Rökkur - 01.06.1946, Blaðsíða 12

Rökkur - 01.06.1946, Blaðsíða 12
58 R Ö K K U R SIGRÚN: Eg veit ekkert nema það, að Ása kom með mér, hikandi í fyrstu, en hún kom. Hvernig sem í öllu liggur stendur henni ekki á sama um hann. Hún hefir sýnilega margt reynt og hún á aðdáanlegt þrek — en allt á sín takmörk. HELGA. (Kinkar kolli): Hún er nú af góðum stofni. SIGRÚN: Eitt herbergi, mamma, lítið og fátæklegt. Það var heimilið. HELGA: Á hverju hefir hún lifað, vesalingur? SIGRÚN: Verksmiðjuvinnu, — stopulli skildist mér. Morg- un og kveldstundirnar einar gat hún gefið sig að telpunni, á vinnudögum. Fólkið, sem hún leigir hjá, mun hafa haft eitt- hvert eftirlit með henni. Þegar hún var að heiman. Mér skild- ist, að stundum hefði komið erfiðir kaflar, atvinnuleysis og veikinda, þegar stundum var eins og öll sund væri að lok- ast. — Ömurlegt, framtíðar- laust líf, finnst mér það, að lifa þannig árum saman í stór- borgarhverfi, fyrir stúlku eins og Ásu, sem er alin upp við vindsvala og sól sléttunnar. (Gengur að einum gluggan- um). Guði sé lof, að eg er komin heim — að við erum komnar heim. Eg gat varla dregið andann í Milwaukee. (Ása kemur inn). ÁSA: Hún sofnaði fljótt — um leið og liún hallaði höfðinu á svæfilinn. HELGA: Þú ert víst þreytt líka, Ása mín, og ættir nú að ganga til hvílu. ÁSA: Já, eg er kannske dá- lítið þrejdt. (Sezt. Horfir út um glugga). Eg vildi helzt af öllu fara út í hólana og bíða þar og sjá sólina koma upp yf- ir sléttuna mína, finna morgun- svalann leika um mig og sól- ina verma mig. HELGA: Þú hefir átt erfitt, Ása! ÁSA: Það eiga svo margir erfitt og eg er bara ein af þeim. Það er eins og eg hafi ráfað í auðn, án þess að vita hvert eg var að fara, og án þess að geta snúið aftur, því að alltaf fauk í sporin og huldi þau. — Það er dásamlegt að vera komin heim, í kyrrðina og fámennið. Eg' veit ekki hvernig það var, en þegar eg fór að nálgast hól- ana í sveitinni minni, fór eins og hlýr straumur um kaldan hugann og mér skildist þá til hlítar, að eg var á heimleið og að það væri fyrir beztu, hvern- ig sem allt velktist, — það hlyti að verða gott að koma heim. Það er gott. Eg hefði aldrei átt að fara. (Klökkva kennir sem snöggvast i rödd hennar, en

x

Rökkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.