Fréttablaðið - 02.02.2023, Qupperneq 20
Rahimi er rannsóknarblaðakona.
Hún fer til hinnar heilögu írönsku
borgar Mashhad til að rannsaka
raðmorðingja sem telur sig vera að
vinna verk guðs með því að myrða
vændiskonur og hreinsa þannig
götur hinnar heilögu borgar.
Eftir því sem líkin hlaðast upp
og Rahimi færist nær því að bera
kennsl á morðingjann verður sífellt
erfiðara að eiga við kerfið, sem
virðist verja raðmorðingjann, og
landlægir fordómar og kreddur
trúarríkisins birtast. Raðmorðing-
inn var álitinn hetja sem væri að
vinna ákveðið hreinsunarstarf.
Sagan er byggð á hryllilegum og
sannsögulegum atburðum sem áttu
sér stað í Íran er raðmorðinginn
Saeed Hanaei myrti 16 konur árin
2000 og 2001.
Leikstjórinn og handritshöf-
undurinn, Ali Abbasi, sem áður
hefur leikstýrt Border, hefur hér
skapað magnaðan spennutrylli sem
beinir kastljósinu að samfélagi sem
umvefur óréttlæti og fordóma.
Abassi fæddist í Íran en flutti
rúmlega tvítugur til Svíþjóðar til að
læra arkitektúr. Eftir að hann lauk
námi sneri hann við blaðinu og fór
í danska kvikmyndaskólann og
lauk þaðan gráðu árið 2011. Hann
er búsettur í Kaupmannahöfn en
hefur enn íranskt vegabréf.
Holy Spider var frumsýnd á Kvik-
myndahátíðinni í Cannes 22. maí í
fyrra og valin til að keppa um Gull-
pálmann. Myndin er á persnesku
og Zar Amir Ebrahimi fékk verð-
laun sem besta leikkona í aðalhlut-
verki. Holy Spider var framlag Dana
til Óskarsverðlaunanna í ár og
komst á desember-stuttlistann. n
Bíó Paradís
Spennutryllir með beinskeyttri ádeilu
Hryllilegur spennu-
tryllir sem byggður
er á raunverulegum
atburðum þegar rað-
morðingi ákvað að
hreinsa vændiskonur af
götum hinnar heilögu
borgar.
Fróðleikur
n Raðmorðinginn Saeed Hanaei var verkamaður og hermaður í
stríðinu milli Írans og Íraks. Sagt er að hann hafi byrjað morðferil
sinn þegar einhver tók misgrip á eiginkonu hans og vændiskonu.
n Zar Amir-Ebrahimi var upphaflega ráðin til að velja leikara í mynd-
ina en var valin í aðalhlutverkið eftir að önnur leikkona neitaði að
leika það hlutverk án þess að ganga með slæðu.
n Eftir að Zar Amir-Ebrahimi hlaut verðlaunin sem besta leikkona í
aðalhlutverki í Cannes sökuðu írönsk stjórnvöld hana og leik-
stjóra myndarinnar um guðlast.
Komin í bíó
Aðalhlutverk:
Zar Amir-Ebrahimi, Mehdi
Bajestani og Arash Ashtiani
Handrit:
Ali Abbasi og Afshin Kamran
Bahrami
Leikstjórn:
Ali Abbasi
Tungumál:
Persneska með ýmist
íslenskum eða enskum
texta.
Þýskir kvikmyndadagar verða
haldnir í 14. skiptið í Bíó Paradís
dagana 24. febrúar til 5. mars 2023.
Kvikmyndadagarnir er samstarf
Bíó Paradísar, Goethe-Institut
Dänemark og þýska sendiráðsins
á Íslandi. Stórkostleg þýsk kvik-
myndaveisla ásamt broti af úrvali
frá Mannréttindakvikmyndahátíð-
inni í Berlín!
Flestar myndirnar á kvikmynda-
dögunum hafa hlotið mikla athygli
á heimsvísu. Þar má nefna All Quiet
on the Western Front sem hlýtur
níu Óskarstilnefningar sem og
Rabiye Kurnaz vs. George W. Bush
og Love, Deutshmarks and Death
en þær fengu báðar verðlaun og
verðskuldaða athygli á Berlinale.
Opnunarmynd kvikmynda-
daganna í ár er Rabiye Kurnaz vs.
George W. Bush, sannsöguleg mynd
sem segir frá konu frá Bremen sem
leitar allra leiða til að bjarga syni
sínum úr Guantanamo Bay-fang-
elsinu. Hún leitar til lögreglu og
yfirvalda og endar, í nafni sonar
síns, í málaferlum við Bandaríkin.
Myndin sló í gegn á kvikmynda-
hátíðinni Berlinale, keppti um Gull-
björninn og hlaut þrenn verðlaun,
meðal annars fyrir besta handritið.
Hún fer í almennar sýningar að
hátíð lokinni í Bíó Paradís.
Aðrar myndir á þýskum kvik-
myndadögum eru:
n All Quiet on the Western Front
Ungur maður, Paul Bäumer og vinir
hans, Albert og Müller, ganga sjálf-
viljugir í þýska herinn í fyrri heims-
styrjöldinni. Ískaldur hryllingur
stríðsins hefst svo í fremstu víglínu.
Átakanleg mynd sem enginn ætti
að láta fram hjá sér fara!
Myndin er tilnefnd til níu
Óskarsverðlauna og hlaut 14 til-
nefningar til BAFTA-verðlaunanna
2023.
n The Ordinaries
Dramatísk gamanmynd sem segir
frá Paulu sem þráir að verða aðal-
leikkona í sínu eigin lífi og leitast
við að kanna uppruna fjölskyldu
sinnar og þá sérstaklega föður síns.
Ein eftirtektarverðasta mynd
ársins frá Þýskalandi, mynd sem
vísar í gullaldartíma Hollywood,
mynd sem enginn má missa af!
n Nachschuss
Werner Teske er ráðinn til leyni-
þjónustu kommúnistaflokks
Austur-Þýskalands. Þegar fjár-
kúganir, þvinganir og símhleranir
verða hluti af hans daglegu störfum
fara að renna á hann tvær grímur.
Sannkallað pólitískt drama og
sálfræðileg spennumynd þar sem
fjallað er um átakanlega tíma í sögu
Þýskalands. Nachschuss er byggð á
sannri sögu.
n Love Deutschmarks and Death
Stórkostleg heimildarmynd um
tónlist tyrkneskra innflytjenda í
Þýskalandi, í senn grátbrosleg og
áhugaverð en umfram allt hjart-
næm menningarsaga fólks, þar sem
tjáningarformið er tónlist. Cem
Kaya veitir hér innlit í einstakan líf-
leika þessarar tónlistarmenningar.
Myndin vann áhorfendaverð-
launin í Panorama-flokknum á
Berlinale 2022.
Eftirfarandi heimildamyndir eru
brot af úrvali frá Mann rétt inda-
kvikmyndahátíðinni í Berlín í sam-
starfi við þýska sendiráðið á Íslandi.
Frítt er inn og allir velkomnir en þó
er nauðsynlegt að skrá sig í gegnum
hlekk sem finna má á heimasíðu
Bíó Paradísar.
n Backlash: Misogyny in the
Digital Age – Boðssýning
Heimildarmynd um kvenhatur á
stafrænni öld. Fylgst er með fjórum
konum og einum karli sem hafa
orðið fyrir barðinu á netofbeldi.
Laura Boldrini er ein mest áreitta
stjórnmálakona Ítalíu. Kiah Morris
var stjórnmálakona í Vermont en
sagði af sér í kjölfar mikillar áreitni
og hótana á netinu.
Marion Séclin fékk meira en
40.000 kynjamisréttisskilaboð
á netinu, þar á meðal hótanir
um nauðganir og líflát. Laurence
Gratton er ungur kennari sem varð
fyrir netárásum frá fyrrverandi
samstarfsmanni.
Einnig er viðtal við föður stúlku
sem svipti sig lífi eftir að ofbeldi af
henni var dreift á netinu.
Heimildarmynd sem enginn ætti
að láta fram hjá sér fara.
n A House Made of Splinters
– Boðssýning
Í stríðshrjáðum og fátækum austur-
hluta Úkraínu er griðastaður fyrir
börn til að komast tímabundið frá
foreldrum sínum. Fylgst er með
þremur börnum sem bíða örlaga
sinna. Munu þau snúa aftur til for-
eldranna eða flytja á nýtt heimili?
Átakanleg heimildarmynd um
aðstæður barna á stríðstímum.
Myndin er tilnefnd til Óskars-
verðlaunanna sem besta heimildar-
myndin 2023! n
Þýskir kvikmyndadagar í Bíó Para-
dís, dagana 24. febrúar til 5. mars
2023.
Magnaðir þýskir kvikmyndadagar í Bíó Paradís
24 FEB 5 MAR
4 kynningarblað 2. febrúar 2023 FIMMTUDAGURKVIKMYNDIR MÁNAÐARINS