Fréttablaðið - 12.01.2023, Side 40
frettabladid.is
550 5000
RitstjóRn ritstjorn@frettabladid.is
AuglýsingAdeild auglysingar@frettabladid.is
PRentun & dReifing Torg ehf.
2022 - 2025
Ég keypti mér einu sinni nokkrar
hugleiðslur sem ég hlustaði
mikið á. Ein þeirra fjallaði um
bónda sem lenti í alls konar
veseni. Fólk í kringum hann
kepptist við að segja honum að
þetta og hitt sem gerðist væri
ýmist alveg frábært eða mjög
hræðilegt. En hann sagði alltaf
bara rólegur: „Við skulum sjá
hvernig þessu fram vindur.“ Og
svo kom á daginn að ýmislegt
sem fólk hélt að væri hræðilegt,
reyndist frábært og öfugt. Þannig
gekk þetta í hringi á meðan hann
var alltaf rólegur bara, sama á
hverju gekk.
„Maður veit ekki alltaf hvað
er best fyrir mann.“ Þetta sagði
víst langamma mín alltaf. Því
er mun auðveldara og jafnvel
heilbrigðara fyrir mann að reyna
að treysta því að allt sé eins og
það eigi að vera og reyna að trúa
því að það komi eitthvað gott út
úr þeim hindrunum eða uppá-
komum sem á vegi manns verða.
Að það sé einhver tilgangur með
þeim svo maður hvíli betur í
sátt innan í sér, þegar lífið er að
gerast allt í kringum mann. Mjög
oft þvert á þau plön sem maður
hafði gert.
Þetta er auðvitað mjög erfitt
og krefst bæði æðruleysis og hug-
rekkis en það er líka mjög lýjandi
andlega að reyna að stjórna öllu
og öllum daginn út og inn. Eða
vera stöðugt að streitast á móti.
Það getur skapað mikla tog-
streitu, innri ófrið, áhyggjur og
átök.
Ég er ekki búin að ná tökum
á þessu en held áfram að reyna.
Það er ákveðið frelsi fólgið í því
að leggja stundum árar í bát,
leggjast jafnvel út af og leyfa sér
að f ljóta og njóta útsýnisins án
þess að dæma eða hugsa stöðugt
tíu leiki fram í tímann. n
Að treysta
Ebbu Guðnýjar
Guðmundsdóttur
n Bakþankar
Sparaðu tímann
og gerðu einfaldari
innkaup á netto.is
ÚTSÖLU
MARKAÐUR
Komdu og gramsaðu
20-50% AF
VÖLDUM
VÖRUM
50% JÓLAVÖRUR 30-50% LEIKFÖNG
30% PLASTBOX 25% INNIMÁLNING,
PARKET, FLÍSAR, GROHE OG
DAMIXA BLÖNDUNARTÆKI
20% VERKFÆRABOX, JÁRNHILLUR,
ÖRYGGISSKÓR
B
ir
t m
eð
fy
ri
rv
ar
a
um
p
re
nt
vi
ll
ur
o
g/
eð
a
m
yn
da
br
en
gl
.
ÍÞRÓTTAVIKAN
MEÐ BENNA BÓ
FÖSTUDAGA KL. 21.00