Fréttablaðið - 04.02.2023, Blaðsíða 29
www.fsre.is
AÐSTAÐA
Í ALLRA ÞÁGU
FRAMKVÆMDASÝSLAN
- RÍKISEIGNIR
FSRE.IS
• Háskólapróf á sviði verk- eða tæknifræði eða sambærileg menntun í mannvirkjagerð
• Farsæl reynsla af stjórnun
• Farsæl reynsla af verkefnastjórnun í mannvirkjagerð
• Reynsla af verklegum framkvæmdum
• Menntun og/eða vottun í verkefnastjórnun er kostur
• Þekking eða reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
• Þekking á BIM hönnun og umhverfisvottunum er kostur
• Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
• Metnaður, skipulagsfærni og öguð vinnubrögð
• Góð íslensku- og enskukunnátta og hæfni í tjáningu í ræðu og riti
• Ábyrgð á daglegum rekstri verkefnasafna á stigi verkhönnunar og framkvæmda
• Áætlanagerð vegna mönnunar verkefna og samhæfingar
• Þátttaka í framþróun aðferðafræði og viðmiða verkefnastjórnunar innan FSRE
• Leiðbeining og stuðningur vegna verkefnastjórnunar á stigi verkhönnunar og framkvæmda
• Eftirlit með framvindu verkefna og þróun lykilstærða
• Framþróun og framfylgni gæðakerfis
• Greining og eftirfylgni úrbótatækifæra og frávikaskráninga
• Upplýsingagjöf og samskipti við verkkaupa og ytri aðila
Menntunar- og hæfniskröfur
Helstu verkefni
DEILDARSTJÓRI
VERKHÖNNUNAR OG FRAMKVÆMDA
Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir (FSRE) óskar eftir að ráða framsýnan og
drífandi stjórnanda til að leiða nýja deild verkhönnunar og framkvæmda, innan
Framkvæmdasviðs FSRE. Framkvæmdasvið byggir á teymisskipulagi þar sem
þverfagleg teymi sérfræðinga og verkefnastjóra leiða fjölbreytt framkvæmda-
verkefni um allt land. Deildarstjóri gegnir stoðhlutverki við rekstur verkefna á
stigi verkhönnunar og framkvæmda og tekur þátt í umbótastarfi og framþróun
framkvæmdasviðs. Árið 2023 verður okkar umfangsmesta ár framkvæmda-
útboða hingað til og því spennandi tímar framundan.
UMSÓKNARFRESTUR ER TIL OG MEÐ 27. FEBRÚAR
Öll áhugasöm eru hvött til að sækja um.
Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is
Nánari upplýsingar veitir Thelma Kristín Kvaran
(thelma@intellecta.is) í síma 511 1225
Við hjá FSRE mótum og rekum
aðstöðu sem nýtist öllum íbúum
landsins með einum eða öðrum
hætti. Við önnumst fasteignir og
jarðir ríkisins, öflum húsnæðis og
stýrum framkvæmdum við
breytingar, endurbætur og
nýbyggingar.
FSRE heldur utan um stærsta
fasteignasafn landsins sem
samanstendur af 530 þúsund m²
húsnæðis í 380 eignum auk um
300 jarða og landsvæða. Við
vinnum jafnframt að fjölbreyttum
fasteignaþróunarverkefnum sem
snerta flest svið mannlífsins s.s.
heilbrigðis- og velferðarmál,
menningu, menntun, dómskerfi,
löggæslu, náttúru og friðlýst svæði.
Hjá FSRE starfa rúmlega
70 sérfræðingar með breiða
þekkingu á sviði fasteignaþróunar,
framkvæmda og rekstrar. Við erum
spennandi vinnustaður á fleygiferð
inn í framtíðina, bjóðum upp á
verkefnamiðað vinnuumhverfi og
sveigjanlegan vinnutíma. Við
leggjum áherslu á að styðja
starfsfólk okkar í þekkingaröflun,
m.a. í gegnum alþjóðlegt
tengslanet. Við bjóðum upp á
markvissa stjórnendaþjálfun,
brennum fyrir jafnrétti, frábærri
vinnustaðamenningu og
fjölskylduvænum vinnustað.
Ljósmynd: Vigfús Birgisson
Móberg: Urban arkitektar - LOOP Architects
RÁÐGJÖF RÁÐNINGAR RANNSÓKNIR
Að gera betur í dag en í gær
er drifkraftur nýrra hugsana
og betri árangurs.
Starfsmenn eru lykill
að árangri allra fyrirtækja.
Rannsóknir auka þekkingu
og gera ákvarðanir markvissari
Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is
Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum
við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan
bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini
til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri.
ATVINNUBLAÐIÐ 5LAUGARDAGUR 4. febrúar 2023