Rökkur - 01.12.1949, Blaðsíða 36
148
RÖKKUR
Flugvélin var með þyngsta
farm, sem nokkurn tíma
hafði verið settur í vél af
þeirri gerð. Hún vóg talsvert
yfir 65 smál., sem er há-
marksþyngd. Og þegar við
brunuðum eftir flugbraut-
inni bjóst eg satt að segja
við, að við kæmumst aldrei
á loft. En þótt undarlegt
mætti virðast komumst við á
loft klaklaust, en ekki mátti
miklu muna.
Við héldum niðri í okkur
andanum af ótta við að eitt-
hvað óvænt kæmi fyrir. Við
flugum ennþá mjög lágt og
höfðum ekki náð nægilegum
hraða til þess að hækka
okkur. En flugvélin jók
hraðann smám saman og
eftir nokkurar sek. vorum
við úr allri hættu, — í bili.
En við vorum alhr gegnvotir
af svita, svo mikið tók þetta
á okkur.
Við hækkuðum flugið
smám saman og eftir nokkra
stund vorum við komnir í
örugga hæð og flugum eins
og leið liggur austur yfir
Texas í áttina að Mississippi.
Við höfðum komið fyrir tré-
borði rétt við efra skotturn-
inn. Tveir menn sváfu á þessu
borði, en undir því hafði mat-
vælum okkar, — niðursoðn-
ums — verig komið fyrir.
Tveir eða þrír
við hvert starf.
Fyrir aftan þetta borð. yf-
ir sprengjuhlerunum, sem
eru 30 fet á lengd, voru svefn-
bálkar fyrir 9 af 14 manna
áhöfn, en aðeins tveir sváfu
þar i einu. Þrír menn sváfu
fyrir aftan þetta rúm. Þetta
var svo sem ágætt, en þegar
einhver okkar þurfti að kom-
ast í baðherbergið, varð hann
að brölta yfir nokkra sofandi
menn. Og þegar siglingafræð-
ingarnir þurftu að taka sól-
arhæðina, stóðu þeir venju-
lega á hálsi eða á einhverjum
öðrum hluta af líkama félaga
sinna, sem sváfu þar undir.
Og þar sem við nöfðum tvo
eða þrjá menn til þess að
vinna hvert það starf, sem
einum er venjulega ætlað,
gátu alltaf einhverjir hvílzt.
Að því er varðaði matvæli,
sá hver um sjálfan sig. Ef
einhver varð svangur. opn-
aði hann bara dós með ein-
hverju góðgæti í og snæddi.
Við höfðum allskonar niður-
suðuvörur meðferðis, sem
voru í sérstökum dósum,
er liitnuðu af sjálfu sér. Auk
þess höfðum við raf-
magnstæki til þess að hita
kaffi og te og annað slíkt.
Þessi dagur leið að kvöldi
og við flugum austur yfir