Rökkur - 01.06.1946, Page 9

Rökkur - 01.06.1946, Page 9
R ö K K U R 55 veit, að það fer vel fyrir hon- uin um það er Iýkur. Það hlýt- ur að fara vel. Það er svo mik- ið gott í honum, Helgi, við verðum að afmá fingraför hins illa af sál hans. Það er allt und- ir okkur komið. HELGI: Þín vegna skal eg láta kyrrt liggja að sinni. Héðan af verður livort eð er að reyna — gera þessa síðustu tilraun. Við liöfum gert allt, sem í okk- ar valdi stóð, en það bar engan árangur. (Hallar sér aftur í stólnum.): Eg mælti í gremju áðan, Helga, en gremja mín er i'éttmæt. Láttu þér samt ekki detta í liug, að mér þyki ekki Vænt um hann lengur. Þegar Riann tekur sárast til einhvers finnur maður bezt livað ástin getur átt sér djúpar rætur —■ bá er eins og maður verði þess var, að þær hafa teygt angana svo djúpt, að enginn mannleg- úr máttur fái slitið þá upp. —- flugur minn leitar oft til hins Hðna — til löngu liðinna daga, tegar hann fylgdi mér eftir, féttur í spori, hvert sem hann fór, spyrjandi um alla hluti. ^tundum minnist eg þess, er Hann lagði liendur sínar um háls mér, út úr þreyttur, fullur H'austs og elsku, og eg lagði Hann til hvíldar. Eg minnist tass líka, er hann fór að starfa V|ð hlið mér. Hann var glaður, vinnufús. Hann, hugsaði eg, er bóndaefni. Hann tekur við af mér, þegar eg er orðinn gamall og þreyttur, heldur áfram, þar sem eg hætti, þar sem eg braut land fyrstur manna heldur hann áfram starfi mínu. —- Það var allt erfitt, mikið strit, margt, sem þurfti að sigra. Voru þá öll þessi erfiðleikaspor til einsk- is? (Stendur upp, og er auð- séð, að honum er mikið í hug.): Vei styrjöldum, vei öllum þeim, sem knýja börnin okkar niður i eymd og spillingu og bölvun. (Sest. Hylur andlitið í höndum sér). HELGA. (Gengur til lians og styður hönd á öxl hans): Við erum orðin gömul, Helgi, of gömul til þess að missa trúna á þá, sem okkur þykir vænt um. Við skulum halda í hana dauða- haldi, því að hún er það, sem lífshamingja okkar byggist á að miklu leyti. (Hlustar): Nú er komin nótt og allt er kyrrt. Nýr dagur er að nálgast. Kann- ske hann færi nýjar vonir. Farðu nú að hátta vinur minn, — þú ert þreyttur. HELGI. (Tekur hönd henn- ar): Kemur þú ekki? HELGA. (Hristir höfuðið): Eg ætla að bíða og vaka og láta ljósið loga. Það má ekki slokkna í nótt.

x

Rökkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.