Rökkur - 01.12.1949, Side 57
ROKKUR
169
dollara að eg held. 11. maí var Lindberih á sjó úti, vegna
upplýsinga sem komið höfðu frá John Curtis, skipasmið
i Norfolk, sem hafði haft loftskeytasamband við Svía á
ónafngreindu skipi. En nú er Lindbergh kvaddur heim —
með loftskeyti. Lík hins rænda sonar hans hafði fundist
i skóginum um 8 kílómetra frá heimili hans í Hopewell.
Sumarið 1932 gerist það, að Violet Sharpe, sem var
heimilisstúlka hjá Lindbergh-hjónunum, fremur sjálfs-
morð, meðan Wilson beið niðri til að yfirheyra hana. Við
vissum, að framburður hennar var ósannur, en við vissum
einnig, að hún hafði ekki tekið neinn þátt í ráninu. Þrátt
fyrir það vildum við vita, hvers vegna hún hafði logið að
okkur. Eftir þetta fór Madden heim, en Wilson vann á-
fram að máhnu. Alltaf voru peningaseðlar að koma í Ijós,
en dreift, og Wilson gerði allt sem hann gat til þess að fá
bankastjóra, til þess að láta starfslið sitt vera vel á verði.
Við reyndum að fá fjármálarðherra til þess að innkalla
vissa flokka af 5,10 og 20 dollara seðlum, en beiðninni var
ekki sinnt, vegna þess, að menn óttuðust að það mundi
skapa ókyrrð í fjármálalífinu, en 6. april næsta ár leysti
Frankhn D. Roosevelt vandamál Wilsons, með þvi að á-
kveða að alla gulhnnlausnarseðla skyldi taka úr umferð
fyrir 1. mai 1933. Eg hugsa, að Wilson hafi ekki sofið
mikið frá 6. apríl til 1. maí. Hann hafði stöðugt samband
vig bankana, heimsótti bankastjóra o. s. frv. Enn var fram-
ið sjálfsmorð. Og um svo margar einkennilegar tilviljanir
var að ræða, að sjálfur Sherlock Holmes eða hans jafningi
hefði komist í bobba.
Þrátt fyrir allar aðvaranir og aðgæzlu tekst ræningjan-
um að skipta 15.000 dollurum í gullinnlausnarseðlum
nokkrum dögum fyrir 1. mai. Federal Reserve bankinn
skiph 2.980 dollurum i gullinnlausnarseðlum 1. maí, en
í þeim banka er það regla, að seljandinn verður að kvitta
fyrir. Daginn eftir tilkynnir bankinn, að hér hafi verið
um lausnarf járseðla að ræða, og að á kvittuninni sé nafnið
J. J. Faulkner, 547 West 149. götu. — En þar átti enginn
Faulkner heima, né neinn með slíku nafni. Við vissum,
að bifreið, sem stolið var fáum dögum fyrir barnsránið,