörlega dá-
samlegt. Algjör gleðisprengja fyrir
okkur í mörg ár.“
Helstu kostir?
„Hann er mikill leiðtogi, rétt-
sýnn og hann les vel í aðstæður.
Svo er hann ákaflega jákvæður og
góður einstaklingur.“
Hvernig mun íslenska landsliðinu
ganga á HM?
„Við förum alla leið í verðlauna-
sæti.“
MöMMustrákarnir okkar
Frægir spá í spilin
Í aðdraganda heimsmeist-
aramótsins í handbolta sló
Fréttablaðið á þráðinn til
þjóðþekktra einstaklinga
og bað þá um að spá í spilin
um gengi Íslands á mótinu.
Hvernig mun Íslandi ganga
á HM og hver verður stjarna
mótsins í íslenska
landsliðinu?
sport@frettabladid.is
Katrín
Jakobsdóttir
forsætisráðherra
„Íslenska liðið
verður landi og
þjóð til sóma og
ég spái því að
liðið endi í topp
fimm. Liðið hefur
á að skipa leikmönnum sem eru
meðal bestu leikmanna í heimi
um þessar mundir, nægir þar að
nefna Ómar Inga Magnússon,
íþróttamann ársins, og svo held
ég að Gísli Þorgeir Kristjánsson og
Bjarki Már Elísson verði gríðarlega
öflugir.“
Auðunn Blöndal
fjölmiðlamaður
„Ísland fer á
kostum í mótinu
og endar í 3. sæti
(langar að segja
heimsmeistarar).
Þá mun Aron
Pálmarsson
sýna okkur af hverju hann er einn
besti handboltamaður sem við
Íslendingar höfum átt.“
Kristín Sif
útvarpskona á
K100
„Ég ætla að vera
súper bjartsýn
og jákvæð og
negla okkur í
fyrsta sætið …
ég vona að við
missum ekki okkar bestu menn i
Covid-vesen. Þá held ég að Ómar
Ingi eigi eftir að slá í gegn, auð-
mjúkur og greinilega mikill „team
player“ ásamt því að vera rokk-
stjarna á handboltavellinum.“
Íris
Róbertsdóttir
bæjarstjóri
í Vestmanna-
eyjum
„Íslandi mun
ganga vel, ég
er viss um það.
Stemmingin
og geta liðsins er með okkur. Ég
vona að við vinnum þetta. Held
það reyndar alltaf þegar Ísland
er að keppa, hvort sem það er í
Eurovision eða handbolta en það
er svo mikilvægt fyrir okkur öll að
hafa trú á verkefninu og ég sem
stuðningskona tek mitt hlutverk
alvarlega. Spái okkur í undanúrslit
og verðlaunasæti þar. Sem sagt
3. sætið. Ekki nokkur pressa frá
þjóðinni, við þurfum bara á því
að halda að liðið komist langt svo
að við öll getum átt gleðilegan
janúar. Ómar Ingi er fyrir fram
augljós stjarna mótsins enda einn
sá besti í heiminum í dag. En ég
held að Eyjamaðurinn Elliði Snær
Viðarsson muni koma á óvart og
verða stemmingsstjarna mótsins.
Hann er engum líkur, elskar
stemmingu og pressu og er alltaf
með hjartað á réttum stað fyrir
liðið.“
Sigmar
Vilhjálmsson
eigandi
Minigarðsins
„Ísland mun spila
allar umferðir
á HM, kristal-
kúlan mín var
að staðfesta
það. Hvort það endi með úrslita-
leiknum sjálfum eða í leiknum
um 3. sætið get ég ekki alveg séð
í kristalkúlunni minni, hún er
svo nærsýn blessunin. Ómar Ingi
verður burðarstólpi liðsins, það er
ljóst, en ég held að við eigum eftir
að sjá Viktor Gísla fara á kostum í
markinu, þetta verður hans stóra
mót og Arnar Freyr verður varnar-
maður mótsins.“
Birkir Már
Sævarsson
knattspyrnu-
maður
Ég held að við
verðum glæsi-
legir í allri riðla-
keppninni og
töpum í mesta
lagi einum leik.
Vinnum síðan í átta liða og und-
anúrslitum en töpum því miður
í úrslitum og lendum í 2. sæti.
Ómar verður svakalegur og
verður valinn maður mótsins. Sé
líka fyrir mér að Stiven verði kall-
aður óvænt inn og eigi í einhverj-
um leik eftir að verða jákvæður
örlagavaldur. Tryggi okkur jafnvel
sigur á lokasekúndunum.“
Guðmundur
Jóhannsson
upplýsingafull-
trúi Símans
„Íslenska lands-
liðið verður í
öðru til þriðja
sæti. Fer eftir
því hver verður
mótherji okkar
í undanúrslitum en svo getur
auðvitað allt gerst í hreinum úr-
slitaleik. Ég vona bara og þrái að
landsliðið spili sinn leik og gleðji
okkur sem sitjum heima í stofu
öskrandi á sjónvarpið. Þegar
stórmót eru í handbolta verður
til einhver ótrúleg stemning
sem fáir aðrir sjónvarpsvið-
burðir geta skákað. Gísli Þorgeir
Kristjánsson er minn maður
enda er mamma hans úr Breið-
holti, þar fara saman góð hand-
boltagen ásamt Breiðholts-
hörku sem er svo falleg og hrein.
Svo vona ég innilega að Viktor
Gísli eigi frábæra innkomu og
loki hreinlega þessu marki eins
og Reykjanesbrautinni, eitthvað
sem gerist auðvitað ef vörnin
virkjar sinn innri Ingimund Ingi-
mundarson.“
Þráinn Árni
Baldvinsson
gítarleikari
Skálmaldar
„Ég reikna aldrei
með öðru en
sigri í öllum
leikjum, topp-
frammistöðu
og gulli. Annað hvort ertu í þessu
af alvöru eða heima að leika þér.
Þegar illa gengur setja strákarnir
hnéð í þetta og klára dæmið. Ís-
land í 1. sæti. Guðmundur þjálfari
er auðvitað skærasta stjarnan í
þessum hópi. Hann er ótrúlega
góður í að fá leikmenn til að gera
sitt allra besta fyrir liðið og hann
virðist vera alveg með það á
hreinu hvenær á að ýta á menn og
hvenær á að leyfa leikmönnunum
að spila út frá innsæinu. Viktor
markvörður er svo kominn með
góða upphæð í reynslubankann,
topp-ávöxtun þar og hann verður
líklega okkar besti leikmaður á
mótinu. Engin pressa sko.“
Mynd/MuMMi lÚ
2 kynningarblað 12. janúar 2023 FIMMTUDAGURhm í handbolta 2023