Fréttablaðið - 12.01.2023, Side 18
MöMMustrákarnir okkar
Ragnhildur Sigurðardóttir, móðir Elvars Arnar Jónssonar
Hvernig var hann sem barn?
„Hann var mjög líflegur, hreyfði
sig mjög mikið og á eldri bróður
sem hann elti mikið, saman voru
þeir afskaplega líflegir.“
Sástu fljótt í hvað stefndi hjá
honum?
„Elvar Örn var í mjög mörgum
íþróttum og við foreldrar hans
tókum strax eftir mjög mikilli
líkamsvitund hjá honum. Hann
stóð mjög framarlega miðað
við jafnaldra sína í íþróttum. Var
öflugur í frjálsum íþróttum, hljóp
mjög hratt, reyndi fyrir sér í mark-
inu í fótboltanum sem og fremst
á vellinum. Við bjuggum í Noregi
þegar hann var 5–10 ára og þar
prófaði hann alls konar íþróttir.
Lengi vel var Elvar Örn í fót-
bolta og handbolta en á end-
anum varð handboltinn fyrir
valinu í kringum 15–16 ára aldur.
Við studdum hann þá í sinni
ákvörðun og höfum gert alla tíð
síðan, bæði hvað Elvar Örn varðar
og systkini hans.“
Voru einhverjar áberandi fyrir-
myndir hjá honum í æsku?
„Hann fylgist mikið með
mörgum af bestu íþrótta-
mönnum heims, eins og Michael
Jordan í körfuboltanum, franska
landsliðinu í handboltanum og
Guðjóni Val Sigurðssyni horna-
manni. Elvar Örn fylgdist mjög
mikið með öðrum íþróttum en
handbolta og er vel að sér á þeim
bænum.“
Hvaða tilfinningar hellast yfir
þig á meðan hann spilar landsleik?
„Ég upplifi rosa mikið keppnis-
skap, verð rosalega spennt. Þegar
börnin manns eru í liðinu þá
upplifir maður einhverja auka
spennu. Ég er öll á iði á meðan á
leik stendur en þessi hópur sem
myndar landsliðið núna einkenn-
ist af svo mikilli liðsheild og þá
sjálfkrafa upplifir maður vellíðan
og samgleðst þeim.
Það eru hins vegar alveg læti
í mér á meðan á leik stendur,
barnabörnin mín sitja alltaf með
heyrnarhlífar við hliðina á mér því
ég öskra alltaf þegar Ísland skorar
mark.“
Helstu kostir?
„Elvar Örn er rosalega góð
manneskja, með mikið og gott
hjarta. Hann er mikill liðsmaður,
hugsar um hópinn sinn, allt liðið.
Það er rosalegur kraftur í honum,
hann er einbeittur, metnaðar-
fullur, býr yfir miklum hraða,
gleði, áræðni.“
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, móðir Gísla Þorgeirs Kristjánssonar
Hvernig var hann sem barn?
„Hann var skemmtilegt barn
en á sama tíma krefjandi. Gísli var
afar uppátækjasamt barn, alltaf
glaður og kappsamur. Ef hann
ætlaði sér eitthvað þá bara fór
hann þangað, hann hætti aldrei
og var stundum grautleiðinlegur í
einhverjum rökræðum.“
Sástu fljótt í hvað stefndi hjá
honum?
„Þetta var eins og með svo
marga stráka í landsliðinu. Það býr
alveg ofboðsleg boltafærni í þeim
öllum. Gísli var góður í fótbolta,
góður í golfi, það bjó bara í honum
einhver næmni hvað íþróttirnar
varðar. Hann plummaði sig meira
að segja vel á hestbaki þegar ég lét
hann prófa það. Gísli lagði sig allan
fram og framan af var ekkert víst
hvort handboltinn eða fótboltinn
yrði fyrir valinu. Svo ákveður hann
það, 17 eða 18 ára gamall, að velja
handboltann.“
Voru einhverjar áberandi fyrir-
myndir hjá honum í æsku?
„Hann hefur alltaf horft mikið
til Ólafs Stefánssonar og Nikola
Karabatic en stóra fyrirmyndin
hefur verið knattspyrnumaðurinn
Cristiano Ronaldo í gegnum tíðina.
Þá hefur Gísli horft bara mikið til
afreksíþróttafólks, hvar sem það
er staðsett á litrófi íþróttanna.
Hann var alltaf að reyna að læra
af því.“
Hvaða tilfinningar hellast yfir þig
á meðan hann spilar landsleik?
„Nú hefur maður bæði upp-
lifað að vera maki landsliðsmanns
og foreldri, þetta er tvennt ólíkt
og allt aðrar tilfinningar í spilinu
þegar barnið manns á í hlut.
Gísli hefur oft verið þjakaður af
meiðslum og maður er stundum
smeykur þegar hann er að spila.
En þegar upp er staðið upplifir
maður gleði yfir að vera að horfa
á handbolta og sjá barnið sitt
taka þátt í því að gera landsliðið
enn sterkara. Það er bara ótrúlega
gaman. Um leið og ég er ótrúlega
stolt þá er bara ótrúlega gaman að
horfa á þetta lið, það er það sem
ég skynja meira núna en oft áður.“
Helstu kostir?
„Hvað íþróttirnar varðar þá
hættir hann aldrei, gefst aldrei
upp. Svo er það bæði kostur og
galli að hann hefur skap. Þá er
hann næmur á umhverfi sitt,
hvort sem um ræðir í tengslum við
handboltann eða innan fjölskyld-
unnar. Hann vill vera með fólki og
hefur gaman af samveru.“
Hvernig mun íslenska landsliðinu
ganga á HM?
„Mér finnst nálgun Guðmundar
í þessum efnum bara mjög
skynsöm. Við erum í erfiðasta
riðlinum, leikirnir á móti Portúgal
og Ungverjalandi eru 50/50 en
við eigum að vinna Suður-Kóreu.
Þetta fer ekki bara eftir dagsform-
inu hjá okkar mönnum heldur
einnig eftir því hvort við verðum
með heppnina með okkur í liði. Ef
við komumst upp úr riðlinum, þá
eru okkur allir vegir færir.“
4 kynningarblað 12. janúar 2023 FIMMTUDAGURhm í handbolta 2023