Fréttablaðið - 02.02.2023, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 02.02.2023, Blaðsíða 10
Módelið er þjálfað með öllum texta af öllu inter- netinu. Við erum búin að vera að vinna í því síðan 2015 að búa til lýð- ræðislegt spjallmenni sem getur hjálpað þér að vera sem virkastur í lýðræðinu. Þróun getu gervigreindar er nú mikið rædd. Með tilkomu forritsins ChatGPT virðumst við nú nær nothæfri og skil- virkri gervigreind en nokkru sinni fyrr. Notkun slíkrar gervigreindar í skólum og starfi hefur þó vakið upp ýmsar áleitnar spurningar. ChatGPT er spjallmenni þróað af fyrirtækinu OpenAI sem getur gert ótrúlegustu hluti. Allt frá því að leysa erfið stærðfræðidæmi, skrifa stuttar sögur og ágrip, semja ljóð og til þess að þróa viðskiptaáætlanir. Möguleikarnir virðast nær enda- lausir. Róbert Bjarnason hefur meira en þrjátíu ára reynslu í gervigreind og framleiðslu tölvuleikja og vefkerfa og býður meðal annars upp á nám- skeið í notkun gervigreindar. Frétta- blaðið bað Róbert um að útskýra á mannamáli hvernig gervigreind eins og þessi virkar. „ChatGPT er stórt tungumála- módel og þetta er í raun byggt með gervitauganetum sem eru mjög ein- földuð útgáfa af því hvernig tauga- netin í heilanum okkar virka,“ segir Róbert en gervigreindin þarf eins og okkar eiginn heili að læra hvernig hún virkar. „Módelið er þjálfað með öllum texta af öllu internetinu. Öllum vef- síðum og öllu opna internetinu, auk bóka og annarra texta. En í raun er það eina sem módelið er þjálfað í að giska á næsta orð sem kemur,“ segir Róbert. Þannig giski forritið í raun á hvernig samskipti eiga sér stað út frá líkindum. Sem er ekki svo ósvipað okkar eigin samskiptum, ef vel að er gáð. „En vegna þess hve módelið er stórt þá, til þess að giska á næsta orð sem best, þarf það að kenna sér alls kyns abstrakt hugmyndir, eins og til dæmis að reikna flókna stærð- fræði. Það gerir vissulega stundum mistök en þetta er ansi magnað,“ segir Róbert. Milljarða króna kosti að þjálfa forrit eins og ChatGPT á ofurtölvum. Hvaða not höfum við fyrir gervi- greind eins og þessa? „Það sem mér finnst mest spenn- andi er að í náinni framtíð tel ég að allir sem vilja geti verið með stafrænan ofureinkaritara. Sem er líka kennari og getur líka verið markþjálfi og getur í raun gert hvað sem er þegar kemur að gögnum, samskiptum og skipulagi. Þannig að þetta á eftir að auka þín afköst verulega,“ segir Róbert. „Að vera með svona ofuraðstoð- armann mun gefa mörgu fólki tæki- færi á að gera hluti sem það hafði ekki tækifæri á að komast áfram með. Síðan er það sem mér er mest hjartfólgið en það er hvað gervi- greind mun gera fyrir lýðræðið,“ segir Róbert. Auk þess að vera með gervi- Gervigreindin getur kennt okkur margt TÆKNI „Í náinni framtíð tel ég að allir sem vilja geti verið með stafrænan ofureinkaritara,“ segir Róbert Bjarnason. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI Myndin er búin til af gervigreindarforritinu MidJourney. MYND/AÐSEND greindarnámskeið rekur Róbert fyrirtæki sem kallast íbúar SES. „Þar þróum við tól og tæki fyrir þátttökulýðræði og valdef lingu borgara byggð á gervigreind. Það höfum við rekið síðan 2008 en við vinnum til dæmis með Reykjavíkur- borg og tókum þar þátt í verkefninu Hverfið mitt,“ segir Róbert. „Við erum búin að vera að vinna í því síðan 2015 að búa til lýð- ræðislegt spjallmenni sem getur hjálpað þér að vera sem virkastur í lýðræðinu, hjálpað þér að fylgjast með hvaða tækifæri eru í boði til að hafa áhrif og þegar kemur að því að hafa áhrif og eiga samskipti við stjórnvöld, hvernig þú getur formað þín samskipti á sem bestan hátt,“ útskýrir Róbert. Að sögn Róberts er mikil nauðsyn á auknum verkfærum fyrir þá sem taka vilja þátt í lýðræði nútímans. „Við erum búin að vera í mikilli tæknibyltingu síðustu áratugi. En ég held að samfélagið þurfi að hafa verkfæri til þess að geta brugðist við. Þetta kerfi þar sem lýðræðið er bara virkjað á fjögurra ára fresti, það virkaði vel fyrir 150 árum kannski, en hvað gerðist mikið á fjögurra ára fresti fyrir 150 árum? Það gerð- ist vissulega eitthvað en ekki eins mikið og í dag,“ segir Róbert að lokum. Ítarlegra viðtal við Róbert er á vef Fréttablaðsins. n Gervigreind í skólastarfi Gervigreind hefur mikið verið í umræðunni hvað varðar kennslu þar sem hægt er að nota spjall- menni meðal annars til að skrifa ritgerðir og leysa verkefni. Erla Karlsdóttir, grunnskólakennari í Garða- skóla, tók þátt í málþingi í Háskóla Íslands um gervigreind í skólastarfi á dögunum. Hún segir að hafa þurfi í huga að hæfni sé það sem við erum að mennta börn okkar í. „Hæfni er alltaf grunnurinn,“ segir Erla sem telur það ekki endilega lausnina að banna notkun ákveðinna forrita. „Við höfum ekki getu til þess að fylgjast nákvæmlega með því hvort börn séu að nota þetta eða ekki. Svo er það spurning hvort við eigum að eyða tíma í að finna hvaða forrit börnin eru að nota. Kannski er mikilvægara að við gerum þeim grein fyrir afleiðingunum,“ segir Erla sem starfað hefur bæði sem dönsku- og íslenskukennari en starfar nú aðallega sem heimspekikennari. „Sumt af þessu getur nýst þeim mjög vel. Kerfið í dag er til dæmis ekki mjög gott í íslensku og þannig þurfa börnin að fá upplýsingarnar á ensku og færa það í gegnum þýðingarforrit yfir á íslensku,“ segir hún en beinþýðingar séu yfirleitt mjög augljósar. „Þau börn sem eru skörp í þessu vita að við kennararnir sjáum það ef þú skilar beinni þýðingu frá Google. Svo ertu kannski að vinna rit- gerð og vantar upplýsingar. Þá ertu að spara þér tíma. En þú þarft að lesa textann í gegn og veist þá á endanum ýmislegt,“ segir Erla. „Það er þó spurning með verkefni þar sem við erum að þjálfa tungu- málið. Sumt úr tækninni getur nýst börnum vel en annað er að koma þeim í koll. Svo er alltaf spurningin á endanum til hvers við erum að mennta þau. Til hvers er verið að læra? Vilja börn ekki koma út úr skól- anum með ákveðna hæfni?“ spyr Erla. Erla Karlsdóttir, grunnskólakennari í Garðaskóla Hræðsla fyrstu viðbrögð Björn Karlsson, grunnskólakennari og listamaður, segist ekki hafa tekið eftir mikilli umræðu í kenn- arasamfélaginu um gervigreind en það sé að vakna til vitundar í þessum efnum. „Maður sér erlendis að viðbrögðin eru þessi dæmigerðu viðbrögð þegar ný tækni ryður sér rúms, að fólk verður hrætt við hana og heldur að lausnin sé að banna hana,“ segir Björn. „Í Bandaríkjunum eru skólar og sýslur búin að setja bann við notkun á ChatGPT og loka á að- gengi að henni,“ segir hann en telur það alls ekki lausnina við þessari þróun. „Þetta verður örugglega svipuð bylting og þegar við byrjuðum fyrst að fá netið. Þegar það byrjaði að vera almennt í skólum,“ segir Björn en skólar séu vissulega enn að venjast tilkomu internetsins. „Hræðslan við það að fólk hefði aðgang að upplýsingum sem það átti að þurfa að muna. Maður átti að kunna stafsetningarreglur frekar en að nota leiðréttingarforrit. Eða þegar vasareiknirinn kom, þá taldi fólk að börn myndu ekki læra neina stærðfræði,“ segir Björn. „Þetta eru verkfæri sem geta einfaldað ákveðna vinnu en í skólum viljum við náttúrulega að nemendur læri og tileinki sér þekkingu og færni. Við þurfum kannski sem kennarar og skólakerfi að endurhugsa aðeins hvernig við nálgumst það sem við erum að gera,“ segir Björn að lokum. Björn Karlsson, grunnskólakennari og listamaður Ragnar Jón Hrólfsson ragnarjon @frettabladid.is 10 FRÉTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 2. FEBRÚAR 2023 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.