Fréttablaðið - 02.02.2023, Page 20

Fréttablaðið - 02.02.2023, Page 20
Rahimi er rannsóknarblaðakona. Hún fer til hinnar heilögu írönsku borgar Mashhad til að rannsaka raðmorðingja sem telur sig vera að vinna verk guðs með því að myrða vændiskonur og hreinsa þannig götur hinnar heilögu borgar. Eftir því sem líkin hlaðast upp og Rahimi færist nær því að bera kennsl á morðingjann verður sífellt erfiðara að eiga við kerfið, sem virðist verja raðmorðingjann, og landlægir fordómar og kreddur trúarríkisins birtast. Raðmorðing- inn var álitinn hetja sem væri að vinna ákveðið hreinsunarstarf. Sagan er byggð á hryllilegum og sannsögulegum atburðum sem áttu sér stað í Íran er raðmorðinginn Saeed Hanaei myrti 16 konur árin 2000 og 2001. Leikstjórinn og handritshöf- undurinn, Ali Abbasi, sem áður hefur leikstýrt Border, hefur hér skapað magnaðan spennutrylli sem beinir kastljósinu að samfélagi sem umvefur óréttlæti og fordóma. Abassi fæddist í Íran en flutti rúmlega tvítugur til Svíþjóðar til að læra arkitektúr. Eftir að hann lauk námi sneri hann við blaðinu og fór í danska kvikmyndaskólann og lauk þaðan gráðu árið 2011. Hann er búsettur í Kaupmannahöfn en hefur enn íranskt vegabréf. Holy Spider var frumsýnd á Kvik- myndahátíðinni í Cannes 22. maí í fyrra og valin til að keppa um Gull- pálmann. Myndin er á persnesku og Zar Amir Ebrahimi fékk verð- laun sem besta leikkona í aðalhlut- verki. Holy Spider var framlag Dana til Óskarsverðlaunanna í ár og komst á desember-stuttlistann. n Bíó Paradís Spennutryllir með beinskeyttri ádeilu Hryllilegur spennu- tryllir sem byggður er á raunverulegum atburðum þegar rað- morðingi ákvað að hreinsa vændiskonur af götum hinnar heilögu borgar. Fróðleikur n Raðmorðinginn Saeed Hanaei var verkamaður og hermaður í stríðinu milli Írans og Íraks. Sagt er að hann hafi byrjað morðferil sinn þegar einhver tók misgrip á eiginkonu hans og vændiskonu. n Zar Amir-Ebrahimi var upphaflega ráðin til að velja leikara í mynd- ina en var valin í aðalhlutverkið eftir að önnur leikkona neitaði að leika það hlutverk án þess að ganga með slæðu. n Eftir að Zar Amir-Ebrahimi hlaut verðlaunin sem besta leikkona í aðalhlutverki í Cannes sökuðu írönsk stjórnvöld hana og leik- stjóra myndarinnar um guðlast. Komin í bíó Aðalhlutverk: Zar Amir-Ebrahimi, Mehdi Bajestani og Arash Ashtiani Handrit: Ali Abbasi og Afshin Kamran Bahrami Leikstjórn: Ali Abbasi Tungumál: Persneska með ýmist íslenskum eða enskum texta. Þýskir kvikmyndadagar verða haldnir í 14. skiptið í Bíó Paradís dagana 24. febrúar til 5. mars 2023. Kvikmyndadagarnir er samstarf Bíó Paradísar, Goethe-Institut Dänemark og þýska sendiráðsins á Íslandi. Stórkostleg þýsk kvik- myndaveisla ásamt broti af úrvali frá Mannréttindakvikmyndahátíð- inni í Berlín! Flestar myndirnar á kvikmynda- dögunum hafa hlotið mikla athygli á heimsvísu. Þar má nefna All Quiet on the Western Front sem hlýtur níu Óskarstilnefningar sem og Rabiye Kurnaz vs. George W. Bush og Love, Deutshmarks and Death en þær fengu báðar verðlaun og verðskuldaða athygli á Berlinale. Opnunarmynd kvikmynda- daganna í ár er Rabiye Kurnaz vs. George W. Bush, sannsöguleg mynd sem segir frá konu frá Bremen sem leitar allra leiða til að bjarga syni sínum úr Guantanamo Bay-fang- elsinu. Hún leitar til lögreglu og yfirvalda og endar, í nafni sonar síns, í málaferlum við Bandaríkin. Myndin sló í gegn á kvikmynda- hátíðinni Berlinale, keppti um Gull- björninn og hlaut þrenn verðlaun, meðal annars fyrir besta handritið. Hún fer í almennar sýningar að hátíð lokinni í Bíó Paradís. Aðrar myndir á þýskum kvik- myndadögum eru: n All Quiet on the Western Front Ungur maður, Paul Bäumer og vinir hans, Albert og Müller, ganga sjálf- viljugir í þýska herinn í fyrri heims- styrjöldinni. Ískaldur hryllingur stríðsins hefst svo í fremstu víglínu. Átakanleg mynd sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara! Myndin er tilnefnd til níu Óskarsverðlauna og hlaut 14 til- nefningar til BAFTA-verðlaunanna 2023. n The Ordinaries Dramatísk gamanmynd sem segir frá Paulu sem þráir að verða aðal- leikkona í sínu eigin lífi og leitast við að kanna uppruna fjölskyldu sinnar og þá sérstaklega föður síns. Ein eftirtektarverðasta mynd ársins frá Þýskalandi, mynd sem vísar í gullaldartíma Hollywood, mynd sem enginn má missa af! n Nachschuss Werner Teske er ráðinn til leyni- þjónustu kommúnistaflokks Austur-Þýskalands. Þegar fjár- kúganir, þvinganir og símhleranir verða hluti af hans daglegu störfum fara að renna á hann tvær grímur. Sannkallað pólitískt drama og sálfræðileg spennumynd þar sem fjallað er um átakanlega tíma í sögu Þýskalands. Nachschuss er byggð á sannri sögu. n Love Deutschmarks and Death Stórkostleg heimildarmynd um tónlist tyrkneskra innflytjenda í Þýskalandi, í senn grátbrosleg og áhugaverð en umfram allt hjart- næm menningarsaga fólks, þar sem tjáningarformið er tónlist. Cem Kaya veitir hér innlit í einstakan líf- leika þessarar tónlistarmenningar. Myndin vann áhorfendaverð- launin í Panorama-flokknum á Berlinale 2022. Eftirfarandi heimildamyndir eru brot af úrvali frá Mann rétt inda- kvikmyndahátíðinni í Berlín í sam- starfi við þýska sendiráðið á Íslandi. Frítt er inn og allir velkomnir en þó er nauðsynlegt að skrá sig í gegnum hlekk sem finna má á heimasíðu Bíó Paradísar. n Backlash: Misogyny in the Digital Age – Boðssýning Heimildarmynd um kvenhatur á stafrænni öld. Fylgst er með fjórum konum og einum karli sem hafa orðið fyrir barðinu á netofbeldi. Laura Boldrini er ein mest áreitta stjórnmálakona Ítalíu. Kiah Morris var stjórnmálakona í Vermont en sagði af sér í kjölfar mikillar áreitni og hótana á netinu. Marion Séclin fékk meira en 40.000 kynjamisréttisskilaboð á netinu, þar á meðal hótanir um nauðganir og líflát. Laurence Gratton er ungur kennari sem varð fyrir netárásum frá fyrrverandi samstarfsmanni. Einnig er viðtal við föður stúlku sem svipti sig lífi eftir að ofbeldi af henni var dreift á netinu. Heimildarmynd sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. n A House Made of Splinters – Boðssýning Í stríðshrjáðum og fátækum austur- hluta Úkraínu er griðastaður fyrir börn til að komast tímabundið frá foreldrum sínum. Fylgst er með þremur börnum sem bíða örlaga sinna. Munu þau snúa aftur til for- eldranna eða flytja á nýtt heimili? Átakanleg heimildarmynd um aðstæður barna á stríðstímum. Myndin er tilnefnd til Óskars- verðlaunanna sem besta heimildar- myndin 2023! n Þýskir kvikmyndadagar í Bíó Para- dís, dagana 24. febrúar til 5. mars 2023. Magnaðir þýskir kvikmyndadagar í Bíó Paradís 24 FEB 5 MAR 4 kynningarblað 2. febrúar 2023 FIMMTUDAGURKVIKMYNDIR MÁNAÐARINS

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.