Fréttablaðið - 12.01.2023, Side 24
Það eru fáir sem þekkja það
eins vel hvernig er að vinna
með Guðmundi Guðmunds-
syni, landsliðsþjálfara
Íslands, og Óskar Bjarni
Óskarsson sem starfaði um
árabil sem aðstoðarþjálfari
hans hjá landsliðinu.
aron@frettabladid.is
Þjóðin lítur Guðmund ákveðnum
augum í starfi hans sem landsliðs-
þjálfari. Hann er maður sem leggur
mikið upp úr góðum undirbúningi
og vinnusemi, maður sem krefst
hins allra besta frá sínum leik-
mönnum. Það býr líka önnur hlið í
landsliðsþjálfaranum Guðmundi,
hlið sem þjóðin sér jafnan ekki því
það sem gerist hjá þjálfarateyminu
milli leikja er oft á huldu. Óskar
Bjarni varpar nú ljósi á það.
„Ég kom inn í teymið hjá Guð-
mundi þegar hann tók við lands-
liðinu í annað skiptið árið 2008,
fyrir umspilið fyrir Ólympíu-
leikana. Við störfuðum saman hjá
landsliðinu í yfir fjögur ár á tíma-
bilinu 2008 til 2012.“
Það er á þessu tímabili sem
íslenska landsliðið vinnur til verð-
launa, bæði á Ólympíuleikunum
2008 og Evrópumótinu 2010.
Hvernig er að starfa með Guð-
mundi á stórmótum?
„Í fyrsta lagi er Guðmundur bara
mjög vinnusamur. Hann undirbýr
sig og liðið alveg upp á tíu, það fer
ekkert fram hjá honum og þá er
hann duglegur að nota aðstoðar-
menn sína í að greina komandi
andstæðinga sem og leik lands-
liðsins. Þannig að fyrir það fyrsta
er það bara vinnusemin sem ein-
kennir hans störf, hún er gríðarleg.
Guðmundur er einnig mjög
góður í að greina aðalatriðin og
veit upp á hár hvað hann vill gera,
þá sér í lagi sóknarlega og það
einkenndi okkar tíma saman og
eitthvað sem hann býr enn að
núna á sínu þriðja tímabili með
landsliðið.“
Hugsar vel um sig
Hver og einn þjálfari býr yfir
nokkrum styrkleikum að mati
Óskars Bjarna.
„Guðmundur hefur nokkur
vopn í sínu vopnabúri og einn af
mikilvægari styrkleikum hans
þegar kemur að stórmótum, þar
sem pressan er mikil, er sá að hann
getur hvílst.
Guðmundur passar vel upp á
svefninn meðan á þessum stór-
mótum stendur, fer tímanlega að
sofa og vaknar þá frekar mun fyrr
en vanalega. Í mínum augum er
þetta afar aðdáunarvert því ég
sjálfur átti í miklum vandræðum
með þennan þátt á stórmótum.
Á þessum stórmótum ertu með
þjóðina á bakinu, væntingarnar
eru alltaf miklar og þú ert á leið
í mikilvæga leiki þar sem mikið
er undir. Við þær aðstæður hefði
maður kannski haldið að svefninn
væri eitt af því fyrsta til þess að
fara forgörðum hjá þjálfara eins
og Guðmundi sem vill hafa allt
upp á tíu hjá sínu liði en hann
reynir eftir fremsta megni að
halda svefninum góðum og vakna
frekar fyrr og halda áfram með
undirbúninginn. Ég held að þetta
sé mjög góð regla hjá honum, regla
sem hefur hjálpað honum að vera
lengur í þessu starfi landsliðs-
þjálfara.“
Þá passi Guðmundur líka vel
upp á sig.
„Hann hefur verið lengi í
þessum bransa, þetta er í þriðja
skiptið sem hann er með íslenska
landsliðið, hann kann þetta allt.
Hann passar upp á mataræðið,
svefninn og þetta er eitthvað sem
er dálítið dulið fyrir íslensku þjóð-
inni. Við vitum öll að Guðmundur
leggur mikið á sig í þessu starfi og
að vinnusemin hjá honum er upp
á tíu, en svo býr líka meira að baki
sem gerir hann að einum besta
þjálfara heims í dag.“
Þá sé Guðmundur mikill
húmoristi.
„Hann er mjög fyndinn og
skemmtilegur þegar sá gállinn er
á honum, bara mjög svo. Það er sú
hlið sem fólk áttar sig kannski ekki
á, hann á það til að grípa í þessa
eiginleika sína á stórmótum.“
Lærdómsríkur tími
En var Óskar Bjarni farinn að
læra inn á það hvernig best væri
að nálgast Guðmund og vera í
kringum hann á stórmótum, sér í
lagi eftir erfiða tapleiki?
„Við áttum mjög góðan tíma
saman ég, Guðmundur og Gunnar
Magnússon sem hefur náttúru-
lega starfað lengi með Guðmundi,
ásamt fleirum sem mynduðu þetta
landsliðsteymi.
Ég held að við höfum allir
kunnað ágætlega hver inn á annan.
Eftir tapleiki eru þjálfarar, bara
þvert yfir sviðið, í smá erfiðum
aðstæðum. Þarna myndast gluggi
þar sem maður þarf bara smá frið
til að átta sig á hlutunum.
En að vinna með Guðmundi
á stórmótum var bara mjög lær-
dómsríkt og gaman, að mínu mati
tel ég okkur hafa unnið mjög vel
saman sem teymi líkt og er raunin
nú með Guðmund, Gunnar og
Ágúst Jóhannsson.“
Íslenska landsliðið sé nú með
það í höndunum sem beðið hefur
verið eftir, svo þurfi annað að
spila inn í og sama gamla tuggan
varðandi spurningar um vörn og
markvörslu taki við. Þá leiki sjálfs-
traust stórt hlutverk. „Við erum
með mjög spennandi lið í hönd-
unum, lið sem getur gert góða hluti
á heimsmeistaramótinu.“ n
Húmoristinn Guðmundur og hans mörgu hliðar
Guðmundur Guðmundsson og Óskar Bjarni Óskarsson áttu afar farsælt samstarf á sínum tíma með íslenska landsliðið.
fréttablaðið/vilhelm
HM í beinni á Reykjavík SpoRtbaR
pool - píla - Foosball - boltinn í beinni
Léttöl
viking tilboð á barnum á meðan strákarnir okkar spila!
áFRaM íSLanD!
Hverfisgötu 40, 101 Rvk
10 kynningarblað 12. janúar 2023 FIMMTUDAGURHM í Handbolta 2023