Fréttablaðið - 02.02.2023, Qupperneq 13
Sá hluti samfélagsins,
sem skuldar almennar
krónur, er með þessum
háu vaxtagreiðslum í
raun að greiða niður
innflutningsverð, sem
allir njóta.
„Orðið verð er eigi langt orð, en þó
hefir það verið lítil heillaþúfa um
að þreifa f lestum auðfræðíngum,
hvað þá heldur öðrum fræði-
mönnum.“
Setningin er úr Auðfræði eftir
Arnljót Ólafsson, sem Hið íslenska
bókmenntafélag gaf út 1880.
Fjórum árum fyrr gaf Landsbank-
inn út fyrstu íslensku krónuna.
Hluti þjóðarinnar notar
krónuna enn til að mæla verð-
gildi vöru, vinnu og þjónustu. Svo
hefur hún sjálf sitt verðgildi.
Í ríf lega fjóra áratugi hefur
verið breið samstaða um að
krónan geti ekki ein og sér þjónað
öllum Íslendingum og íslenskum
fyrirtækjum.
Þrír dilkar
Fyrir þá sök höfum við kosið að
draga þjóðina í þrjá aðgreinda
gjaldmiðladilka.
Í fyrsta dilk er almenna krónan,
sem Seðlabankinn stjórnar.
Í öðrum dilk er verðtryggða
krónan. Hún er í raun sérstakur
gjaldmiðill, er Seðlabankinn
hefur óveruleg áhrif á.
Í þriðja dilk er um þriðjungur
þjóðarbúskaparins, sem notar
erlenda gjaldmiðla. Þessi dilkur
lýtur aðallega stjórn seðlabanka
Bandaríkjanna og Evrópu.
Aðgreiningin er af þeim góða
huga gerð að bæta þar úr sem
almenna krónan veldur mestu
tjóni. En sá böggull fylgir skamm-
rifi að það hafa ekki allir jöfn
tækifæri. Það er óréttlæti, sem
aftur skekkir samkeppnisstöðu
innbyrðis í samfélaginu. Og
sú skekkja er óhagkvæm fyrir
heildina.
Fjölmyntakerfinu svipar í eðli
sínu til fjölgengiskerfisins, sem
Viðreisnarstjórnin afnam um leið
og innflutningshöftin í byrjun
sjöunda áratugarins.
Unga fólkið
Vextir almennu krónunnar þurfa
að vera margfalt hærri en helstu
erlendu gjaldmiðla til þess að halda
verðgildi hennar uppi.
Sá hluti samfélagsins, sem
skuldar almennar krónur, er með
þessum háu vaxtagreiðslum í raun
að greiða niður innflutningsverð,
sem allir njóta.
Útflutningsfyrirtækin, sem taka
erlend lán, þurfa hins vegar ekki að
taka þátt í þessum samfélagslega
kostnaði.
Í þessu felst tvenns konar
aðgreining. Annars vegar milli ungs
fólks, sem er að koma sér þaki yfir
höfuðið, og svo eigenda útflutn-
ingsfyrirtækjanna. Hins vegar milli
fyrirtækja eftir því hvort þau eru
innan eða utan krónuhagkerfisins.
Lífeyrisþegar
Vextirnir eru ekki eina
aðgreiningin. Til þess að
halda uppi verðgildi
krónunnar er helm-
ingur alls sparnaðar
rétthafa í lífeyris-
sjóðum í gjaldeyris-
höftum.
Höftin eru svo
umfangsmikil
að þau jafngilda
ríf lega heilli
þjóðarframleiðslu.
Verðgildi almennu
krónunnar skekk-
ist að sama skapi.
Lífeyrisþegar eru í raun
og veru að niðurgreiða
innflutningsverð.
Aðgreiningin felst í því að rétt-
hafar í lífeyrissjóðum sæta gjald-
eyrishöftum meðan allir aðrir
eru frjálsir. Þar á meðal eru þeir
sem njóta einkaréttarhagnaðar af
nýtingu þjóðarauðlinda, sem ekki
er greitt fyrir. Þeir taka ekki þátt
í þessum samfélagslega kostnaði
með lífeyrisþegum.
Velferðin
Aðgreiningin kemur líka fram
í því að sameiginlegur sjóður
þjóðarinnar þarf að greiða marg-
falt hærri vexti fyrir fjárfestingu í
velferð og menntun en fyrirtækin,
sem standa utan krónuhag-
kerfisins.
Ekkert vestrænt ríki greiðir jafn
hátt hlutfall útgjalda í vexti eins
og ríkissjóður Íslands þrátt fyrir
hóflegt skuldahlutfall.
Þessi aðgreining veldur því að
skólarnir, heilbrigðisþjónustan og
velferðarkerfið hafa minni mögu-
leika en fyrirtækin utan krónu-
hagkerfisins til þess að standa
jafnfætis grönnum okkar.
Seðlabankinn
Gjaldmiðlaaðgreiningin veldur
því einnig að Seðlabankinn
hefur þrengra svigrúm en seðla-
bankar annarra þjóða til þess að
stjórna peningamálum í þjóðar-
búskapnum.
Meðan einn hluti þjóðarinnar
notar almenna krónu, annar hluti
verðtryggða krónu og þriðji hlut-
inn dollara eða evrur er Seðla-
bankinn fatlaður.
Rangindin felast í því að
aðhaldsaðgerðir Seðlabankans
ná ekki til þeirra sem best standa.
Fyrir vikið verður að beita hina,
sem eru innan krónuhagkerfisins,
meiri hörku en þyrfti, ef allir sætu
við sama borð.
Valið
Við byrjuðum að fjölga gjald-
miðlum fyrir rúmum fjörutíu
árum vegna þess eins að verðgildi
krónunnar var „lítil heillaþúfa um
að þreifa“.
Þá voru aðrir vegir tæpast færir.
Núna eru f leiri leiðir opnar.
Ágreiningurinn snýst um það
hvort velja eigi eina samkeppnis-
hæfa mynt allra landsmanna úr
hópi þeirra sem við notum helst
eða viðhalda fjölgjaldmiðla-
kerfinu, sem veldur misgengi og
misrétti og dregur úr framleiðni
þjóðarbúsins.
Þetta er spurning um þjóð með
eða án aðgreiningar. n
Þjóð með aðgreiningu
Þorsteinn
Pálsson
n Af Kögunarhóli
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
ÚTSALA
á sýningarvörum í verslun
Borðstofuborð, borðstofustólar, eldhússtólar,
sófaborð, sófar o.fl. o.fl.10-60%
afsláttur
Ciro 3 litir
Áður 39.900
NÚ 29.900
Alison
snúnings
Áður 33.900
NÚ 27.000Sierra
nokkrir litir
Áður 25.700
NÚ 19.200
Kato svart
Áður 29.900
NÚ 19.400
Adele
Áður 39.900
NÚ 23.900
Obling 3ja sæta
Áður 129.000 NÚ 103.000
Brookliyn borðstofuborð
220x98, stækkun 2x50 cm, reykt eik – hvítuð eik
Áður 199.000 NÚ 149.000
Notthingham sófaborð
Áður 116.000 NÚ 58.000
Hill hvíldarstóll með tauáklæði
Áður 176.000 NÚ 123.000
Staturn 3ja sæta
Áður 159.000 NÚ 119.000
25%
25%
25%
25%
40%
50%
35%
30%
20%
20%
FRÉTTABLAÐIÐ SKOÐUN 132. FEBRÚAR 2023
FIMMTUDAGUR