Fréttablaðið - 12.01.2023, Síða 35
Þetta var
Mamma
Mia! síns
tíma.
Hjörtur Jóhann
Jónsson
Og þegar ég gekk út í
haustsólina leið mér
eins og til væri sirkús
og mögulegt væri að
strjúka með honum.
Hjörtur Jóhann Jónsson og
Sólveig Arnarsdóttir fara með
aðalhlutverkin í uppsetningu
Borgarleikhússins á Macbeth
eftir William Shakespeare.
Þau segja hlutverk hinna
morðóðu skosku konungs-
hjóna hafa heltekið þau í
æfingaferlinu.
Macbeth eftir William Shakespeare
er hátíðarsýning Borgarleikhúss-
ins 2023. Leikstjóri verksins er hin
litáíska Ursule Barto sem er rísandi
stjarna í leikhúsheimi Evrópu og
kemur með nýja og ferska nálgun
að þessu burðarverki leikhúsbók-
mentanna.
Sólveig: „Þetta er ekki bara per-
sónuleg saga Macbeth-hjónanna
eða að þau séu svona ótrúlega vond
heldur búa þau í heimi sem gerir
þeim þetta kleift og styður þau í
þeirra illgjörðum. Maður finnur
mjög fyrir því hjá Ursule, af því við
hittumst og töluðum saman fyrir
innrás Rússa í Úkraínu og svo eftir,
að það varð breyting á áherslum.
Pútín er ekki bara einn að ráðast
inn í Úkraínu, heimurinn sem hann
kemur úr styður það.“
Hjörtur: „Það er mjög áhuga-
vert að eiga í samtali um ástandið
í Evrópu og heiminum í dag við
manneskju frá Litáen sem hefur
náttúrlega verið með Rússland í
bakgarðinum alla sína sögu. Meira
að segja er 13. janúar, frumsýningar-
dagurinn okkar, blóðugur dagur
í sögu Litáen eftir að þau lýsa yfir
sjálfstæði frá Sovétríkjunum og eiga
í blóðugri baráttu við sovéska her-
inn. Heimurinn í Macbeth er í lykil-
hlutverki, myndi ég segja. Þetta er
heimur þar sem það er búið að opna
dyrnar fyrir of beldi og mannhatri
sem er stærra og meira en endilega
bara persónulegur vilji hvers og
eins. Þetta er einhvers konar vírus
úr heift og ofbeldi sem breiðir úr sér
og enginn sleppur undan.“
Ekki venjulegar manneskjur
Macbeth er eitt þekktasta verk
Williams Shakespeare og segir frá
því þegar líf ungs hermanns gjör-
breytist eftir að hann heyrir spá-
dóm þriggja norna um að hann
muni verða konungur Skotlands.
Verkið fjallar um sjúka valdabaráttu
og það hvernig metnaðargirni getur
umturnast í harðstjórn.
Sólveig: „Það sem ég held að sé
líka mikilvægt og mér finnst áhuga-
vert sem nálgun að Shakespeare, er
að þegar þú ert að fást við persónur
eins og Macbeth-hjónin eru þetta
ekki bara venjulegar manneskjur
með venjulegan sálfræðilegan boga
í sínu lífi. Allar þessar persónur
Shakespeares eru á miklu stærri
skala, þetta eru næstum því goð-
sagnakenndar persónur. Þú getur
ekki njörvað þær niður í okkar
hversdagslega, sálfræðiþenkjandi
líf.“
Á Shakespeare alltaf jafn mikið
erindi, er Macbeth kannski bara
samtímaverk?
Hjörtur: „Mér finnst það. Ég held
að það sé þessi klisja sem er bara
Sólveig og
Hjörtur urðu
heltekin af
konungshjón-
unum morðóðu.
Fréttablaðið/
Ernir
Heltekin af
Macbeth
ragnar Helgi
Ólafsson
rithöfundur og
listamaður, segir
frá listinni sem
breytti lífi hans.
„Hvert sem
er, svo lengi
sem það er utan
þessa heims,“
er ákall sálarinnar samkvæmt
Baudelaire. Einstök listaverk færa
mann stundum þangað: Rétt út
fyrir heiminn – oftast reyndar
með því að opna hurð inn í her-
bergi sem einmitt leynist í líkama
manns sjálfs en maður hafði fram
að því ekki hugmynd um að væri
til.
Nýlega varð ég fyrir slíkri
reynslu þegar ég rambaði inn í
litla kirkju í Róm og stóð óundir-
búinn frammi fyrir Alsælu Teresu
frá Avíla eftir Berníní. Seinna sama
dag skoðaði ég Hina blessuðu
Lúdóviku Albertóní. Ég þurfti að
fara heim að leggja mig eftir það.
Verk Berninis eru engum lík en
þessi tvö eru í öðru herbergi, þar
sem snerting guðdómsins verður
að marmarakenndri líkamlegri
alsælu. Uppljómun.
Hljómplatan Astral Weeks
magnar ólíkan seið. Hún var að
miklu leyti spunnin í hljóðverinu
á meðan segulbandið rúllaði og er
einhverskonar höggmynd af list-
rænu frelsi eða bara frelsi: Söngur
Vans Morrisons og bassaleikur
Richards Davis eru enda örugglega
á astralsviðinu.
Píanóverkið Für Aline eftir
Arvo Pärt hafði svipuð áhrif á mig
þegar ég heyrði það fyrst, eða nei,
reyndar eiginlega alltaf þegar ég
heyri það: Nýtt herbergi en öfugt
við mörg hinna er það afar stórt
og í því er ekki nokkur hlutur; alveg
öfugt við herbergið sem bókin Í
verum eftir Theódór Friðriksson
lauk upp fyrir mér, en það var afar
þröng kompa, moldug og sagga-
full, en afar mikilvæg.
Á morgun mun ég muna eftir
öðrum listaverkum en í dag þá er
elsta dæmið um svona upplifun
sem hrekkur upp í vitundina frá
haustinu 1987 þegar ég læddist
inn sýningu á kvikmyndahá-
tíð í Laugarásbíói. Ég var 15 eða
16 ára. Leið eins og snjóbolta
í helvíti undir heitum stjörnu-
ljósunum í loftinu, umkringdur
svölum menningarvitum. Á
endanum lækkuðu ljósin. Myndin
var Strokufangarnir, eða Down By
Law, eftir Jim Jarmusch; Chaplin
okkar daga, Roberto Benigni í
aðalhlutverki ásamt Tom Waits
sem einnig gerði tónlistina. Þar
opnaðist hurð. Og þegar ég gekk
út í haustsólina leið mér eins og
til væri sirkús og mögulegt væri
að strjúka með honum – eitthvað
burt, hvert sem er út úr þessum
hversdagslega heimi. n
n Listin sem breytti lífi mínu
klisja af því hún er sönn, að það eru
svo sterkir sammannlegir eiginleik-
ar í öllum þessum verkum sem gera
það að verkum að það er alltaf hægt
að finna leiðir til að stinga þeim í
samband við nútímann.“
Fasismi og ofbeldismenning
Macbeth var fyrst sett á svið fyrir
meira en 400 árum síðan og hefur
verið sett upp á alla mögulega vegu
um allan heim. Hjörtur segir þó
alltaf vera hægt að finna nýja f leti
á verkinu eftir því hvað er í gangi í
heiminum hverju sinni.
Hjörtur: „Það er mjög merkilegt
að skoða þetta verk í gegnum linsu
stríðs í Evrópu og þessa mikla upp-
gangs öfgahægristefnu. Það eru
fasistahreyfingar að poppa inn í
ríkisstjórnir alls konar Evrópu-
þjóða og úti um allan heim. Talandi
um ofbeldismenningu þá er fasismi
nánast ekkert nema það og þá ein-
hvern veginn finnst manni það
mjög brýnt og viðeigandi að skoða
þetta verk í því samhengi.“
Sólveig segir lykilinn að því að
túlka persónur Shakespeares vera
að læra textann vel, leyfa honum
að standa óbreyttum og láta hann
verða hluta af leikaranum.
Sólveig: „Textinn einn og sér er
ástæðan fyrir því að við erum ennþá
að leika Shakespeare 400 árum
síðar, hann er svo ríkur, sterkur og
stór og myndirnar eru svo stórkost-
legar. Ég held að það sé mjög mikil-
vægt að fara ekki með einhverja
nútíma sálfræðigreiningu inn í
þessar persónur, ég held að þú eigin-
lega drepir þær með því.“
Bölvun Macbeths
Ýmsar sögusagnir tengjast leikritinu
Macbeth, þar á meðal sú hjátrú að
leikarar megi ekki segja nafn verks-
ins upphátt, ellegar hljóti þeir verra
af. Það hefur því fengið á sig ýmis
gælunöfn á borð við „skoska leik-
ritið“.
Sólveig: „Ég heyrði ótrúlega
skemmtilega sögu um að þetta komi
til vegna þess að þegar Macbeth var
sýndur þá elskaði fólk þetta verk og
flykktist í leikhúsin. Þetta var alltaf
öruggur hittari, bara eins og að setja
upp góðan söngleik á Íslandi.“
Hjörtur: „Þetta var Mamma Mia!
síns tíma.“
Sólveig: „Já, í gamla daga, á
tímum Shakespeares, þá voru
gríðarlega mörg lítil leikhús sem
voru einkarekin í London og með
styrktaraðila eins og við erum með í
dag. Ef leikhúsin voru farin að ganga
illa þá var yfirleitt ákveðið að setja
Macbeth á dagskrá en það mátti
samt ekki kvisast út fyrir fram að
það ætti að fara að sýna verkið því
þá hefðu styrktaraðilarnir fattað
að það væri farið að ganga illa og
dregið peningana sína til baka. Svo
var bara frumsýnt, leikhúsið fylltist
og búið að bjarga fjárhagnum.“
Að sögn Sólveigar er búið að vera
óvenjulega mikið um slys, veikindi
og óhöpp í æfingaferlinu. Hjörtur
bætir því þó við að honum hafi
verið mikið í mun að detta ekki í
hjátrúna og hafi því lagt sig fram
við að segja nafn sýningarinnar sem
oftast strax þegar æfingatímabilið
hófst.
Ekki mönnum sinnandi
Þetta er í fyrsta sinn á ferli beggja
sem Hjörtur og Sólveig leika í Mac-
beth. Þau segja að fá önnur hlut-
verk heltaki leikara jafn mikið og
hlutverk hinna morðóðu skosku
konungshjóna.
Sólveig: „Ég hef eiginlega aldr-
ei verið jafn heltekin af nokkrum
karakter eða persónu eins og Lafði
Macbeth. Ég er varla mönnum sinn-
andi utan æfinga. Yfirleitt hristi ég
þetta bara tiltölulega vel af mér og
fer svo í Bónus og tek úr vél eins
og venjulegt fólk. Ég verð að segja
að mér finnst núna þetta leikrit og
þessi lafði fylgja mér ansi mikið í
gegnum hvunndaginn.“
Hjörtur: „Ég segi það sama,
maður er alveg eins og bjáni þegar
maður er ekki hér. Ég skil allar
mínar heilasellur eftir hér hjá Mac-
beth og í Skotlandi. Sem er auðvitað
mjög gaman en ekki kannski fyrir
maka manns og fjölskyldu.“ n
Þorvaldur S.
Helgason
tsh
@frettabladid.is
FIMMTUDAGUR 12. janúar 2023 Menning 19FréttabLaðið