Fréttablaðið - 12.01.2023, Side 30
Mitt mat er að þetta lið
er frábært og á eftir að
verða betra en við erum
sjötta til áttunda besta
liðið í dag. Sjötta sætið
er ekki ólíklegur árang-
ur. Ég held að verð-
launasætið sé ofmat.
Guðjón
Guðmundsson
Hjálmar Örn
Jóhannsson
hlaðvarpsstjarna
og skemmti-
kraftur
„Ísland mun fara
alla leið í úrslita-
leikinn, þetta
verður samt erfiðara en margir
halda en eins og allt sem þarf
að hafa fyrir verður árangurinn
sætari. Ég vil ekki segja hvernig úr-
slitaleikurinn fer en verð því miður
að spoila því og lokatölur verða
34–32 (Ísland vinnur). Stjarna
mótsins verður Árbæingurinn
hugljúfi með síða hárið, hann
Bjarki Már! Alltaf léttur og ljúfur
en í þessu móti munu engin bönd
halda honum nema hárbandið.“
Egill Ploder
útvarpsmaður
á FM957
„Við erum með
algjörlega
sturlað lið. Það
að vera að halda
niðri væntingum
er leiðinlegt take. Förum bara akk-
úrat í hina áttina og segjum að við
endum í topp 3! Ég ætla að segja
hægri vængur liðsins. Ómar Ingi og
Sigvaldi munu tengja vel saman.
Ómar endar sem MVP mótsins.“
Kristrún
Frostadóttir
formaður Sam-
fylkingarinnar og
þingmaður
„Ég held að liðinu
muni ganga mjög
vel. Við spilum
um verðlaun og ég spái því að liðið
lendi í 3. sæti. Ómar Ingi verður
stjarna mótsins, ekki spurning.“
Guðni Th.
Jóhannesson
forseti Íslands
„Strákunum
okkar mun ganga
afar vel. Ég er
viss um að þeir
komast áfram
úr upphafsriðlinum og eftir það
geta ævintýrin gerst. Í hverjum
leik verða einhverjar stjörnur sem
skína skærast en það er liðsheildin
sem skapar sigur og gott gengi.
Áfram Ísland!“
Elvar Geir
Magnús son
rit stjóri Fótbolti.
net
„Ég spái því að
Ísland verði
heimsmeistari
og stend við
það. Ég fer alla leið í því að vera of-
peppaður í væntingum fyrir mótið
(bið Gumma Gumm afsökunar).
Við getum keppt við þá bestu og
ef allt gengur upp hjá okkur, og
Covid-prófin verða okkur hagstæð,
getum við unnið þetta mót. Viktor
Gísli varð alvöru stjarna á síðasta
móti og hann verður okkar stjarna.
Sverrir Þór
Sverrisson
leikari
Við lendum í 3.
sæti og Ómar
Ingi heldur áfram
að vera stjarna
liðsins.
n Frægir spá
Íslenska karlalandsliðið í
handbolta hefur í kvöld leik
á heimsmeistaramótinu í
Póllandi og Svíþjóð. Þá mæta
strákarnir okkar Portúgal í
Kristianstad. Gríðarlega mikil
eftirvænting ríkir fyrir mót-
inu. Íslenska liðið freistar þess
að bæta besta árangur sinn í
sögunni, enda efniviðurinn
svo sannarlega til staðar.
helgifannar@frettabladid.is
handbolti Besti árangur á heims-
meistaramóti í sögu íslenska karla-
landsliðsins kom á HM í Japan árið
1997. Þá hafnaði Ísland í fimmta sæti
eftir sigur á Egyptum, þar sem leikið
var um sætið. Íþróttafréttamaðurinn
þrautreyndi Guðjón Guðmundsson,
gjarnan kallaður Gaupi, er einn sá
fremsti hér á landi þegar kemur að
handbolta. Hann man vel eftir mót-
inu í Japan 1997. Fréttablaðið leitaði
til hans og fékk hann til að bera
saman strákana okkar í dag og þá.
„Fyrst og síðast spilaði liðið góða
vörn og markvarslan var góð. Við
vorum með afbragðsskyttur eins og
Róbert Julian Duranona. Patrekur
Jóhannesson og fleiri voru að spila
mjög vel. Mikið af leikmönnunum
var á sínum besta degi í Japan. Það
gerði það að verkum að við náðum
þessum árangri,“ segir Gaupi um
landsliðið sem náði frábærum
árangri 1997 á HM í Japan.
Liðið 1997 kom á óvart
Það kom nokkuð á óvart að liðið þá
skyldi hafna í fimmta sæti.
„Það var enginn sem sá það í spil-
unum fyrir mót en það var samt
nokkur bjartsýni. Fimmta sætið þar
var frábært og liðið hefði getað náð
lengra með smá heppni.“
Ísland vann riðil sinn á HM 1997
og einnig einvígi sitt gegn Noregi í
16 liða úrslitum. Naumt tap gegn
Ungverjum beið hins vegar í átta
liða úrslitum, sem var svekkjandi úr
því sem komið var. „Það voru gríðar-
lega mikil vonbrigði með þetta hér
heima því liðið hafði spilað svo vel.
Það var frábært á mótinu og það var
innistæða til að fara ögn lengra. Það
bara tókst ekki.“
Þó að bjartsýnin hafi verið ein-
hver fyrir mótið í Japan er hún
mun meiri í dag, að sögn Gaupa.
Hann segir jafnvel of mikla bjart-
sýni ríkja fyrir mótinu í Póllandi
og Svíþjóð.
„Væntingarnar núna hafa farið
upp úr öllu valdi því fólk horfir á
verðlaunasæti á þessu móti, sem
vissulega er möguleiki. Mitt mat
er að þetta lið er frábært og á eftir
að verða betra en við erum sjötta
til áttunda besta liðið í dag. Sjötta
sætið er ekki ólíklegur árangur. Ég
held að verðlaunasætið sé ofmat.“
Allt öðruvísi lið
Þó svo að liðin 1997 og í dag séu
bæði mjög sterk er þó nokkur
munur á þeim.
„Þetta er allt öðruvísi lið í dag.
Liðið í dag er eitt besta gegnum-
brots-lið í heimi, það var ekki svo-
leiðis 1997. Í dag erum við með
þrjá menn sem eru á meðal bestu
handboltamanna í heimi, Gísla
Þorgeir (Kristjánsson), Bjarka Má
(Elísson) og Ómar Inga (Magnús-
son). Við höfðum það ekki 1997.
Að vísu tel ég að markvarslan hafi
verið betri þá en í dag, þó að Vikt-
or Gísli sé einn efnilegasti mark-
maður í heimi og Björgvin Páll
frábær.“
Gaupi segir að mikil samheldni
hafi einkennt liðið 1997. Hann sér
það einnig í liðinu í dag. Þó sér
Gaupi það ekki fara lengra en í átta
liða úrslit, þó að möguleikinn á að
ná enn betri árangri sé til staðar.
„Þetta mót er þannig að öll 8–10
bestu lið í heimi ætla sér í undan-
úrslit og að vera á meðal bestu liða.
Og allar þessar þjóðir eru með lið
sem geta farið alla leið.“
Erfiður riðill
Í riðli Íslands eru Portúgal, Ung-
verjaland og Suður-Kórea. Gaupi
telur ýmislegt þurfa að varast í
riðlinum. Hann hefur kynnt sér
liðin vel og segir ljóst að ekkert
fáist gefins á þessu fyrsta stigi
keppninnar.
„Portúgalar eru með betra lið en
þeir voru með á síðasta ári, þegar
við unnum þá með fjórum mörk-
um á EM,“ segir hann, en Ísland
vann Portúgal í riðlakeppni Evr-
ópumótsins í Ungverjalandi í fyrra.
Íslenska liðið var einnig í riðli
með heimamönnum, Ungverjum,
á mótinu og vann nauman eins
marks sigur. Gaupi bendir á að
Ungverjar mæti til leiks með sterkt
lið á f lestöll stórmót.
„Ungverjar eru á pari við það
sem þeir voru á heimavelli á síð-
asta ári. Nú er pressan mun meiri
á þeim. Ef við skoðum söguna hafa
Ungverjar nánast undantekninga-
lítið verið með lið sem er á meðal
átta bestu á heimsmeistaramóti.“
Að lokum kemur Gaupi með sína
spá fyrir HM í Póllandi og Svíþjóð.
„Ég spái íslenska liðinu sjötta
sæti. Komist liðið í undanúrslit tel
ég að fjórða sætið verði niðurstað-
an, við munum ekki vinna verð-
laun,“ segir Guðjón Guðmundsson.
Leikur Íslands og Portúgal hefst
klukkan 19.30 í kvöld að íslensk-
um tíma. Á laugardag mætir
liðið svo Ungverjum í öðrum leik
sínum. Loks verður Suður-Kórea
andstæðingur strákanna okkar
næstkomandi mánudag. A llir
leikir riðlakeppninnar fara fram í
Kristianstad í Svíþjóð. n
Gætu bætt besta árangur sögunnar
Besti árangurinn 5. sæti:
Íslenska karlalandsliðið tók
fyrst þátt á heimsmeistara-
móti árið 1958. Þá var það
haldið í Austur-Þýskalandi.
Síðan þá hefur liðið nokkrum
sinnum náð markverðum
árangri.
Sá besti kom á HM í Japan
árið 1997. Þá hafnaði liðið
í fimmta sæti eftir að hafa
verið slegið út í átta liða
úrslitum.
Ísland hefur þá þrisvar
sinnum hafnað í sjötta sæti.
Fyrst árið 1961 í Vestur-Þýska-
landi í tólf liða móti. 1986
náði íslenska liðið svo sjötta
sæti á ný, þá í Sviss á sextán
liða móti. Aftur hafnaði liðið
í sjötta sæti á HM í Svíþjóð
2011. Í þeirri keppni voru 24
lið mætt til leiks, átta færri
en þau eru nú. Fimmti besti
árangur Íslands kom á HM í
Portúgal 2003. Þá lauk liðið
leik í sjöunda sæti.
Íslenska landsliðið hefur leik á heimsmeistaramótinu í handbolta í dag, miklar væntingar eru gerðar til liðsins. FréTTablaðið/GETTy
14 Íþróttir 12. janúar 2023 FIMMTUDAGURÍþRóTTIR Fréttablaðið 12. janúar 2023 FIMMTUDAGUR