Rökkur - 01.12.1949, Blaðsíða 41
RÖKKUR
153
Fjölmargir Þjóðverjar hafa
gengið í frönsku útlendinga-
hersveitina.
Það hefir löngum verið einhver ævintýraljómi yfir
útlendingahersveitinni frönsku, sem sumir halda að
hafi einungis bækistöðvar í Afríku, þótt hún sé send
um allan heim, þar sem Frakkar eiga í hernaði. Und-
anfarið hefir borið á því, að þýzkir menn — margir
hverjir nazistar — hafi gengið í útlendingahersveit-
ina og eftirfarandi grein, sem er eftir blaðamennina
Fred Sparks og Edward P. Morgan, fjallar um það.
1 veitingakránni hans Felix
í Casablanca geta menn feng-
ið að heyra óteljandi sögur
um útlendingahersveitina og
mennina, sem í henni eru.
Meðal þeirra eru menn, sem
orðið hafa ógæfusamir í
ástamálum, glæpamenn, er
flýja yfirvöldin, eiginmenn,
sem komu keppinautum sín-
um fyrir kattarnef og þar
fram eftir götunum. Otlend-
ingahersveitin hefir nefni-
lega aldrei krafið nokkurn
menn sagna um fortíð hans.
Hún kemur honum einum
við. En sannleikurinn er sá,
að menn, sem voru í þýzka
hernum og kunna ekld við
sig öðru vísi en í einkennis-
búningum, sækjast nú í æ
ríkara mæli eftir að komast
í hersveitina.
Menn segja meira að segja
i gamni, að Hitler og Bor-
mann séu óbreyttir liðsmenn
í henni, en hitt er áreiðan-
legt, að í henni eru margir
minni háttar stríðsglæpa-
menn, SS-foringjar og þess
háttar. I hersveitinni eru nú
um 25.000 menn og er talið,
að þrír af hverjum fimm séu
Þjóðverjar.
Járnhnefinn í ný-
lendum Frakka.
Rússar urðu fyrstir til að
reyna að notfæra sér þýzka
stríðsfanga, er þeir stofnuðu
herinn, sem kenndur hefir
verið við von Paulus, er