Rökkur - 01.06.1946, Síða 3
~Axgl JJlioríteiníon:
S P □ R I SANDI.
-LEIKRIT I 4 PATTUM-
III. ÞÁTTUR.
(Laugardagskveld á búgarði
Helga Goodmundssonar, nokk-
Urum vikum seinna, í uppskeru-
lok, þegar „farfuglarnir“ eru á
förum. Borðstofa, milli setu-
stofunnar, sem II. þáttur gerð-
ist í, og eldhúss, lítils lierberg-
is og bakinngangs, og veit sá
hluti hússins (þ. e. bakhliðin)
að gripahúsi og hlöðu. Á borð-
stofunni, sem er stór og nær
þvert yfi r húsið, eru tveir út-
Veggir, og eru tveir gluggar á
hvorúm. Til hægri, gegnt á-
horfendum eru dyr, sem gengið
er um úr eldhúsi. Aftast við
Hdhúsið er skúr, bakinngangur,
og er gengið úr honum í eld-
hús og í honum er stigi upp á
loftið. Eru svefnherbergin uppi
á lofti í húsinu. Til hægri, gegnt
ahorfendum eru aðrar dyr á
htlu herbergi, sem oft er notað
handa gestum. — Engin tjöld
hafa verið dregin fyrir glugg-
ana, þótt búið sé að kveikja. I
neðri römmum glugganna, en i
stofunni eru rennigluggar
(sash windows), eru vírnet, til
þess að loftsvali geti leikið um
stofuna án þess að skorkvikindi
komist inn í hana. Stofan er
litlu skrauti búin. Þar eru að
eins nokkurar myndir á veggj-
um, m. a. ein mynd af Jóni
iSigurðssyni. Veggalmanak
stórt, hangir rétt hjá talsíman-
um, og rétt hjá honum, undir
glugga stendur gamalt skrif-
borð. Stórt borðstofuborð á
miðju gólfi og nokkurir stól-
ar. — Dyrnar út í eldhúsið eru
opnar, þegar tjaldið er dregið
upp. Heyrist þar glöggt manna-
mál og að verið er að störfum,
einnig að gengið er allharka-
lega niður stiga af rishæð húss-
ins, niður í inngönguskúrinn,
4