Rökkur - 01.12.1949, Qupperneq 29
RÖKKUR
141
Merkileg aðferð.
Bandaríkjamenn hafa
fundið aðra aðferð til þess
að vinna gas úr óunnum kol-
um. Eru þá boraðar holur
niður í kolalögin og raf-
magni hleypt í kolin með
sérstökum tækjum. Kolin
hitna við þetta, og taka að
brenna og myndast þá gas,
sem streymir upp um bor-
holurnar. Þegar kolin eru
byrjuð að brenna, er raf-
magnsstraumurinn rofinn
og byrjað að dæla súrefni
ofan í kolalögin til þess að
halda brunanum áfram. Gas
það, sem upp kemur með
þessari aðferð, má bæði nota
til framleiðslu á benzíni og
til hitunar.
Bretar vænta þess, að til-
raunir þær, sem nú eru um
það bil að hefjast hjá þeim,
verði þeim mikil lyftistöng,
því að segja má að líf þjóð-
arinnar byggist að miklu
leyti á kolum þeim, sem í
jörðu eru 1 landi hennar.
— Maiur —
Rökkur hefir oft flutt matar-
uppskriftir og hafa þær venju-
lega verið ætlaðar handa fjór-
um nema annars hafi verið get-
ið.
Hér eru uppskriftir handa
tveimur — hentugar fyrir ung
hjón eða tvær konur, sem búa
saman. Mataruppskriftir í mat-
reiðslubókum eru oftast gerðar
fyrir stærri heimili og er þá
stundum erfitt að áætla, eftir
því, hvað þurfi fyrir tvo. —
En þessar uppskriftir eru vel
úti látnar svo að ekki verður
hörgull á, þó að óvæntur gestur
komi að borðinu og borði með.
MATUR HANDA TVEIMUR.
Kakaósúpa.
I dl. vatn (eða vel það).
1 1. mjólk.
3—4 matsk. sykur.
2 matsk. kakao.
2—3 matsk. kartöflumjöl.
Kakao er hrært út [ vatninu
(og hrærist betur ef vatnið er
heitt). DálítiS af mjólk er tekið
frá en hitt sett á hita og suðan
látin koma upp. Þá er kakaóið
hrært út og hrært vel í. Kart-
öflumjöliö er hrært út í mjólk-
inni, sem tekin var frá og er
síðan látið út í súpuna. Suðan