Fréttablaðið - 12.01.2023, Page 36
Jakkinn talar
Samninganefnd Eflingar hefur ekki látið sjá sig í neinu öðru en bomber-jökkum síðastliðnar vikur, svo athygli vekur. Fréttablaðið/Ernir
Nýr einkennisklæðnaður samninganefndar
verkalýðsfélagsins Eflingar, hinn glæsilegi
bomber-jakki, hefur vakið verðskuldaða
athygli. Það er ekki að ástæðulausu sem þessi
fatnaður varð fyrir valinu enda sendir enginn
klæðnaður eins sterk skilaboð og jakkar. Hér
eru nokkrir af þekktustu jökkum allra tíma.
odduraevar@frettabladid.is
Hells Angels
Um árabil hafa meðlimir þessara þekktustu glæpa-
klíku í heimi reglulega verið reknir af landi brott, nú
síðast í nóvember. Sennilega eiga fá samtök eins vel
þekkta leðurjakka og hinar ýmsu undirdeildir Hells
Angels um allan heim.
Kalli Bjarni
Úr því að
Idolið er
byrjað aftur
af fullum krafti
er ekki úr vegi
að minna á
einn þekktasta
jakka landsins.
Jakkann sem Kalli
Bjarni skartaði þegar
hann vann fyrsta Idolið
árið 2004. Jakkinn fór á
Hard Rock en glataðist
svo í mörg ár þar til Kalli
Bjarni sjálfur hafði upp á
honum aftur.
Hvernig líst þér á
Eflingarjakkana?
Gummi kíró
„Það fyrsta sem
ég hugsaði um
þegar ég sá þessa
jakka er kannski
þetta yfirbragð
sem þau hafa
þegar þau eru öll
mætt í þessum
svarta bomber-
jakka. Þau eru svolítið eins og
hættulegt mótorhjólagengi sem
maður er pínu hræddur við.
Varðandi jakkann sjálfan er
svartur bomber-jakki auðvitað
klassísk flík. Ef þau væru kannski
meira brosandi og gæfu frá sér
meiri ást og kærleika í fasi væri
kannski meiri jákvæðni yfir
klæðnaðinum og þá kæmi það
kannski betur út á þann háttinn í
fjölmiðlum.
Ég sjálfur hefði valið svona
vínrauða bomber-jakka í aðeins
meira oversized sniði. Þá hefði
verið hlýrra viðmót frá þeim og
þau hefðu verið í dúndrandi nú-
tímatísku, þar sem bæði vínrauð-
ur og pínu oversized bomber-jakki
er bara sjóðandi heitt akkúrat
núna.
Yfir heildina finnst mér þetta
uppátæki samt bara frekar töff og
gerir það sem gera skyldi, vekja at-
hygli og það er oft það sem tíska
gerir. Ég er mjög hrifinn af þessu
þótt það megi kannski laga þetta
fúla yfirbragð sem er oft svona
hjá þessu yndislega fólki að öðru
leyti og ég styð þeirra baráttu að
sjálfsögðu.“
Bomberinn klassísk flík sem vekur athygli
Tweedjakki Raggi Bjarna
Það er ekki hægt að nefna jakka án þess að hugsa til
konungsins sjálfs, söngvarans Ragnars Bjarnasonar.
Hann söng enda í áraraðir um flottan jakka, tvít tvít.
Masters-jakkinn
Líklega frægasti jakki
íþróttaheimsins og þótt
víðar væri leitað. Einungis
sigurvegarar Masters-móta-
raðarinnar fá græna Mast-
ers-jakkann og fá hann til
varðveislu í eitt ár þar til þeir
þurfa að skila
honum.
n Sérfræðingurinn
Indiana Jones
Harrison Ford átti líklega besta
hlutann á sínum ferli á níunda
áratugnum. Þá sló hann í gegn
í Star Wars og blés svo lífi í
þekktasta fornleifafræðing
veraldar, sjálfan Indiana Jones.
Jones væri ekkert án síns brúna
leðurjakka sem er eins nauð-
synlegur hluti af búningnum og
hatturinn frægi.
böðvar Þór
Eggertsson
hársnyrtimeistari
„Þetta er svaka-
leg innkoma hjá
Eflingargenginu
í nýju jökkunum
sínum,“ segir
Böðvar og skelli-
hlær. „Þegar ég
sá þetta i fréttunum þá var það
fyrsta sem kom upp i huga minn
myndin Wild Hogs með John
Travolta og fleirum góðum þegar
þeir dustuðu rykið af gömlum
klíkujökkum og fóru að ferðast
um.
En mér finnst jakkarnir alveg
töff og mundi sjálfur ganga i
svona jakka, en kannski ekki
með þessum hætti. Þetta minnir
óneitanlega meira á klíku eða
mótorhjólagengi frekar en samn-
inganefnd stéttarfélags. Merkið á
bakinu sá um það.
En það verður seint tekið af
þeim að þetta var innkoma sem
vakti athygli og það er örugglega
partur af þessu, og Eflingardrottn-
ingin virðist vera í vígahug.“ n
Grease
Hvort sem það eru rosalegir T-
Birds-leðurjakkar John Travolta
og félaga eða bleikir Pink Ladies
jakkar Oliviu Newton-John og vin-
kvenna, þá er augljóst að það eru
fáir jakkar eins þekktir og Grease-
jakkarnir úr samnefndri söngva-
mynd frá 1978.
20 Lífið 12. janúar 2023 FIMMTUDAGURFréttaBlaðiðLíFIð FréttaBlaðið 12. janúar 2023 FIMMTUDAGUR