Fréttablaðið - 12.01.2023, Síða 26
Væntingarnar til íslenska
landsliðsins á stórmótinu
eru miklar, margir láta sig
dreyma um verðlaunasæti
á HM og hér fer Logi Geirs-
son, fyrrverandi atvinnu- og
landsliðsmaður í handbolta,
yfir það hvaða eiginleikar
einkenna verðlaunalið, þau
bestu.
aron@frettabladid.is
Logi veit hvað þarf til svo hægt sé
að vinna stóra sigra á handbolta-
vellinum. Logi hefur unnið titla
með félagsliðum, unnið til verð-
launa með íslenska landsliðinu og
hér leggur hann línurnar.
„Þessi fjögur atriði eru þau allra
mikilvægustu og verða að vera til
staðar ætlir þú þér að ná árangri,“
segir Logi við Fréttablaðið. „Ég
sé ekkert því til fyrirstöðu, nema
okkur sjálfa, að við getum farið
alla leið í þessu móti.“
Trú
„Það sem einkennir sigurvegara
fyrst og fremst er trú þeirra á
verkefnið fram undan, trúin á að
geta staðið á toppnum. Trúin á að
geta eitthvað því þeir sem þora
þeir skora.
Að hafa trú á því að maður geti
unnið sigra skiptir alveg gríðarlega
miklu máli í þessu. Það eru mjög
margir sem komast í atvinnu-
mennsku og verða landsliðsmenn
en það er aðeins brotabrot af þeim
sem verður sigurvegarar.
Ég varð Evrópumeistari með
mínu félagsliði áður en ég kom inn
í landsliðið, var búinn að læra að
vinna, var með sigurvegurum í liði
og sá hvernig þeir hugsuðu. Það sem
er mikilvægast í því að ná árangri
er trú.“
Skýr markmið
Númer tvö í þessum efnum er að
allir einstaklingarnir sem mynda á
endanum lið séu með skýra mark-
miðasetningu.
„Fegurðin við markmiðasetningu
er þannig að um leið og þú hefur
sett þér markmið sem þú ætlar að
reyna að ná, þá ferðu að spyrja þig:
Hvað þarf ég að gera til þess að ná
þessum markmiðum? Það er þá
sem töfrarnir eiga sér stað.“
Jákvætt viðhorf
Jákvæðni og viðhorf eru hin full-
komna blanda að mati Loga.
„Þetta fann ég á eigin skinni bara
í gegnum Ólaf Stefánsson á mínum
landsliðsferli. Hann er sigursælasti
handboltamaður allra tíma að
mínu mati, sá besti sem hefur
spilað leikinn. Hann hafði unnið
nánast allt sem hægt var að vinna,
Meistaradeildina þar á meðal,
hann kenndi okkur í landsliðinu að
hugsa sem sigurvegarar.
Við breyttum því hvernig við töl-
uðum í landsliðinu, sögðum enga
neikvæða hluti. Við töluðum ekki
um að vera að eyða tíma saman á
hótelinu í landsliðsverkefnum, við
töluðum um að verja tíma saman.
Inni á vellinum kölluðum við aldrei
„Strákar! Engar tvær mínútur,“ það
var neikvætt, í stað þess sögðum við
„Halda sér inn á“.“
Jákvæða viðhorfið hafi verið
gegnumgangandi í landsliðsverk-
efnum, sama hvort um hafi verið
að ræða aðstæður utan eða innan
vallar.
„Þetta var í rútunni, þetta var á
hótelinu, æfingum og í leikjunum.
Óli Stef á heiðurinn af þessu, hann
breytti þessu á alveg magnaðan
hátt, maður upplifði stóra breyt-
ingu.“
Einbeiting á eigin getu /
skýr hlutverk
Á þeim tíma sem landsliðið var
hvað sigursælast segir Logi að leik-
menn liðsins hafi einblínt á sína
eigin getu og styrkleika.
„Hvað við gætum gert vel og
hugsuðum minna út í andstæðing-
inn, í hverju þeir væru góðir. Við
unnum í okkur sjálfum og hugs-
uðum miklu frekar hvað við værum
góðir og hvað andstæðingurinn
þyrfti að gera til þess að vinna
okkur. Við lærðum að vera stóra
liðið, það hefur oft vantað í landslið
Íslands.
Þegar svona sigurvegarar fara úr
liðinu líkt og gerðist með landsliðið
á sínum tíma þá þurfa bara nýir að
koma inn, það kemur nýr kúltúr
inn í liðið og þeir sem hafa náð
að vinna, leikmenn eins og Aron
Pálmarsson, þurfa að telja hinum
trú um að við getum þetta. Við
efldum liðsheildina á sínum tíma,
skilgreindum okkar hlutverk, allir
vissu sín hlutverk.“ n
Einkenni liða sem skara fram úr og vinna sigra
Logi Geirsson
gekk í gegnum
fordæma-
lausa tíma
með íslenska
landsliðinu þar
sem liðið vann
til verðlauna á
tveimur stór-
mótum. Hvað
þarf að ganga
upp svo slíkt
geti endurtekið
sig?
fréttablaðið/
vilhelm
Elfur Sif Sigurðardóttir, móðir Ýmis Arnar Gíslasonar
Hvernig var hann sem barn?
„Hann var nú svo sem bara
ósköp venjulegt barn, ljúfur og
góður.“
Sástu fljótt í hvað stefndi hjá
honum?
„Hann auðvitað byrjaði fyrst
að æfa fótbolta, eins og flestir,
það virðist bara vera lenskan
að handbolti er ekki það fyrsta
sem börnin reyna fyrir sér í. Hins
vegar óx þetta svolítið saman hjá
honum og lengi vel var hann á
fullu bæði í fótboltanum sem og
handboltanum líkt og jafnaldrar
hans.
Þeir voru allir mjög góðir í
liðinu hans og mynduðu saman
lið í báðum íþróttum. Þá var Ýmir
á sínum tíma hluti af Reykjavík-
urúrvalinu í fótboltanum.
Ýmir var mikið í íþróttum sem
barn og við fjölskyldan stund-
uðum að miklu leyti saman alls
konar útiveru og hreyfingu.
Fórum mikið í sund, vorum mikið
á skíðum þannig að þetta lá allt
rosalega vel fyrir honum.
Svo kom bara að þeim tíma-
punkti að hann þurfti að velja
hvaða íþrótt hann myndi helga
sig. Handboltinn varð fyrir valinu
og þar skipti miklu máli þjálfara-
teymið sem hann hafði hjá Val.
Það hvarflaði hins vegar ekki að
mér á þessum tíma að hann væri
efni í atvinnumann í handbolta
líkt og nú er orðin raunin. Þó svo
að eldri bróðir hans hafi verið
kominn út í atvinnumennskuna í
handbolta þegar Ýmir var orðinn
unglingur. En auðvitað átti hann
sér draum um það að gerast at-
vinnumaður en hvað eru síðan
margir sem komast áfram á það
stig?
Ég hugsaði ekkert út í það,
þannig lagað, að Ýmir yrði á end-
anum atvinnumaður.“
Voru einhverjar áberandi fyrir-
myndir hjá honum í æsku?
Eldri bróðir Ýmis, Orri Freyr
Gíslason, er níu árum eldri og var
kominn út í atvinnumennsku í
handbolta á unglingsárum Ýmis.
Hann reyndist honum mikil fyrir-
mynd. Þá á hann yngri bróður,
Tjörva Tý, sem er á mála hjá Val.
Einhvern veginn æxlaðist þetta
þannig að þeir hafa allir orðið
línumenn í handboltanum.“
Hvaða tilfinningar hellast yfir
þig á meðan hann spilar landsleik?
„Ég upplifi alveg óskaplega
mikið stolt þegar ég sé hann í
íslenska landsliðsbúningnum. Ég
treysti honum alveg fullkomlega
inni á vellinum, veit að hann gerir
alltaf sitt besta og er því róleg
að einhverju leyti á meðan á leik
stendur.“
Helstu kostir?
„Ýmir er bara þannig gerður að
hann hættir aldrei fyrr en hann er
bara orðinn bestur í því sem hann
tekur sér fyrir hendur. Hann klárar
öll sín verkefni með sóma. Reynir
eftir fremsta megni að standa við
gefin loforð og gera eins vel og
hann getur.“
MöMMustrákarnir okkar
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is.
Virka daga 10–17
Laugardaga 11-15
Hjarta heimilisins
Við hönnum innréttingar að þínum þörfum
2000 — 2022
12 kynningarblað 12. janúar 2023 FIMMTUDAGURHM í Handbolta 2023